
Heillandi Heimur í Cascais
Göngu- og menningarferð um þetta dásamlega svæði Portúgals !
25. febrúar - 4. mars 2027
7 NÆTUR
ATH. lágmarksþátttaka eru 12 manns
Gönguferðir, menning og heilsuefling við strandperluna Cascais í Portúgal !
Upplifðu eitt það besta sem Portúgal hefur upp á að bjóða í einstakri ferð þar sem góð hreyfing, náttúrufegurð, menning og góðir matar- og vínsmökkunardagar fara saman.
Við göngum um ævintýralega skóga Sintra og meðfram stórbrotinni Atlantshafsströnd, heimsækjum litríkar hallir og dásamlega garða, njótum mannlífsins í Cascais og uppgötvum töfra Lissabon.
Alla morgna byrjum við á léttu jóga og teygjum og á milli ævintýra njótum við lífsins á glæsilegu fimm stjörnu heilsu- og lúxushóteli við hafið.
✨ Fullkomin blanda af göngum, upplifunum, góðum mat og vellíðan!
VERÐ KR 486.900- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI.
Aukalega KR 62.700,- MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.
ATH - mjög mikið innifalið í þessari ferð
-
* flug með Icelandair á Lissabon
-
* gisting á 5 stjörnu hóteli
-
* 3 hádegisverðir
-
* vínsmökkun
-
* hálft fæði á hóteli (morgunverður og kvöldverður)
-
* göngurferðir
-
* skoðunarferð með Tuk Tuk í Lissabon
-
* heimsókn í Pena höllina í Sintra
-
* jóga á hverjum morgni
Upplýsingar um ferðina veitir:
Harpa - harpa@heillandiheimur.is eða sími 822 3890

Heillandi Cascais – gönguferðir, menning og vellíðan við Atlantshafið
✨ Ævintýrið hefst 25. febrúar 2027 með flugi Icelandair til Lissabon.
Við bjóðum til einstakrar ferðar til Cascais, heillandi strandbæjar Portúgals, þar sem falleg náttúra, rík saga, portúgölsk menning og notalegt bæjarlíf fara saman. Hér ætlum við að njóta þess besta sem svæðið hefur upp á að bjóða og um leið gefa okkur góðan tíma til að hlúa að líkama og sál.
Við förum í þrjár fjölbreyttar gönguferðir með staðar leiðsögumanni, um ævintýralega skóga Sintra, gróskumikla garða og meðfram stórbrotinni Atlantshafsströnd. Á milli göngudaga kynnumst við heillandi menningu og sögu svæðisins, heimsækjum ævintýralegar hallir, röltum um fallega bæi og njótum líflegs mannlífs í Lissabon.
Og auðvitað ætlum við að njóta portúgalskrar matarmenningar. Við smökkum á góðum vínum, kynnumst staðbundnum kræsingum og gefum okkur tíma til að setjast niður á notalegum veitingastöðum og kaffihúsum.
Alla morgna byrjum við daginn á 30 mínútna léttum teygjum og jóga áður en við höldum út í ævintýri dagsins. Heimili okkar alla vikuna verður hið glæsilega fimm stjörnu Longevity Senses Cascais Boutique Hotel & Clinic, þar sem lúxus, kyrrð og vellíðan eru í fyrirrúmi. Þar getum við slakað á í heilsulindinni, notið fallegs umhverfis og hlaðið batteríin á milli gönguferða.
Þetta er ferð fyrir þá sem hafa gaman af því að hreyfa sig, uppgötva nýja staði, njóta menningar og góðs matar, en vilja líka gefa sér tíma til að slaka á og njóta lífsins.
Fararstjórar í ferðinni
Rósa Halldórsdóttir.
Rósa er með víðtæka menntun sem kemur sér vel sem fararstjóri. Hún er meðal annars leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.
Auk þessa er hún jógakennari og mun sjá um morgunjógað hjá okkur í ferðinni.
Harpa Einarsdóttir.
Harpa er eigandi ferðaskrifstofunnar og hefur verið með hópa í ferðum vítt og breytt um heiminn. Hún er með áratugareynslu í skipulagningu og utanumhald ferða um allan heim.


Byrjum daginn á góðum nótum
Hvað er betra en að byrja daginn á smá hreyfingu, góðri öndun og notalegri stund með sjálfum sér?
Á hverjum morgni tökum við okkur um 30 mínútur í léttar teygjur og mjúkar jógaæfingar áður en við höldum út í ævintýri dagsins. Við vekjum líkamann rólega, losum um stífa vöðva og undirbúum okkur fyrir göngurnar og allt það skemmtilega sem fram undan er.
Æfingarnar eru einfaldar og henta öllum, hvort sem fólk hefur stundað jóga áður eða er að prófa það í fyrsta sinn. Engin sérstök reynsla eða liðleiki er nauðsynlegur og hver og einn tekur þátt eftir eigin getu.
Þessar notalegu morgunstundir verða okkar leið til að byrja daginn af ró og krafti – og njóta þess að gefa okkur sjálfum smá tíma.


Uppgötvum leyndardóminn að langlífi
Það sem gerir hótelið okkar Longevity Senses Cascais sérstaklega spennandi er að á hótelinu er einnig starfrækt sérhæfð heilsugæsla sem leggur áherslu á heilbrigða öldrun, fyrirbyggjandi heilsuvernd og vellíðan.
Þar er meðal annars boðið upp á fjölbreyttar heilsufarsmælingar, rannsóknir, næringarráðgjöf og einstaklingsmiðaða heilsuráðgjöf. Fyrir þá sem hafa áhuga getur þetta verið einstakt tækifæri til að kynnast eigin heilsu betur og fá faglega leiðsögn um hvernig megi hlúa að henni til framtíðar.
Þessi þjónusta er valfrjáls og greiðist sérstaklega.
Dagskrá ferðarinnar:
Dagur 1 – Fimmtudagur 25. febrúar
Portúgal tekur á móti okkur.
Við fljúgum með Icelandair frá Keflavík kl. 08:30 og lendum í Lissabon kl. 12:50 að staðartíma ( sem er sá sami og á Íslandi). Þar bíður okkar rúta sem ekur okkur til Cascais, heillandi strandbæjar við Atlantshafið, en aksturinn tekur um 50 mínútur.
Við komum okkur fyrir á hinu glæsilega fimm stjörnu hóteli Longevity Senses Cascais, sem verður okkar heimili næstu sjö næturnar. Það sem eftir lifir dags gefst tími til að njóta umhverfisins, slaka á eftir ferðalagið og kynna sér aðstöðu hótelsins.
Um kvöldið komum við saman yfir góðum kvöldverði á hótelinu og stillum okkur inn á spennandi daga fram undan í fallegri náttúru Portúgals.
Dagur 2 – Föstudagur 26. febrúar
Töfrandi skógar Sintra – náttúrufegurð, saga og stórkostlegt útsýni.
Í dag höldum við til Sintra þar sem okkar bíður einstaklega falleg gönguferð um þrjá ólíka skóga. Sintra er þekkt fyrir gróskumikla og fjölbreytta náttúru þar sem innlendar trjátegundir vaxa við hlið framandi trjáa sem bárust hingað frá ýmsum heimshornum á 19. öld, þegar rómantíska stefnan hafði mikil áhrif á landslag og garðagerð svæðisins.
Við göngum um kyrrláta skóga þar sem sólarljósið leikur um trjákrónurnar og grænir litir náttúrunnar njóta sín. Á leiðinni kynnumst við einnig ævafornum minjum frá forsögulegum tíma og njótum fallegs útsýnis yfir fjöllin og Atlantshafsströndina.
Einn af hápunktum göngunnar er Peninha, sögufrægur helgistaður í um 500 metra hæð, þar sem útsýnið nær langt yfir Sintrafjöllin og allt að Atlantshafinu. Þar sjáum við einnig minjar kapellu heilags Satúrnínusar, sem á sér um þúsund ára sögu.
Að lokum liggur leiðin aftur niður um fallega skóga að litlu þorpi þar sem gangan hófst.
Þetta er fjölbreytt og fremur létt ganga þar sem við njótum náttúrufegurðar Sintra, kyrrðar skóganna og áhugaverðrar sögu svæðisins.
Göngutími: um 4 klukkustundir. Erfiðleikastig: létt ganga.



Dagur 3 – Laugardagur 27. febrúar
Sintra, ævintýrahöll, rómantík og notalegt bæjarlíf.
Í dag ætlum við að heimsækja Sintra, einn af þessum stöðum sem maður gleymir seint. Þessi heillandi bær, Sintra-Vila, kúrir í gróskumiklum hlíðum Sintra fjallanna, umkringdur fallegum görðum, gömlum höllum og sögulegum byggingum. Hér er sérstök stemning og ekki að ástæðulausu að Sintra hefur um aldir verið eftirlætisstaður konungsfólks, listamanna og ferðalanga. Menningarlandslag Sintra er á heimsminjaskrá UNESCO.
Við heimsækjum hina ævintýralegu Pena-höll sem stendur hátt yfir bænum. Með sínum litríku turnum, skrautlegu byggingarlist og stórkostlega útsýni er hún nánast eins og tekin úr ævintýrabók. Höllin var reist á 19. öld að frumkvæði Ferdinands II konungs og þar er margt forvitnilegt að sjá og heyra um líf konungsfjölskyldunnar á þessum tíma.
Eftir heimsóknina í höllina gefum við okkur góðan tíma til að njóta gamla bæjarins í Sintra. Þar er yndislegt að rölta um þröngar steinlagðar götur, kíkja inn í litlar verslanir, setjast á notaleg kaffihús og fylgjast með mannlífinu. Og auðvitað er næstum skylda að smakka á travesseiros og queijadas, ljúffengu sætabrauði sem bærinn er frægur fyrir.
Þetta verður dagur þar sem við leyfum okkur að njóta, skoða og upplifa á rólegum hraða, með svolitlum ævintýrablæ.



Dagur 4 – Sunnudagur 28. febrúar
Meðfram Atlantshafinu, stórbrotin náttúra og portúgölsk vín.
Í dag ætlum við að kynnast stórbrotinni strandlengju Sintra, þar sem Atlantshafið hefur í aldanna rás mótað háa kletta, fallegar víkur og litlar sandstrendur. Hér er náttúran allt önnur en í gróskumiklum skógunum sem við gengum um á fyrsta göngudeginum.
Við leggjum af stað í fallega strandgöngu með staðar leiðsögumanni og njótum ferska sjávarloftsins og útsýnisins yfir hafið. Á leiðinni kynnumst við sögu og náttúru svæðisins og gefum okkur góðan tíma til að njóta þess sem fyrir augu ber. Gönguleiðin hefur verið sérstaklega aðlöguð að hópnum þannig að við getum notið þessarar fögru strandlengju án þess að þurfa að takast á við bröttustu og erfiðustu kaflana.
Að göngunni lokinni setjumst við niður á notalegum veitingastað og njótum góðs hádegisverðar.
Síðdegis bíður okkar síðan önnur skemmtileg upplifun þegar við heimsækjum víngerð á svæðinu. Vínræktin hér á sér langa og merkilega sögu og nálægðin við Atlantshafið hefur mikil áhrif á ræktunina og karakter vínanna. Við fáum að fræðast um þessa sérstæðu vínhefð og að sjálfsögðu að smakka á vínum svæðisins.
Þetta verður yndislegur dagur þar sem við sameinum hreyfingu í fallegri náttúru, góðan mat og áhugaverða innsýn í portúgalska vínmenningu.
Göngutími: um 2½ klukkustund.




Dagur 5 – Mánudagur 1. mars
Cascais, konungleg saga, portúgalskar kræsingar og notalegt bæjarlíf.
Í dag ætlum við að njóta Cascais, þessa heillandi strandbæjar sem eitt sinn var lítið fiskimannaþorp en varð á 19. öld vinsæll sumardvalarstaður portúgölsku konungsfjölskyldunnar. Hér mætast gömul fiskimannahefð, glæsilegar byggingar, fallegar strendur og notalegt bæjarlíf við Atlantshafið.
Við gefum okkur góðan tíma til að rölta um gamla bæinn á eigin hraða, skoða þröngar steinlagðar götur, litlar verslanir og falleg torg eða setjast á kaffihús og fylgjast með mannlífinu. Hér er yndislegt að njóta þess að vera í fríi, án þess að þurfa að flýta sér nokkuð.
Um hádegisbilið stefnum við á að koma saman yfir góðum portúgölskum hádegisverði. Þar fáum við tækifæri til að njóta staðbundinna kræsingar í góðum félagsskap.
Síðdegis verður frjáls tími til að njóta bæjarins. Þeir sem vilja geta gengið meðfram sjónum að Boca do Inferno, stórbrotinni klettamyndun þar sem Atlantshafsöldurnar hafa í aldanna rás sorfið sig inn í klettana. Aðrir geta haldið áfram að skoða bæinn, notið kaffihúsamenningarinnar, skoðað í verslanir eða farið aftur á hótelið og slakað á.
Þetta verður notalegur dagur þar sem við leyfum okkur einfaldlega að njóta lífsins í þessum fallega bæ Cascais.



Dagur 6 – Þriðjudagur 2. mars
Lissabon, litrík hverfi, portúgalskar kræsingar og heillandi borgarlíf.
Í dag ætlum við að njóta þess sem Lissabon hefur upp á að bjóða! Þessi heillandi höfuðborg er full af lífi og litum, með þröngum steinlögðum götum, fallegum húsum skreyttum litríkum flísum, gömlum sporvögnum og notalegum torgum þar sem mannlífið blómstrar. Hér er alltaf eitthvað spennandi handan við næsta horn.
Við ætlum að skoða borgina á skemmtilegan og svolítið óvenjulegan hátt, á litlum tuk-tuk bílum! Íslenskur leiðsögumaður tekur á móti okkur og næstu þrjár klukkustundirnar brunum við um hæðir og hlykkjóttar götur Lissabon, skoðum gömlu borgarhverfin og stoppum á fallegum stöðum til að njóta útsýnisins. Við gefum okkur líka góðan tíma til að rölta um, fylgjast með mannlífinu og jafnvel setjast niður og fá okkur eitthvað gott í glas.
Og auðvitað ætlum við að leyfa bragðlaukunum að njóta sín! Á leiðinni stoppum við til að smakka ýmsar portúgalskar kræsingar og kynnast matarmenningu landsins.
Ferðinni lýkur á góðum stað þar sem hægt verður að fá sér hádegisverð. Eftir það tekur við frjáls tími til að njóta borgarinnar á eigin vegum. Kannski freistar þess að rölta um verslunargöturnar, finna lítið kaffihús í sólinni eða einfaldlega setjast niður og fylgjast með lífinu í þessari heillandi borg.
Seinni part dags höldum við aftur til Cascais, vonandi með bros á vör og fullt af skemmtilegum minningum frá Lissabon.



Dagur 7 – Miðvikudagur 3. mars
Meira af töfrandi umhverfi Sintra, skógar, leyndir garðar og ævintýraleg höll.
Í dag bíður okkar síðasta gönguferðin og hún verður sannarlega ekki af verri endanum! Við höldum aftur inn í gróskumikinn Sintra fjallgarðinn þar sem dularfullir skógar, fallegir garðar og sögulegar byggingar skapa nær ævintýralega umgjörð. Gönguleiðin nefnist "The Unexpected Gardens" og á leiðinni kynnumst við tveimur afar ólíkum stöðum sem eiga það sameiginlegt að vera einstaklega heillandi.
Fyrst heimsækjum við Convento dos Capuchos, lítið klaustur frá 16. öld sem er nánast falið inni í skóginum. Hér lifðu munkar við ótrúlega einfaldar aðstæður, í litlum vistarverum þar sem korkur var meðal annars notaður til einangrunar. Klaustrið og náttúran í kring mynda einstaka heild þar sem gróður, mosavaxnir steinar og gömul tré skapa kyrrlátt og næstum dularfullt andrúmsloft.
Síðan liggur leiðin áfram um fallega skógarstíga að Monserrate, einum stórkostlegasta garði Portúgals og sannkallaðri perlu rómantísku stefnunnar. Garðurinn er talinn eitt fegursta dæmi Evrópu um landslagsgarð frá Viktoríutímanum og hér hefur verið skapaður ævintýralegur heimur með framandi trjám og plöntum frá öllum heimshornum, litlum lækjum, fossum og gróðursælum göngustígum. Hvert sem litið er blasir eitthvað nýtt við og það er auðvelt að gleyma sér í þessari grænu paradís.
Í miðjum garðinum stendur hin undurfagra Palácio de Monserrate, höll sem sameinar ólíka byggingarstíla á einstaklega heillandi hátt. Rómantískt yfirbragð staðarins heillaði meðal annars enska skáldið Lord Byron, sem gerði Monserrate ódauðlegt í skrifum sínum. Hér er eins og við stígum inn í annan heim, þar sem náttúra, list og byggingarlist renna saman í eina stórkostlega heild.
Við gefum okkur góðan tíma til að njóta garðanna og ætlum að taka með okkur gott nesti sem við borðum í þessu fallega umhverfi, ef veður leyfir. Ef veðrið verður ekki með okkur í liði setjumst við þess í stað niður yfir notalegum hádegisverði á veitingastað í garðinum.
Þetta verður yndislegur lokadagur í náttúru Sintra, þar sem við njótum einstakrar fegurðar, áhugaverðrar sögu og góðrar samveru.
Gönguvegalengd: um 10 km.



Dagur 8 – Fimmtudagur 4. mars
Kveðjum Portúgal með góðar minningar í farteskinu.
Nú er komið að lokum þessarar yndislegu ferðar og tímabært að kveðja fallegu portúgölsku ströndina. Eftir fjölbreytta daga í stórbrotinni náttúru, heillandi bæjum og góðum félagsskap höldum við heim á leið, vonandi endurnærð og með fullt af skemmtilegum minningum í farteskinu.
Eftir morgunverð á hótelinu leggjum við af stað til flugvallarins í Lissabon, þar sem flug Icelandair til Keflavíkur er kl. 14:00. Áætluð lending á Íslandi er kl. 18:30.
Gisting:
Longevity Senses Cascais ★★★★★
Lúxus, kyrrð og vellíðan við Atlantshafið.
Það er ekki á hverjum degi sem maður fær að dvelja á hóteli þar sem allt virðist hannað til að láta manni líða vel. Í þessari ferð ætlum við að gera sérstaklega vel við okkur og gista allar sjö næturnar á hinu glæsilega fimm stjörnu Longevity Senses Cascais Boutique Hotel & Clinic, sannkölluðum sælureit við Atlantshafið.
Hótelið stendur á fallegum stað milli Cascais og Guincho, umkringt gróðursælum görðum og með stórkostlegt útsýni yfir hafið. Þetta er lítið og einstaklega vandað lúxushótel, eingöngu ætlað fullorðnum gestum, þar sem rólegt andrúmsloft, persónuleg þjónusta og glæsileg hönnun skapa notalega umgjörð um dvölina.
Herbergin eru fallega innréttuð með þægindi og vellíðan í fyrirrúmi. Hótelið er aðeins með 39 herbergi og svítur og því er stemningin mun persónulegri en á stórum hótelum.
Eftir dag í fallegri náttúru Sintra eða á ferð um portúgölsku strandlengjuna er yndislegt að koma aftur á hótelið og njóta þess sem það hefur upp á að bjóða. Hér er glæsileg heilsulind með upphitaðri innisundlaug, gufubaði, tyrknesku baði og ýmiss konar slökunaraðstöðu. Einnig er útisundlaug með saltvatni, heitur pottur og vel búin líkamsræktaraðstaða. Þeir sem vilja dekra enn meira við sig geta bókað nudd eða aðrar vellíðunarmeðferðir.
Á veitingastað hótelsins, Sea Senses, er lögð áhersla á ferskt hráefni, portúgalska matargerð og bragðgóða Miðjarðarhafsrétti, allt í fallegu umhverfi með útsýni yfir Atlantshafið.
Longevity Senses er miklu meira en bara staður til að gista. Hér gefst okkur tækifæri til að njóta kyrrðarinnar, hlúa að okkur sjálfum og hlaða batteríin á milli ævintýralegra daga.
Það er erfitt að hugsa sér fallegri stað til að kalla heimili okkar þessa viku í Portúgal.





%20(1).jpg)
VERÐ og skilmálar
VERÐ KR 486.900- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI.
Aukalega KR 62.700,- MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.
Innifalið í verði:
-
Flug með Icelandair til og frá Lissabon með 23 kg. farangursheimild
-
Allur akstur samkvæmt dagskrá
-
Gisting í 7 nætur á 5 * Longevity Senses hótelinu í Cascais
-
Morgunverður alla daga
-
Kvöldverður alla daga á hótelinu
-
3 hádegisverðir
-
Vínsmökkun
-
Gönguferðir með staðarleiðsögn
-
30 mín morgunjóga hvern dag
-
Skoðunarferðir í Cascais, Sintra og Lissabon
-
Íslensk fararstjórn
Ekki Innifalið í verði:
-
Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)
-
Drykkir með mat
-
Allar máltíðir sem ekki eru upp taldar hér að ofan
Skilmálar:
-
Staðfestingargjald kr. 100.000,- greiðist við bókun
-
Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför
-
Allar greiðslur eru óendurkræfar
Erfiðleikastig og kröfur:
-
-
Nauðsynlegt er að þátttakendur geti auðveldlega gengið 15 km með lítilli hækkun. Athuga að undirlag er ekki slétt.
★☆☆☆☆
BREYTINGAR Á DAGSKRÁ:
Athugið að ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta dagskrárliðum ef þurfa þykir.
Líkamleg geta og þátttaka í ferðum Heillandi Heims
Í ferðum þar sem gert er ráð fyrir göngu, hjólreiðum eða annarri líkamlegri hreyfingu er mikilvægt að þátttakendur hafi þá líkamlegu getu og færni sem fram kemur í lýsingu viðkomandi ferðar. Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að meta hvort heilsa þeirra, þol og færni séu í samræmi við þær kröfur sem ferðin gerir.
Ef í ljós kemur á meðan á ferð stendur að þátttakandi uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til þátttöku, eða getur ekki tekið þátt í dagskrá með þeim hætti að öryggi hans sjálfs eða annarra sé tryggt eða að framkvæmd ferðarinnar raskist verulega, áskilur Heillandi Heimur sér rétt til að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar teljast.
Slíkar ráðstafanir geta meðal annars falist í því að þátttakandi sleppi einstökum dagskrárliðum, fari styttri eða auðveldari leið þar sem það er mögulegt, nýti annan ferðamáta eða hætti þátttöku í viðkomandi dagskrárlið eða í ferðinni í heild sinnni.
Kostnaður sem kann að falla til vegna slíkra breytinga eða sérstakra ráðstafana, svo sem vegna leigubíls, einkaflutnings eða annarrar þjónustu sem ekki er innifalin í ferðinni, er á ábyrgð þátttakanda. Ef meina þarf þátttakenda að dagskrá ferðar gilda enn reglur afbókunar, greiðslur sem inntar hafa verið af hendi eru ekki endurgreiddar.

