
Tansanía og Zanzibar
Heillandi Heimur kynnir einstaka ferð til Tansaníu og Zanzibar.
Þetta er ferð þar sem náttúran er stórbrotin, sagan persónuleg og upplifunin nær langt út fyrir hefðbundnar ferðamannaslóðir.
Þar sem ferðin verður að sögu.
26 janúar - 7 febrúar 2027
13 dagar
ATH. lágmarksþátttaka eru 8 manns og hámark 14 manns.
Ævintýraferð til Tansaniu og Zanzibar 2027.
Einstök ferð með Dr. Önnu Elísabetu Ólafsdóttur sem tengdist um árabil Tansaníu, byggði þar upp Tanzanice Farm þar sem við munum dvelja. Hún mun deila með okkur reynslu sinni af landi og þjóð sem gerir ferðina persónulega og einstaka.
✨ Land þar sem náttúran er stórbrotin og dýralífið einstakt.
Ferðin er sambland af menningu, safarí, sögu og slökun.
VERÐ KR. 599.500, - á mann miðað við 2 fullorðna í herbergi
ATH - flug er EKKI innifalið í þessari ferð en við aðstoðum við að bóka flug sé þess óskað.
Besta flugið er í gegnum Amsterdam til Kilimanjaro flugvallar og svo beint frá Zanzibar heim í gegnum Amsterdam. Flug með KLM til/frá Amsterdam.

Upplýsingar um ferðina veitir Harpa - harpa@heillandiheimur.is
sími 8223890
Tansanía með Dr. Önnu Elísabetu
Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir verður með okkur í för að hluta til í Tanzaniu.
Dr. Anna Elísabet var um árabil í Tansaníu þar sem hún og fjölskyldan keyptu land og byggðu upp og ráku Tanzanice Farm Lodge. Á þeim tíma kynntist hún vel landi, menningu og samfélagi á þann hátt sem aðeins fæst með því að lifa og starfa meðal heimafólks. Í þessari ferð deilir hún ekki aðeins þekkingu sinni á landinu heldur einnig persónulegum sögum og reynslu sem gera ferðina einstaka.
Anna Elísabet er höfundur bókarinnar "Ég vildi að ég hefði fæðst strákur", þar sem hún fjallar á áhrifamikinn hátt um líf og stöðu kvenna í Tansaníu. Hún vinnur nú að nýrri bók sem segir frá eigin lífsreynslu, uppbyggingu Tanzanice Farm og þeim áskorunum, gleðistundum og lærdómi sem fylgdu því að skapa sér líf í Austur-Afríku. Þátttakendur í ferðinni fá því ekki aðeins að upplifa stórbrotna náttúru og einstakt dýralíf í Tansaníu heldur einnig að kynnast landinu í gegnum reynslu manneskju sem hefur dvalið í landinu, starfað og byggt upp tengsl við samfélagið. Þetta gerir ferðina að upplifun sem nær langt út fyrir hefðbundna safaríferð.
„Tansanía kenndi mér að lífið snýst ekki aðeins um hvert við förum, heldur fólkið sem við mætum á leiðinni. Ég hlakka til að deila þessum stað með ykkur.“
– Anna Elísabet Ólafsdóttir
Fararstjórn:
Íslenskur fararstjóri er eigandi ferðaskrifstofunnar Heillandi Heimur, Harpa Einarsdóttir. Hún hefur mikla reynslu af skipulagningu ferða og hefur ferðast með hópa vítt og breytt um heiminn.



Þetta er ekki hefðbundin safaríferð.
Þetta er ferð fyrir þá sem vilja upplifa Tansaníu af dýpri skilningi – náttúruna, fólkið, menninguna og sögurnar sem leynast á bak við stórbrotið landslagið.
Við hefjum ferðina við rætur Kilimanjaro þar sem við njótum kyrrðarinnar í Moshi. Við heimsækjum hina fallegu Chemka Hot Springs, náttúruperlu með kristaltæru lindarvatni. Chemka-lindin er þekkt fyrir kristaltært, túrkísblátt vatn sitt sem umkringt er gróskumiklum gróðri og tignarlegum fíkjutrjám. Hún er sannkölluð náttúruperla og fullkominn staður til að slaka á og njóta kyrrðarinnar.
Þaðan liggur leiðin inn í hjarta Tansaníu. Á leiðinni heimsækjum við heimafólk, kaffibýli og litlar byggðir þar sem daglegt líf fær að njóta sín. Við dveljum á Tanzanice Farm, einstökum stað sem íslenska athafnakonan Dr. Anna Elísabet og fjölskylda byggði upp af ástríðu fyrir landi og fólki.
Ferðin nær síðan hámarki á sléttum Ndutu og í Ngorongoro-gígnum, þar sem við erum á besta tíma ársins til að fylgjast með burðartíma gnýa. Hundruð þúsunda dýra safnast þar saman og rándýrin fylgja í kjölfarið, sem gerir þetta að einni mögnuðustu náttúruupplifun sem Afríka hefur upp á að bjóða.
Þar eru miklar líkur á að sjá ljón, fíla, hlébarða, blettatígra, gíraffa, sebrahesta og ótal önnur villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi.
Á ferðalaginu deilir Dr. Anna Elísabet reynslu sinni af lífi í Tansaníu og veitir einstaka innsýn í menningu, samfélag og daglegt líf landsins, upplifun sem gerir þessa ferð ólíka hefðbundnum safaríferðum.
Að loknu safariævintýri kveðjum við Önnu Elísabetu og höldum til Zanzibar, þar sem við dveljum við eina fallegustu strönd eyjarinnar.
Á Zanzibar tekur við allt annar taktur; hvítar sandstrendur, grænblátt haf, ilmandi kryddgarðar og heillandi Stone Town, þar sem menningarheimar Afríku, Arabíu og Austurlanda hafa mæst um aldir. Þar gefst tími til að slaka á, njóta strandlífsins og rifja upp allar þær ógleymanlegu upplifanir sem ferðin hefur fært okkur.
Þetta er ferð þar sem ævintýri, náttúra, menning og afslöppun mynda eina ógleymanlega heild.





.jpeg)
.jpeg)


Hápunktar ferðarinnar
🦁 Safari á besta tíma ársins í Ndutu
🐘 Heilsdags safari í Ngorongoro-gígnum
🌿 Dvöl á Tanzanice Farm með Dr. Önnu Elísabetu
🌍 Innsýn í daglegt líf og menningu Tansaníu
☕ Heimsókn á kaffibýli og í þorp heimamanna
Heimsókn til Hadzabe fólksins.
🌴 Þriggja nátta dvöl á Zanzibar
⛵ Dhow-sigling við sólsetur
🌺 Kryddgarðar Zanzibar og Stone Town


Fyrir hverja er þessi ferð:
Þessi ferð hentar þeim sem vilja meira en hefðbundið safari.
Hún er fyrir ferðalanga sem vilja upplifa náttúru, menningu og mannleg tengsl á sama tíma.
Ferðin hentar vel einstaklingum, pörum og vinahópum sem vilja ferðast í litlum hópi og njóta fyrsta flokks leiðsagnar.


Gist verður á eftirtöldum stöðum:
Kilimanjaro Wonders hotel 4* Moshi
Tanzanice farm, Karatu
Ndutu lodge, Serengiti
Kendwa Rocks Beach Resort, Zanzibar








Innifalið í verði:
-
Gisting sbr upplýsingar hér að ofan.
-
Flug frá Arusha/Kilimanjaro til Zanzaibar
-
Allur akstur samkvæmt dagskrá
-
4x4 safaribifreið með reyndum leiðsögumönnum
-
Allur aðgangur að þjóðgörðum
-
Safari í Ngorongoro-gígnum og á Ndutu sléttunum
-
Chemka Hot Springs dagsferð
-
Heimsókn í Mto wa Mbu og kaffibýli
-
Kryddgaraðaferð á Zanzibar
-
Leiðsögn um Stone town.
-
Dhow sunset cruise
-
Morgunverður alla daga
-
Hádegisverður alla daga nema einn.
-
Kvöldverður innifalinn alla daga .
-
Íslensk fararstjórn
Skilmálar
Staðfestingargjald kr 130.000 við skráningu er óendurkræft.
Lokagreiðsla greiðist eigi síðar en 1. desember 2026
AFBÓKUNARSKILMÁLAR:
-
Allar greiðsur eru óendurkræaar
Ekki innifalið:
-
Flug til og frá Íslandi til Tansaniu
-
Drykkjarföng
-
Þjórfé til töskubera, þjóna, leiðsögumanna, kokka og bílstjóra
-
Ferða- og forfallatryggingar
-
Vegabréfsáritun
VERÐ KR 599.500,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI
Ítarleg dagskrá:
Dagur 1 – Þriðjudagur 26. janúar
Velkomin til Tansaníu
Flug með KLM til Kilimanjaro International Airport. Við komuna tekur fararstjóri á móti hópnum og ekið verður til Moshi, bæjarins við rætur Kilimanjaro.
Innritun á Kili Wonders Hotel þar sem við njótum kvöldverðar og hvílum okkur eftir ferðalagið.
Gisting: Kili Wonders Hotel, Moshi.
Dagur 2 – Miðvikudagur 27. janúar
Chemka Hot Springs
Eftir morgunverð liggur leiðin um sveitir Kilimanjaro-héraðsins að hinni fallegu Chemka Hot Springs.
Við njótum dagsins við kristaltæra lindina þar sem hægt er að synda, slaka á undir stórum trjám, fylgjast með fuglalífi og einfaldlega njóta kyrrðarinnar.
Hádegisverður verður borinn fram við lindina áður en haldið er aftur til Moshi síðdegis.
Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Gisting: Kili Wonders Hotel.
Dagur 3 – Fimmtudagur 28. janúar
Moshi – Mto wa Mbu – Tanzanice Farm
Eftir morgunverð höldum við af stað í átt að Karatu.
Á leiðinni heimsækjum við menningarmiðstöð og listagallerí áður en við stoppum í þorpinu Mto wa Mbu, þar sem við kynnumst kaffirækt, kaffivinnslu og daglegu lífi heimamanna.
Hádegisverður verður á staðnum áður en haldið er áfram á Tanzanice Farm, sem verður heimili okkar næstu daga.
Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Gisting: Tanzanice Farm.
Dagur 4 – Föstudagur 29. janúar
Ngorongoro-gígurinn
Í dag heimsækjum við eitt magnaðasta náttúruundur Afríku – Ngorongoro-gíginn.
Við förum í heilsdags safarí þar sem góðar líkur eru á að sjá ljón, fíla, buffalóa, flóðhesta, sebrahesta og jafnvel nashyrninga.
Nestishádegisverður verður snæddur inni í þjóðgarðinum.
Síðdegis höldum við aftur til Tanzanice Farm.
Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Gisting: Tanzanice Farm.
Dagur 5 – Laugardagur 30. janúar
Serengeti – Ndutu
Eftir morgunverð höldum við inn í Serengeti með dýraskoðun á leiðinni.
Við komum á Ndutu Lodge, sem er staðsett á einu besta svæði Afríku til að fylgjast með burðartíma gnúa.
Ef tími leyfir förum við í síðdegissafarí áður en kvöldverður er snæddur á hótelinu.
Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Gisting: Ndutu Lodge.
Dagur 6 – Sunnudagur 31. janúar
Heill dagur á safari í Ndutu
Heill dagur verður helgaður safaríi á Ndutu-sléttunum.
Á þessum árstíma fyllast slétturnar af gnúum, sebrahestum og nýfæddum dýrum. Rándýrin fylgja hjörðunum og því eru miklar líkur á ógleymanlegum náttúruupplifunum.
Hádegisverður verður snæddur úti í náttúrunni.
Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Gisting: Ndutu Lodge.
Dagur 7 – Mánudagur 1. febrúar
Ndutu – Tanzanice Farm
Eftir morgunsafarí höldum við af stað til Karatu.
Á leiðinni njótum við enn einnar dýraskoðunar áður en við komum aftur á Tanzanice Farm síðdegis.
Kvöldið verður notalegt þar sem Anna segir frá lífi sínu í Tansaníu og uppbyggingu Tanzanice Farm.
Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Gisting: Tanzanice Farm.
Dagur 8 – Þriðjudagur 2. febrúar
Heimsókn til Hadzabe-fólksins
Eftir morgunverð leggjum við af stað í einstaka menningarupplifun þar sem við heimsækjum Hadzabe-fólkið, eitt síðasta samfélag veiðimanna og safnara í Austur-Afríku.
Hadzabe-fólkið hefur í þúsundir ára lifað í nánum tengslum við náttúruna og varðveitt lífshætti sem hafa lítið breyst í tímans rás. Í heimsókninni fáum við innsýn í daglegt líf þeirra, hefðir og menningu og fræðumst um hvernig þeir nýta náttúruna til lífsviðurværis.
Markmið heimsóknarinnar er að kynnast menningu þeirra af virðingu og skilningi og fá betri innsýn í fjölbreytileika samfélaga Tansaníu.
Eftir heimsóknina snúum við aftur á Tanzanice Farm þar sem gefst tími til að slaka á og njóta kyrrðarinnar áður en ferðinni er haldið áfram.
Dagur 9 – Miðvikudagur 3. febrúar
Kyrrð og menning
Dagurinn er rólegur og gefur tækifæri til að njóta umhverfisins á Tanzanice Farm.
Boðið verður upp á létta dagskrá, gönguferð eða heimsókn í nærliggjandi samfélag. Einnig verður kynnt samfélagsverkefni sem Heillandi Heimur styður.
Þetta er góður dagur til að slaka á og njóta afrísks sveitalífs.
Máltíðir: Morgunverður og kvöldverður.
Gisting: Tanzanice Farm.
Dagur 10 – Fimmtudagur 4. febrúar
Arusha – Zanzibar
Eftir morgunverð kveðjum við meginland Tansaníu og ökum til Arusha.
Þaðan fljúgum við til Zanzibar þar sem bílstjóri tekur á móti okkur og ekur okkur á Kendwa Rocks Beach Resort.
Það sem eftir lifir dags er frjáls tími til að njóta strandarinnar og Indlandshafsins.
Máltíðir: Morgunverður og kvöldverður.
Gisting: Kendwa Rocks Beach Resort.
Dagur 11 – Föstudagur 5. febrúar
Krydd og Stone Town
Í dag kynnumst við þeirri sögu sem hefur gert Zanzibar heimsþekkta.
Við heimsækjum kryddgarð þar sem við fræðumst um ræktun ilmkrydda og njótum hefðbundins swahili hádegisverðar.
Síðdegis göngum við um Stone Town, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, og skoðum þröngar götur, markaði og sögulegar byggingar.
Máltíðir: Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður.
Gisting: Kendwa Rocks Beach Resort.
Dagur 12 – Laugardagur 6. febrúar
Slökun og sigling við sólsetur
Dagurinn er frjáls til að njóta strandarinnar, synda í Indlandshafinu eða slaka á við sundlaugina.
Um kvöldið siglum við á hefðbundnum Dhow-seglbáti og njótum stórbrotins sólseturs yfir Indlandshafinu.
Máltíðir: Morgunverður og kvöldverður.
Gisting: Kendwa Rocks Beach Resort.
Dagur 13 – Sunnudagur 7. febrúar
Heimferð
Eftir morgunverð er dagurinn frjáls.
Dagherbergi verða til ráðstöfunar fyrir hópinn þannig að hægt sé að geyma farangur, fara í sturtu og skipta um föt áður en haldið verður á flugvöllinn síðdegis eða um kvöldið.
Að ógleymanlegri ferð lokinni kveðjum við Tansaníu og Zanzibar og höldum heim með minningar sem endast ævilangt.
