
Heillandi Heimur í Kent
Göngu- og menningarferð um eitt fallegasta hérað Suður-Englands
1. - 8. júní 2027
7 NÆTUR
ATH. lágmarksþátttaka eru 12 manns
Sveitasæla, stórbrotin strandlengja og rík saga !
Upplifðu hið sanna England í ferð sem leiðir okkur frá hinum stórbrotnu hvítu klettum Dover um grænar sveitir Kent til miðaldaborgarinnar Canterbury.
Við göngum um fallegt landslag, heimsækjum kastala og dómkirkju, njótum strandlífsins í Whitstable, smökkum vín og bjór frá staðbundnum framleiðendum og sökkvum okkur inn í sögu, menningu og fegurð þessa einstaka héraðs.
Í ferðinni gefst þeim sem vilja einstakt tækifæri til að stinga tánni í Ermarsundið – eða jafnvel taka sundsprett í einu frægasta sundi heims.
✨ Fullkomin blanda af göngum, menningu, stemmingu, náttúru og góðum mat.
VERÐ KR 415.200,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI.
Aukalega KR 67.300,- MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.
Upplýsingar um ferðina veita:
Harpa - harpa@heillandiheimur.is eða sími 822 3890
Rósa Halldórsdóttir - rosa@sensationalworld.is eða sími 661 7041

Erfiðleikastig og kröfur:
-
-
Nauðsynlegt er að þátttakendur geti auðveldlega gengið um 10 km á jafnsléttu.
Göngu- og menningarferð um Kent í Suður-Englandi
✨ Ævintýrið hefst 1. júní 2027með flugi með Icelandair til London Gatwick.
Kent er gjarnan kallað „garður Englands“ og ekki að ástæðulausu. Hér mætast grænar sveitir, hvítir kalkklettar, falleg strandþorp, sögulegar borgir og aldagömul menningararfleifð sem hefur mótað sögu Englands í árhundruð.
Í þessari notalegu göngu- og menningarferð upplifum við það besta sem Kent hefur upp á að bjóða. Við göngum eftir strandstígum með útsýni yfir Ermarsundið, heimsækjum kastala og dómkirkju, röltum um heillandi sjávarþorp, smökkum vín og bjór frá staðbundnum framleiðendum og njótum þess að ferðast á rólegum hraða þar sem tími gefst til að upplifa og njóta.
Við fylgjum hinum frægu hvítu klettum Dover, heimsækjum hinn sögufræga Dover-kastala, göngum um miðaldaborgina Canterbury og kynnumst sjávarstemningunni í Whitstable, sem er þekkt um allt England fyrir ostrur sínar og líflega hafnarmenningu.
Á leiðinni gefst þeim sem vilja einstakt tækifæri til að stinga tánni í Ermarsundið – eða jafnvel taka sundsprett í einu frægasta sundi heims. Við munum svo heimsækja hina sögufrægu White Horse krá, þar sem þeir sem synt hafa Ermarsundið hafa skráð nafn sitt og dagsetningu á sundinu á veggi kráarinnar.
Þetta er ferð fyrir þá sem vilja sameina fallegar göngur, menningu, sögu, góðan mat og einstaka stemningu ensku sveitanna.
Fararstjórar í ferðinni
Rósa Halldórsdóttir.
Rósa er með víðtæka menntun sem kemur sér vel sem fararstjóri. Hún er meðal annars leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.
Harpa Einarsdóttir.
Harpa er eigandi ferðaskrifstofunnar og hefur verið með hópa í ferðum vítt og breytt um heiminn.

Dagskrá ferðarinnar:
Dagur 1 – þriðjudagur 1. júní
Flug með Icelandair frá Keflavík til London Gatwick 10:30 - 14:40.
Við komuna til Englands tekur rúta á móti hópnum og ekið er til strandbæjarins Dover við suðausturströnd landsins.
Eftir innritun á hótelið gefst tími til að slaka á eða kanna nærumhverfið áður en við hittumst öll saman í sameiginlegum kvöldverði og setjum tóninn fyrir komandi daga.
Dagur 2 – miðvikudagur 2. júní
Hvítu klettarnir í Dover.
Við byrjum ferðina á einni fegurstu gönguleið Suður-Englands. Gengið er frá Dover að St. Margaret's Bay eftir stígum sem liggja uppi á hinum heimsfrægu hvítu kalkklettum Dover. Útsýnið yfir Ermarsundið er stórkostlegt og á björtum degi má sjá strendur Frakklands handan hafsins.
Við komum við á hinum skemmtilega bar, Coastguard og fáum okkur hressingu áður en haldið er áfram til St. Margaret þar sem við njótum hádegisverðar á hinum notalega The Smugglers Bar.
Eftir að við komum til baka á hótelið gefst þeim sem vilja einstakt tækifæri til að skella sér til sunds í Ermarsundinu. Fyrir marga verður það sérstök upplifun að synda í sama sundi og þúsundir sundgarpa hafa lagt undir sig í gegnum tíðina.
Gönguvegalengd: um 9 km.



Dagur 3 – fimmtudagur 3. júní
Dover-kastali og Canterbury
Við kveðjum Dover í dag en áður en haldið er áfram gefum við okkur góðan tíma til að skoða eitt merkasta virki Bretlands, Dover kastala (um 20 mín gangur).
Kastalinn hefur staðið vörð yfir ströndinni í nærri tvö þúsund ár og gegnt lykilhlutverki í sögu Englands. Hér má sjá miðaldakastala, neðanjarðargöng og sýningar sem tengjast síðari heimsstyrjöldinni.
Eftir heimsóknina stoppum við á The White Horse, þar sem við fáum okkur hressingu og njótum stemningarinnar. Kráin hefur lengi verið vinsæll viðkomustaður þeirra sem tengjast þessu fræga sundi og á veggjum hennar má finna nöfn og dagsetningar þeirra sem hafa synt yfir Ermarsundið. Að lokum göngum við yfir að Cullin yard þar sem við fáum okkur hádegisverð áður en ekið er til Canterbury.
Við komum okkur fyrir á hótelinu og njótum frjáls tíma í þessari fallegu miðaldaborg.


Dagur 4 – föstudagur 4. júní
Gönguferð til Chartham og vínsmökkun
Við göngum í gegnum hið friðsæla sveitalandslag Kent þar sem leiðin liggur yfir engi og akra eftir gömlum göngustígum.
Áfangastaður dagsins er þorpið Chartham. Þar ætlum við að njóta hádegisverðar á veitingastaðnum Artichoke.
Eftir hádegisverð á hefðbundunni enskri sveitakrá heimsækjum við Chartham vineyards, mjög áhugaverðan vínræktarbúgarð. Þar fáum við kynningu og smökkun á vínunum þeirra áður en ekið er til baka að hótelinu í Canterbury.
Gönguvegalengd: um 7 km.



Dagur 5– laugardagur 5. júní
Canterbury Cathedral og sigling á Great Stour.
Í dag kynnumst við Canterbury betur. Í hjarta borgarinnar stendur hin stórbrotna Canterbury Cathedral, ein mikilvægasta kirkja Bretlands og heimsminjaskrá UNESCO. Dómkirkjan hefur verið miðpunktur trúar- og menningarlífs í Englandi í nærri þúsund ár. Við fáum leiðsögn um kirkjuna ásamt fræðslu um tengingu kirkjunnar við krúnuna.
Eftir heimsókn í dómkirkjuna förum við í skemmtilega siglingu um borgina á ánni Great Stour. Á leiðinni segja leiðsögumenn sögur af Canterbury, íbúum hennar og atburðum sem hafa mótað sögu borgarinnar í gegnum aldirnar.
Að lokum fáum við okkur síðbúinn hádegisverð á mexikanska veitingastaðnum Café des Amis.



Dagur 6– sunnudagur 6. júni
Crab and Winkle Way til Whitstable
Í dag fylgjum við hinni vinsælu gönguleið Crab and Winkle Way, sem tengir Canterbury við strandbæinn Whitstable.
Leiðin liggur um fallegt sveitalandslag áður en komið er niður að ströndinni og inn í einn mest heillandi hafnarbæ Kent.
Whitstable er þekktur fyrir ostrurnar, sjávarrétti og afslappað andrúmsloft. Þar njótum við hádegisverðar á hinum sögufræga Wheelers Oyster Bar, sem margir telja einn notalegasta sjávarréttastað Englands.
Síðdegis gefst tími til að rölta um höfnina og njóta stemningarinnar áður en við tökum strætó aftur til Canterbury.
Gönguvegalengd: um 14 km.
Dagur 7 – mánudagur 7. júni
Frjáls dagur, bjórkynning og kveðjukvöldverður
Njóttu síðasta dagsins í Canterbury á þínum eigin hraða.
Í Canterbury er fjöldinn allur af skemmtilegum söfnum sem eru þess verð að skoða, það er líka mjög skemmtilegt að versla í litlum sérverslunum, fá sér síðdegiste eða einfaldlega njóta andrúmsloftsins í þessari heillandi borg.
Síðdegis hittist hópurinn á ný og tekur þátt í skemmtilegri bjórsmökkun hjá Canterbury Brewers & Distillers, þar sem við kynnumst handverksframleiðslu svæðisins.
Um kvöldið njótum við sameiginlegs kveðjukvöldverðar og rifjum upp eftirminnilega daga í Kent.
Dagur 8 – þriðjudagur 8. júni
Heimferð.
Eftir morgunverð er ekið til London Gatwick flugvallar.
Við kveðjum Kent og höldum heim með dýrmætar minningar um fallegar gönguleiðir, sögufræga staði, góða matarmenningu og hina einstöku stemningu suðurhluta Englands.
Rútan leggur af stað frá hótelinu kl 11.30 og þar förum við með flugi með Icelandair heim 15:40 og áætluð lending kl. 17:55.



Gisting
Gist er á tveimur hótelum:
Fyrstu tvær næturnar er gist á Dover Marina Hotel & SPA, 4ra stjörnu hótel.
Næstu fimm nætur gistum við í Canterbury á Hampton Inn hótelinu. Mjög gott 3ja stjörnu hótel.
VERÐ KR 415.200,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI.
Aukalega KR 67.300,- MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.


Innifalið í verði:
-
Flug með Icelandair til og frá Gatwick. 20 kg. farangursheimild.
-
Allur akstur samkvæmt dagskrá.
-
Heimsókn í Dover kastala.
-
Heimsókn í Canterbury dómkirkjuna með leiðsögn.
-
Sögusigling á The Great Stuhr ánni
-
Vinsmökkun.
-
Bjórkynning.
-
Gisting á hóteli í Dover og Canterbury.
-
Morgunverður alla daga .
-
Hálft fæði sem er morgunverður og ýmist góður hádegisverður eða kvöldverður.
-
Íslensk fararstjórn.
Erfiðleikastig og kröfur:
-
-
Nauðsynlegt er að þátttakendur geti auðveldlega gengið um 10 km á jafnsléttu.
Ekki Innifalið í verði:
-
Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)
-
Drykkir með mat sem er innifalinn
-
Allar máltíðir sem ekki eru upp taldar hér að ofan
Skilmálar:
-
Staðfestingargjald kr. 100.000,- greiðist við bókun
-
Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför
-
Allar greiðslur eru óendurkræfar
Líkamleg geta og þátttaka í ferðum
Í ferðum þar sem gert er ráð fyrir göngu, hjólreiðum eða annarri líkamlegri hreyfingu er mikilvægt að þátttakendur hafi þá líkamlegu getu og færni sem fram kemur í lýsingu viðkomandi ferðar. Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að meta hvort heilsa þeirra, þol og færni séu í samræmi við þær kröfur sem ferðin gerir.
Ef í ljós kemur á meðan á ferð stendur að þátttakandi uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til þátttöku, eða getur ekki tekið þátt í dagskrá með þeim hætti að öryggi hans sjálfs eða annarra sé tryggt eða að framkvæmd ferðarinnar raskist verulega, áskilur Heillandi Heimur sér rétt til að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar teljast.
Slíkar ráðstafanir geta meðal annars falist í því að þátttakandi sleppi einstökum dagskrárliðum, fari styttri eða auðveldari leið þar sem það er mögulegt, nýti annan ferðamáta eða hætti þátttöku í viðkomandi dagskrárlið eða í ferðinni í heild sinnni.
Kostnaður sem kann að falla til vegna slíkra breytinga eða sérstakra ráðstafana, svo sem vegna leigubíls, einkaflutnings eða annarrar þjónustu sem ekki er innifalin í ferðinni, er á ábyrgð þátttakanda. Ef meina þarf þátttakenda að dagskrá ferðar gilda enn reglur afbókunar, greiðslur sem inntar hafa verið af hendi eru ekki endurgreiddar.

Hafðu samband

Hlökkum til að heyra frá þér.
Heillandi Heimur
Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland
info[at]heillandiheimur.is
Sími +354 822 3890
Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is
©2021 Heillandi Heimur
