
Ferðalög sem næra líkama og sál
Fámennar ferðir – hreyfing – menning – náttúra – upplifun
Hjá Heillandi Heimi bjóðum við upp á vandaðar og fjölbreyttar ferðir fyrir fólk sem hefur gaman af því að ferðast, vera á hreyfingu og njóta lífsins. Ferðirnar höfða sérstaklega til virks fólks á besta aldri, sem vill sameina hæfilega hreyfingu, menningu, náttúru og góðan félagsskap.
Við leggjum áherslu á fámennar ferðir, persónulega þjónustu og vel skipulagða dagskrá. Í ferðunum eru að jafnaði tveir fararstjórar sem halda vel utan um hópinn og skapa notalegt og afslappað andrúmsloft.
Hvort sem við göngum um fallega náttúru, hjólum um heillandi sveitir, kynnumst sögu og menningu eða njótum góðs matar, þá er markmiðið alltaf að skapa eftirminnilegar upplifanir. Ferðirnar eru misjafnlega krefjandi og því getur hver og einn valið ferð sem hentar eigin áhuga og getu.
Góð ferð er fjárfesting í eigin vellíðan – bæði andlegri og líkamlegri.
25. febrúar - 4 mars 2027
Upplifðu eitt það besta sem Portúgal hefur upp á að bjóða í einstakri ferð þar sem góð hreyfing, náttúrufegurð, menning og góðir matar- og vínsmökkunardagar fara saman.
10. - 17. apríl 2027
Kent er gjarnan kallað „garður Englands“. Hér mætast grænar sveitir, hvítir kalkklettar, falleg strandþorp, sögulegar borgir og aldagömul menningararfleifð.
Í þessari notalegu göngu- og menningarferð upplifum við það besta sem Kent hefur upp á að bjóða
26 janúr - 7 febrúar 2026
Einstök ferð með Dr. Önnu Elísabetu Ólafsdóttur sem tengdist um árabil Tansaníu, byggði þar upp Tanzanice Farm þar sem við munum dvelja. Hún mun deila með okkur reynslu sinni af landi og þjóð sem gerir ferðina persónulega og einstaka
1. - 8. júní 2027
Upplifðu töfra Cotswolds, eins fegursta héraðs Englands, þar sem mjúkar, grænar hæðir, ævafornir skógar og heillandi þorp með hunangsgulum steinhúsum skapa einstaka umgjörð um gönguferð okkar.





