
Heillandi Heimur í "The Cotswolds" Englandi
Gönguferð um töfrandi sveitir Englands
1. - 8. júní 2027
7 NÆTUR
ATH. lágmarksþátttaka eru 12 manns
Gullin þorp, grænar hæðir og heillandi saga!
Upplifðu töfra Cotswolds, eins fegursta héraðs Englands, þar sem mjúkar, grænar hæðir, ævafornir skógar og heillandi þorp með hunangsgulum steinhúsum skapa einstaka umgjörð um gönguferð okkar.
Við göngum um fyrsta hluta hinnar frægu Cotswold Way, eftir sögufrægum gönguslóðum, í gegnum fallegustu þorp ensku sveitarinnar og yfir hæðir með stórfenglegu útsýni. Á leiðinni kynnumst við ríkri sögu svæðisins, heimsækjum kastala, fornar klausturrústir og minjar frá steinöld.
Ferðinni lýkur með dvöl í hinni glæsilegu borg Bath og heimsókn að Stonehenge, einu merkilegasta fornaldarmannvirki heims.
✨ Dásamleg blanda af göngum, náttúrufegurð, sögu, menningu
og notalegri enskri sveitastemningu.
VERÐ KR 459.500,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI, með hálfu fæði
Aukalega KR 183.400,- MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.
Upplýsingar um ferðina veita:
Rósa Halldórsdóttir - rosa@sensationalworld.is eða sími 661 7041
Harpa - harpa@heillandiheimur.is eða sími 822 3890

Erfiðleikastig og kröfur:
-
-
Nauðsynlegt er að þátttakendur geti auðveldlega gengið um 10 km á jafnsléttu.

Á göngu um eitt fegursta landslag Englands
✨ Ævintýrið hefst 1. júní 2027með flugi með Icelandair til London Heathrow.
Ímyndaðu þér að ganga eftir gömlum sveitastígum, yfir grænar hæðir og í gegnum lítil, sögufræg þorp þar sem tíminn virðist hafa staðið í stað. Gullin steinhús, blómstrandi garðar, notalegar krár og víðáttumikið útsýni yfir enska sveit mynda einstaka umgjörð um þessa heillandi gönguferð.
Við göngum fyrsta og nyrsta hluta hinnar frægu Cotswolds Way, einnar fegurstu lang-gönguleiðar Englands. Leiðin liggur um einstaklega fallegt landslag, yfir aflíðandi hæðir, í gegnum skóglendi og sögufræg þorp þar sem enska sveitamenningin lifir góðu lífi.
Á göngunni kynnumst við meðal annars þorpunum Chipping Campden, Broadway, Stanton og Winchcombe, njótum stórkostlegs útsýnis frá Dover's Hill og Cleeve Hill og heimsækjum merka sögustaði sem segja sögu Englands allt frá steinöld til miðalda.
Að loknum fimm dásamlegum göngudögum höldum við til hinnar glæsilegu borgar Bath, þar sem rómversk saga, fallegur arkitektúr og notalegt borgarlíf taka á móti okkur. Á heimleiðinni heimsækjum við svo eitt frægasta fornaldarmannvirki heims, Stonehenge.
Þetta er ferð fyrir þau sem njóta þess að hreyfa sig í fallegu umhverfi, upplifa nýja staði og gefa sér tíma til að njóta alls þess besta sem ferðalagið hefur upp á að bjóða.
Fararstjórar í ferðinni
Rósa Halldórsdóttir.
Rósa er með víðtæka menntun sem kemur sér vel sem fararstjóri. Hún er meðal annars leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.
Harpa Einarsdóttir.
Harpa er eigandi ferðaskrifstofunnar og hefur verið með hópa í ferðum vítt og breytt um heiminn.

Göngurnar
Við göngum samtals um 50 kílómetra á fimm dögum, með um 1.000 metra samanlagðri hækkun.
Göngurnar eru um 9–11 km á dag og liggja að mestu eftir góðum sveitastígum, graslendi og gönguleiðum um hæðir Cotswolds. Á köflum eru brattari brekkur, bæði upp og niður, og undirlag getur verið ójafnt eða hált eftir veðri.
Ferðin hentar fólki sem er vant reglulegri hreyfingu og hefur góða göngugetu. Mikilvægt er að þátttakendur geti gengið daglega í nokkrar klukkustundir, einnig í brekkum og á ójöfnu undirlagi.
Við göngum á þægilegum hraða, gefum okkur tíma til að njóta útsýnisins og stoppum reglulega til að skoða áhugaverða staði á leiðinni.
Farangurinn okkar er fluttur á milli gististaða á meðan við göngum, þannig að við þurfum aðeins að bera lítinn dagpoka með því nauðsynlegasta.

Dagskrá ferðarinnar:
Dagur 1 – þriðjudagur 1. júní
Flug með Icelandair frá Keflavík til London Heathrow 07:40 - 11:55.
Velkomin í Cotswolds – enska sveitasælan bíður
Við fljúgum frá Keflavík til London Heathrow þar sem rúta bíður okkar og ekur með okkur inn í hjarta Cotswolds, eins fallegasta sveitahéraðs Englands.
Áfangastaðurinn er Broadway, einstaklega heillandi þorp sem oft er kallað gimsteinn Cotswolds. Hér taka á móti okkur falleg gömul steinhús, notalegar verslanir, kaffihús og sannkölluð ensk sveitastemning.
Við komum okkur fyrir á hótelinu okkar þar sem við dveljum næstu þrjár nætur og njótum þess að vera komin í þetta fallega umhverfi.
Dagur 2 – miðvikudagur 2. júní
Chipping Campden – Broadway | Grænar hæðir og stórfenglegt útsýni
Fyrsti göngudagurinn hefst í Chipping Campden, einum fallegasta og best varðveitta bæ Cotswolds, þar sem glæsileg hús úr gullitum kalksteini minna á velmegun fyrri alda.
Við fylgjum Cotswold Way upp á Dover's Hill, þar sem víðáttumikið útsýni opnast yfir sveitirnar, og höldum áfram að Broadway Tower, einum þekktasta útsýnisstað héraðsins. Hér gefst tími til að skoða turninn og njóta útsýnisins áður en við göngum niður grænar hlíðarnar til Broadway.
Ganga um 10 km | Hækkun um 173 mtr.
Ferðast í góðum félagsskap
Hjá Heillandi Heimi leggjum við áherslu á litla hópa, persónulega þjónustu og notalega stemningu. Við viljum að ferðalagið sé ekki aðeins fallegir staðir og skemmtileg dagskrá, heldur líka tími til að njóta, upplifa og eignast góðar minningar í skemmtilegum félagsskap.
Komdu með okkur í heillandi gönguævintýri um Cotswolds – þar sem náttúra, saga og enska sveitasælan mætast.



Dagur 3 – fimmtudagur 3. júní
Broadway – Wood Stanway | Gullin þorp og sögufrægar sveitir
Við göngum um grænar hæðir og fallegt sveitalandslag, fram hjá fornu járnaldarvirki og niður í Stanton, þar sem gullin steinhús og blómstrandi garðar skapa einstaka stemningu.
Leiðin liggur áfram um sveitirnar að Stanway Estate, sögufrægri landeign þar sem finna má einn hæsta þyngdaraflsknúna gosbrunn heims. Göngunni lýkur í litla þorpinu Wood Stanway og þaðan höldum við aftur á hótelið okkar í Broadway.
Ganga um 10,5 km | Hækkun um 248 mtr.



Dagur 4 – föstudagur 4. júní
Wood Stanway – Winchcombe | Klausturrústir og konungleg saga
Í dag göngum við um fallegt og fjölbreytt landslag þar sem víðáttumikið útsýni opnast yfir Evesham-dalinn og Malvern-hæðirnar í fjarska.
Á leiðinni heimsækjum við Hailes Abbey, rústir merkilegs klausturs frá 13. öld, áður en við höldum áfram eftir gömlum sveitastígum til Winchcombe.
Þar bíður okkar heimsókn í hinn glæsilega Sudeley Castle, sem tengist konungssögu Englands með sérstökum hætti. Hér hvílir Catherine Parr, síðasta eiginkona Hinriks VIII, og fallegir kastalagarðarnir eru sannkölluð augnayndi.
Ganga um 9 km | Hækkun um 172 mtr.



Dagur 5– laugardagur 5. júní
Winchcombe – Cleeve Hill | Fornar minjar og hæsti tindur Cotswolds
Við leggjum af stað frá Winchcombe og göngum um fallegar sveitir að Belas Knap, tilkomumiklum grafhaug frá nýsteinöld sem er um 5.000 ára gamall.
Leiðin liggur áfram um skóglendi og grænar hæðir áður en við komum upp á Cleeve Hill, hæsta punkt Cotswolds, í um 330 metra hæð yfir sjávarmáli.
Héðan er stórfenglegt útsýni yfir Cheltenham, Severn-dalinn og allt til hæðanna í Wales þegar skyggni er gott.
Ganga um 11 km | Hækkun um 330 mtr.



Dagur 6– sunnudagur 6. júní
Cleeve Hill – Dowdeswell | Víðáttur og friðsæl náttúra
Síðasti göngudagurinn leiðir okkur yfir víðáttumikið graslendi Cleeve Common, þar sem við njótum enn á ný stórkostlegs útsýnis yfir sveitirnar.
Við göngum um Bill Smylie's Butterfly Reserve, friðland fiðrilda, og áfram eftir kyrrlátum sveitastígum áður en leiðin liggur niður í gegnum fallegt skóglendi Dowdeswell Wood.
Þar lýkur fimm dásamlegum göngudögum um Cotswolds og við höldum til hinnar sögufrægu borgar Bath, þar sem við gistum næstu tvær nætur.
Ganga um 9 km | Hækkun um 99 mtr.



Dagur 7 – föstudagur 16. apríl
Bath | Rómverskur glæsileiki og notalegt borgarlíf
Í dag njótum við þess að vera í Bath, einni sögufrægustu borg Englands, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.
Borgin er þekkt fyrir glæsilegan arkitektúr, rómversku baðhúsin og einstaka stemningu. Hér gefst góður tími til að skoða merka staði, rölta um fallegar götur, líta inn í verslanir og njóta lífsins á notalegum kaffihúsum.
Eftir göngudagana í Cotswolds er dásamlegt að eiga afslappaðan dag í þessari einstöku borg.
Dagur 8 – laugardagur 17. apríl
Stonehenge | Leyndardómar fornaldar og heimferð
Eftir morgunverð kveðjum við Bath og höldum í átt að London. Á leiðinni heimsækjum við Stonehenge, eitt frægasta og dularfyllsta fornaldarmannvirki heims.
Þessi stórbrotni steinhringur var reistur fyrir um 4.500 árum og hefur um aldir vakið undrun og forvitni. Við gefum okkur góðan tíma til að skoða þetta einstaka mannvirki og kynnast sögu þess.
Að heimsókn lokinni höldum við áfram til Heathrow-flugvallar og fljúgum heim til Íslands, ríkari af fallegum minningum um grænar hæðir, heillandi þorp og sögufrægar slóðir Englands.
Rútan leggur af stað frá hótelinu kl 11.30 til Heathrow þaðan sem við fljúgum heim með Icelandair kl. 21:25 og áætluð lending er kl. 23:35.



Gisting
Í ferðinni gistum við á völdum hótelum í Cotswolds og Bath þar sem lögð er áhersla á þægindi, góða þjónustu og notalegt umhverfi.
Gist er á þremur hótelum (ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta um hótel ef þurfa þykir):
Fyrstu þrjár næturnar er gist á 4* Fish hotel í Broadway, Cotswolds.
Næstu tvær nætur gistum við á 5* Ellensborough Park hotel í Cheltenham.
Að lokum gistum við í tvær nætur á 4* Hampton by Hilton hótelinu í Bath.
VERÐ KR 459.500,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI, með hálfu fæði
Aukalega KR 183.400,- MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.



Innifalið í verði:
-
Flug með Icelandair til og frá Heathrow. 23 kg. farangursheimild.
-
Allur akstur samkvæmt dagskrá.
-
Gisting í 7 nætur á 4ra og 5 stjörnu hótelum með morgunverði.
-
Fimm hádegisverðir
-
Tveir kvöldverðir
-
Aðgangur að Broadway Tower, Hailes Abbey, Sudeley Castle og Stonehenge
-
Íslensk fararstjórn.
Ekki Innifalið í verði:
-
Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)
-
Drykkir með mat sem er innifalinn
-
Allar máltíðir sem ekki eru upp taldar hér að ofan
Skilmálar:
-
Staðfestingargjald kr. 100.000,- greiðist við bókun
-
Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför
-
Allar greiðslur eru óendurkræfar
Erfiðleikastig og kröfur:
-
-
Nauðsynlegt er að þátttakendur geti auðveldlega gengið um 10 km á jafnsléttu.

Líkamleg geta og þátttaka í ferðum
Í ferðum þar sem gert er ráð fyrir göngu, hjólreiðum eða annarri líkamlegri hreyfingu er mikilvægt að þátttakendur hafi þá líkamlegu getu og færni sem fram kemur í lýsingu viðkomandi ferðar. Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að meta hvort heilsa þeirra, þol og færni séu í samræmi við þær kröfur sem ferðin gerir.
Ef í ljós kemur á meðan á ferð stendur að þátttakandi uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til þátttöku, eða getur ekki tekið þátt í dagskrá með þeim hætti að öryggi hans sjálfs eða annarra sé tryggt eða að framkvæmd ferðarinnar raskist verulega, áskilur Heillandi Heimur sér rétt til að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar teljast.
Slíkar ráðstafanir geta meðal annars falist í því að þátttakandi sleppi einstökum dagskrárliðum, fari styttri eða auðveldari leið þar sem það er mögulegt, nýti annan ferðamáta eða hætti þátttöku í viðkomandi dagskrárlið eða í ferðinni í heild sinnni.
Kostnaður sem kann að falla til vegna slíkra breytinga eða sérstakra ráðstafana, svo sem vegna leigubíls, einkaflutnings eða annarrar þjónustu sem ekki er innifalin í ferðinni, er á ábyrgð þátttakanda. Ef meina þarf þátttakenda að dagskrá ferðar gilda enn reglur afbókunar, greiðslur sem inntar hafa verið af hendi eru ekki endurgreiddar.
