
DEKURFERÐ TIL GRIKKLANDS
GRÍSKA PARADÍSAREYJAN AMORGOS
26. APRÍL - 4. MAÍ 2022
8 NÆTUR
.jpg)
Frábær ferð á ævintýralegu verði á þessa grísku paradísareyju.
Skoðunarferðir, jóga, gönguferðir, hinn dásamlegi gríski matur, nudd, slökun, matreiðslunámskeið, dans og gleði.
Innifalið í verði:
* Gisting á 4* hóteli í Aþenu
* Gisting á 5* SPA hóteli á Amorgos
* Sigling frá Aþenu til Amorgos
* Allur akstur
* Allar skoðunarferðir með leiðsögn samkvæmt dagskrá
* Morgunverður og kvöldverður alla daga
* Nudd
* Jóga á hverjum morgni á hótelinu á Amorgos
VERÐ KR. 198.700,- á mann miðað við 2 fullorðna í herbergi
(ATH flug EKKI innnifalið en við aðstoðum við að bóka flug ef óskað)
Dekurferð á grísku paradísareyjuna Amorgos
Dekur, jóga, náttúra, yndislegur matur og gleði!
Okkur hefur nú boðist með stuttum fyrirvara þetta frábæra tilboð á hinu dásamlega 5 stjörnu Aegialis Hotel & Spa 5 á Amorgos. 8 daga ferð til Grikklands, Aþena - Amorgos. Tilvalið fyrir pör, vinahópa eða vinkvennahóp að stökka á þetta tilboð og skella sér saman í dekurferð.
Dagskrá Aþena og Amorgos 26. apríl – 4. maí 2022
Þriðjudagur 26. apríl: Þáttakendur koma sér sjálfir til Aþenu, en við aðstoðum við að bóka flug sé þess óskað. Hópurinn verður sóttur á flugvöllinn og ekið að hótel Stratos Vassilikos 4* í miðbæ Aþenu.
Miðvikudagur 27. apríl: Morgunverður og lagt af stað snemma (08:00) með ferjunni yfir til Amorgos. Komutími á eyjuna er kl. 14:30. Hópurinn sóttur og ekið að hinu frábæra 5* hóteli Aegialis Hotel & Spa.
Kvöldverður á hótelinu.
Fimmtudagur 28. apríl: Jóga kl 8:30 og morgunverður 9:30.
Kl. 11.30 Matreiðslunámskeið á Ambrocia Gallery veitingastað hótelsins og hádegisverður.
Eftir hádegi er frjáls tími til að njóta við sundlaugina, í heilsulindinni eða við ströndina.
Grískt kvöld með ljúffengum grískum réttum, lifandi tónlist og dansi.
Föstudagur 29. apríl: Jóga kl. 8.00 og morgunverður kl. 9.00
Kl. 10.00 er lagt af stað í skoðunarferð um eyjuna. Hin 1000 ára Byzantine klaustur og St George Varsamitis klaustur eru heimsótt. Hið forna „water oracle“ sem helgað er guðinum Apollo er í St. George klaustrinu. Oracle var notað til að ná sambandi við guðina og fá svör frá þeim. Boðið er upp á hádegisverð í klaustrinu áður en farið verður til hinnar dásamlegu „höfuðborg“ eyjunnar, Chora.
Kvöldverður á hótelinu.
Laugardagur 30. apríl: Jóga kl. 8.00 ogmorgunverður kl. 9.00
Eftir morgunverður kemur fjallaleiðsögumaður og fer með hópinn í gönguferð að Lagada þorpinu, í gegnum ólívulundi og fallega akra. Stoppað fyrir kaffi og með því á Café Tratarisma Pastry Shop. Göngunni haldið áfram að þorpinu Tholaria þar sem er snæddur hádegisverður.
Gangan tekur um 2 klst.
Eftir gönguna er tími til að slaka á við sundlaugina eða í heilsulindinni.
Kvöldverður á hótelinu.
Sunnudagur 1. maí: Jóga kl. 8:00 og morgunverður kl. 9:00.
Þessi dagur er Dagur Blómanna (day of flower celebreations). Gengið verður um akrana til að safna blómum og gera kransa sem eru hengdir upp við inngang húsa. Það má að sjálfsögðu líka taka kransana með sér. Hádegisverður er úti í sveitasælunni.
Eftir hádegi er frjáls tími til að njóta við sundlaugina, á ströndinni eða í heilsulindinni.
Kvöldverður á hótelinu.
Mánudagur 2. maí: Jóga kl. 8:00 og morgunverður kl. 9:00.
Kl. 10.00 er farið í stutta skoðunarferð til tveggja fallegra þorpa á eyjunni Potamos og Ormos. Frjáls tími um eftirmiðdaginn.
Kvöldverður á hótelinu.
Þriðjudagur 3. maí: Morgunverður og brottför til Aþenu. Gist á 4* hóteli. Komutími til Aþenu er kl. 15:00. Frjáls tími.
Kvöldverður.
Miðvikudagur 4. maí: Morgunverður og brottför.
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
|---|---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() |





VERÐ KR 198.700 - Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI
Innifalið í verði er:
-
Akstur og ferjur samkvæmt dagskrá
-
Gisting á 4* hóteli í Aþenu, 2 nætur
-
Gisting á 5* hóteli á Amorgos, 6 nætur
-
Allar máltíðir eins og fram koma í dagskrá (morgun- og kvöldverður alla daga)
-
Gönguferðir og skoðunarferðir með leiðsögn á ensku
-
Ein nuddmeðferð á hótelinu
-
Jóga á hverjum morgni á Amorgos


















