top of page
Golf Tene9.jpg
GOLF Á TENERIFE

LAS MADRIGUERAS GOLF RESORT & SPA

Las Madrigueras er 5* luxus golfhótel staðsett á fallegum stað á Tenerife á Spáni. Golfvöllurinn, Las Américas, er par 72 18 holu keppnisgolfvöllur.

DAGSETNINGAR:

9 - 16 SEPTEMBER 2022

7 NÆTUR / 8 DAGAR

VERÐ

 Verð á farþega miðað við 2 í herbergi

Verð 255.900 kr

á farþega

 Verð á farþega miðað við 1 í herbergi

Verð x kr

á farþega

​innifalið í verði er: 

* 7 nátta gisting með morgunverði * Beint flug með Icelandair * Ein 23 kg taska, 10 kg handfarangur og golftaska * Akstur til og frá flugvelli *  7 18 holu golfhringir * golfbíll * aðgangur að æfingarsvæði * fararsstjórn * aðgangur að heilsulind hótelsins

* WIFI nettenging. 

LAS MADRIGUERAS GOLF RESORT & SPA

Las Madrigueras er 5* luxus golfhótel staðsett á fallegum stað á Tenerife á Spáni. Á hótelinu eru 44 superior herbergi sem eru einstaklega rúmgóð og falleg. Frá hótelinu geta gestir notið útsýnisins yfir golfvöllinn Las Americas og eyjuna Gomera. Boðið er upp á framúrskarandi þjónustu og fyrsta flokks þægindi. 

 

Glæsileg heilsulind er á hótelinu þar sem meðal annars má finna tyrkneskt bað, gufubað og heita potta. Einnig er  boðið upp á úrval meðferða eins og nudd, andlitsböð ofl. 

 

Það eru tveir veitingastaðir á Las Madrigueras hótelinu, Bogey og Belle Vue Terrace. Belle Vue Terrace býður upp á létta rétti í hádeginu og á Bogey er morgunverðarhlaðborð og  „à la carte“ á kvöldin. Á píanóbarnum og við sundlaugina má svo fá sér kokteil þar sem gestir geta notið stemmningarinnar og slakað á eftir góðan golfdag.

Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn. 

 

Golfvöllurinn, Golf Las Américas, er 18 holu keppnisgolfvöllur par 72 með fjölda vatna, vatnsfylltra gilja og sandgryfja. Mikill metnaður og fagmennska er lögð í viðhald á vellinum og hafa mörg spænsk meistaramót farið fram á vellinum.

​

Í klúbbhúsinu er að finna góðan veitingarstað, golfverslun Pro shop, glæsileg búningaaðstaða og fleira. Á veitingarstaðnum er boðið er upp á veitingar við allra hæfi jafnt inni sem úti á glæsilegri verönd með útsýni yfir golfvöllinn.

 

Æfingaraðstaðan er hin glæsilegasta þar sem hægt er að æfa pútt, chipp og einnig hægt að bregða sér á driving range og taka nokkra sveiflur fyrir hringinn.  

Blue Water
Golf Las Americas, Playa de Las Americas, Tenerife 2015

Golf Las Americas, Playa de Las Americas, Tenerife 2015

FLUG MEÐ ICELANDAIR

Beint flug með Icelandair frá KEF til Milano þann 19. september 2022 kl. 08:20 lent í Milano kl. 14:35

Beint flug með Icelandair frá Milano til KEF þann 28. september 2022 kl. 15:35 lent í KEF kl. 17:50

​

Innifalið: Flug, flugvallaskattar, 1 innrituð taska allt að 23kg, 1 taska í handfarangri allt að 10kg, golfpoki og þjónustugjald.
 

SKILMÁLAR

  • Staðfestingargjald greiðist inn á reikning Heillandi Heims við skráningu.

  • Hafa skal í huga við skráningu í ferð að nafn farþega sé ritað eins og á vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega að svo sé.  

  • Nánari um skilmálar Heillandi Heims er að finna í meðfylgjandi þræði SKILMÁLAR

​

AFBÓKUNARREGLUR

Staðfestingargjald og allar innborganir eru óndurkræfar eftir greiðslu.

​

Kreditkort – Reglur sem gilda um tryggingar sem fylgja kreditkortum

Ekki þarf að nota greiðslukort til greiðslu á hluta eða heild ferðar til þess að kortatrygging verði virk.  Einungis þarf að gæta þess að vera með kortið með í ferð. Við viljum hins vegar benda ykkur á að hafa samband við tryggingafélagið þitt til að kanna hvað er innifalið í kortatryggingu þinni til að ganga úr skugga um að sú trygging dugi eða hvort þörf sé á að kaupa viðbótar ferðatryggingu hjá tryggingafélagi þínu.

​

​

​

​

 

 

Allar nánari upplýsingar um ferðina gefur Ragnheiður Eiríks Friðriksdóttir, Raggý, í síma 844-6544 eða Í  tölvupósti raggy@heillandiheimur.is.

 

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info@heillandiheimur.is eða með því að smella á hnappinn hér að neðan og fylla út formið.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Blue Water
  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

Hlökkum til að heyra frá þér.

Ferðaskrifstofuleyfi

©2021 Heillandi Heimur

bottom of page