

KVENNAFERÐ KARENAR
CHERVO GOLF HOTEL OG SPA RESORT
Karen Sævarsdóttir LPGA kennari verður með kvennaferð til Chervo Golf Hotel og Spa Resort á Ítalíu. Frábær ferð á einum fegursta stað á Ítalíu, í nágrenni við Gardavatn sem er einstök paradís fyrir golfáhugafólk. Þrír 9 holu golfvellir, frábær æfingaraðstaða, sundlaugar og notaleg rúmgóð herbergi.
DAGSETNINGAR:
11 - 18 SEPTEMBER 2022
7 NÆTUR / 8 DAGAR
VERÐ
innifalið í verði er:
* 7 nátta gisting með morgunverði * Beint flug til Verona * Ein 20 kg taska, 8 kg handfarangur og golftaska * Akstur til og frá flugvelli í Verona * 6 18 holu golfhringir * Aðgangur að æfingarsvæði með fríum golfboltum * Fararsstjórn * Aðgangur að líkamsræktarsal * Upphituð innisundlaug * Aðgangur að heilsulind hótelsins * WIFI nettenging.

KVENNAFERÐ KARENAR
Karen Sævarsdóttir LPGA kennar verður með spennandi kvennaferð til Chervo Golf Hotel & Spa Resort á Ítalíu. Frábær ferð fyrir golfkonur, byrjendur, vinkonur og mæðgur að koma saman spila golf og læra golf.
GOLFSKÓLI KARENAR
Einnig verður í boði golfskóli fyrir þær sem vilja byrja að spila golf. Farið er í gegnum helstu atriði golfsins, putt, chip, drive og ekki má gleyma grunnreglum golfsins.
Frábær ferð fyrir konur að koma saman hafa gaman og njóta.
GOLFSKÓLI VERÐ
innifalið í verði er:
* 7 nátta gisting með morgunverði * Beint flug til Verona * Ein 20 kg taska, 8 kg handfarangur og golftaska * Akstur til og frá flugvelli í Verona * 5 hringir á 9 holu æfingarvelli * 3 dagar með 3 klst kennslu * Aðgangur að æfingarsvæði með fríum golfboltum * Fararsstjórn * Aðgangur að líkamsræktarsal * Upphituð innisundlaug * Aðgangur að heilsulind hótelsins * WIFI nettenging.
CHERVÒ GOLF HOTEL & SPA RESORT SAN VIGILIO
Á einum fegursta stað á Ítalíu, í nágrenni við Gardavatn, er Chervo Golf Hotel Resort sem er einstök paradís fyrir golfáhugafólk, Chervo Golf Hotel Resort sem meðal annars var valið besta golfhótel á Ítalíu árið 2020 og er á lista yfir 20 bestu golf resort í heiminum.
Golfvöllurinn sem er 27 holu keppnisvöllur og síðan 9 holu æfingarvöllur ásamt glæsilegri æfingaraðstöðu. Á svæðinu er fjölbreytt úrval af afþreyingu í einkar fallegu umhverfi eins og tennisvöllur, inni og úti sundlaugar og heilsulind.
Chervo Golf Hotel Spa & Resort San Vigilio er byggt umhverfis klaustrið í San Vigilio sem er frá 12. öld. Herbergin eru fallega innréttuð í antík stíl sem samræmist vel umhverfinu. Öll herbergin eru loftkæld og í þeim má finna minibar, sjónvarp, ísskáp og frítt internet WI-FI. Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.
Veitingastaðurinn á hótelinu er innréttaður í fallegum antík stíl með notalegu rómantísku ívafi. Þar eru framreiddir gómsætir réttir með fyrsta flokks hráefnum úr héraðinu og einnig alþjóðlegir réttir, þar á meðal úr fiskafurðum. Á vínlistanum er að finna mikið úrval af léttum vínum og vínum úr héraðinu.
Eftir langan dag er upplagt að láta dekra við sig á heilsulind hótelsins þar sem boðið er upp á gufubað, eimbað, saltgrotti, vítarium og notalega slökunaraðstöðu í fallegu umhverfi. Einnig er boðið upp á úrval meðferða eins og nudd, andlitsböð ofl.
Hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna kylfinga er hægt að njóta þess að spila á stóra vellinum sem er 27 holu keppnisvöllur og stuttur 9 holu völlur. Einnig er mjög góð æfingaraðstaða á svæðinu. Eftir að hafa notið dagsins við að spila golf geta gestir slappað af á glæsilegri verönd hótelsins sem státar af víðáttumiklu útsýni eða farið í göngutúr og notið náttúrufegurðarinnar sem svæðið hefur að geyma.
Chervo Hotel Spa & Resort hefur undandfarin ár hlotið fjöldan allan af viðurkenningum fyrir golfvöllinn, hótelið og klúbbhúsið. Það má með sanni segja að það verður virkilega spennandi að heimsækja þennan fallega áfangastað í vor með FKA konum.



Chervò Golf Hotel Spa & Resort San Vigilio Experience
FLUG
Beint flug NO7952 frá Keflavík KEF til Verona þann 11. september 2022 kl. 06:00 lent í Verona kl. 12:00
Beint flug NO7953 frá Verona VRN til KEF þann 18. september 2022 kl. 13:00 lent í Keflavík KEF kl. 15:20
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, 1 innrituð taska allt að 20kg, 1 taska í handfarangri allt að 10kg, golfpoki og þjónustugjald.
SKILMÁLAR
-
Staðfestingargjald greiðist inn á reikning Heillandi Heims við skráningu.
-
Hafa skal í huga við skráningu í ferð að nafn farþega sé ritað eins og á vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega að svo sé.
-
Nánari um skilmálar Heillandi Heims er að finna í meðfylgjandi þræði SKILMÁLAR
AFBÓKUNARREGLUR
Staðfestingargjald og allar innborganir eru óndurkræfar eftir greiðslu.
Kreditkort – Reglur sem gilda um tryggingar sem fylgja kreditkortum
Ekki þarf að nota greiðslukort til greiðslu á hluta eða heild ferðar til þess að kortatrygging verði virk. Einungis þarf að gæta þess að vera með kortið með í ferð. Við viljum hins vegar benda ykkur á að hafa samband við tryggingafélagið þitt til að kanna hvað er innifalið í kortatryggingu þinni til að ganga úr skugga um að sú trygging dugi eða hvort þörf sé á að kaupa viðbótar ferðatryggingu hjá tryggingafélagi þínu.
Allar nánari upplýsingar um ferðina gefur Ragnheiður Eiríks Friðriksdóttir, Raggý, í síma 844-6544 eða Í tölvupósti raggy@heillandiheimur.is.
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info@heillandiheimur.is eða með því að smella á hnappinn hér að neðan og fylla út formið.
Hlökkum til að heyra frá þér.






















