
PORTUGAL
Hótelið Onyria Quinta Da Marinha er fimm stjörnu hótel staðsett í strandbænum Cascais í Portugal.
DAGSETNINGAR
innifalið í verði er:
* 7 nátta gisting með morgunmat * Beint flug með Play * Ein 20 kg taska, 8 kg handfarangur og golfsett * Akstur til og frá flugvelli í Lissabon * Fararsstjórn * WIFI nettenging.
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, 1 innrituð taska allt að 23kg, 1 taska í handfarangri allt að 10kg, golfsett.
Hótelið Onyria Quinta Da Marinha er fimm stjörnu hótel staðsett í strandbænum Cascais með fallegt útsýni yfir Atlantshafið. Bærinn er í um 35 mínútna akstursfjarlægð frá Lissabon, höfuðborg Portúgals.
Herbergi
Boðið er upp á þrjár tegundir herbergja, einstaklings herbergi og tveggja manna herbergi, standard og superior. Öll herbergin eru eru með loftkælingu, rúmgóðum svölum, minibar, flatskjá og öllum helstu þægindum. Glæsilegur morgunmatur er innifalinn.
Veitingastaðir
Á hótelinu eru tveir veitingastaðir, annars vegar Five Pines og hinsvegar Rocca Restaurant. Five Pines býður upp á hlaðborð með hinum ýmsu réttum og Rocca sérhæfir sig í hefðbundum portúgölskum réttum og öðrum miðjarðarhafs réttum. Einnig má finna barinn Trent Jones á hótelinu þar sem hægt er að slaka á með drykk við sundlaugarbakkan eða á veröndinni.
Heilsulind
Einnig eru tvær sundlaugar við hótelið, önnur í heilsulindinni sem býður upp á fjöldann allan af meðferðum. Einnig er sundlaug utandyra, þar sem hægt er að kæla sig niður í sólinni.



Golfvöllurinn
Golfvöllurinn á Quinta Da Marinha er 18 holu golfvöllur, 5.870 metrar, fallegur völlur í dásamlegu umhverfi með nóg af áskorunum. Völlurinn, sem er par 71 holu völlur, er hannaður af Robert Trent Jones. Af vellinum er fallegt útsýni yfir Atlantshafið og Sintra fjöllin. Teigar vallarins standa hátt sem dregur fram náttúrufegurð umhverfisins. Á vellinum er nóg af sandgryfjum og vatni, svo brautirnar eru skemmtilegar og krefjandi. Segja mætti að völlur sé stórbrotinn, Þriðja hola vallarins, sem er par 4, er þekkt fyrir að vera fallega staðsett með einstakt útsýni yfir Atlantshafið. Einnig má finna á vellinum brautir þar sem leikið er yfir gljúfur og vötn. Golfvellirnir í kringum Lissabon hafa tvívegis fengið verðlaun frá IATGO sem besti golf áfangastaður í Evrópu.
Æfingasvæði
Æfingaaðstaðan er einkar glæsileg og fór í gegnum endurbætur árið 2020. Æfingasvæðið er staðsett við hótelið, nokkra metra frá fyrsta teig golfvallarins. Þar eru 32 æfingabásar, púttvöllur og æfingasvæði þar sem hægt er að æfa högg úr sandgloppum og vipp. Þar má einnig finna verslun með golfvörur og kaffi.
19th hole klúbbhús
Þegar hringnum er lokið er tilvalið að fá sér sæti á veröndinni á klúbbhúsi vallarins, 19th hole, og slaka á með léttum veitingum og drykkjum.
FLUG MEÐ PLAY
Beint flug með Play flug OG694 þann 7. apríl 2023 kl. 15:10 frá KEF til Lissabon (Humberto Delgado) í Portugal lent í Lissabon kl. 20:45.
Beint flug með Play flug OG695 þann 14. apríl 2023 kl. 21:45 frá Lissabon til KEF lent í KEF kl. 01:30




Golf Quinta da Marinha - Cascais Lisboa Portugal

Quinta da Marinha Golf Course
SKILMÁLAR
SKILMÁLAR
-
Staðfestingargjald greiðist inn á reikning Heillandi Heims við skráningu.
-
Hafa skal í huga við skráningu í ferð að nafn farþega sé ritað eins og á vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega að svo sé.
-
Nánari um skilmálar Heillandi Heims er að finna í meðfylgjandi þræði SKILMÁLAR
AFBÓKUNARREGLUR
Staðfestingargjald og allar innborganir eru óndurkræfar eftir greiðslu.
Kreditkort – Reglur sem gilda um tryggingar sem fylgja kreditkortum
Ekki þarf að nota greiðslukort til greiðslu á hluta eða heild ferðar til þess að kortatrygging verði virk. Einungis þarf að gæta þess að vera með kortið með í ferð. Við viljum hins vegar benda ykkur á að hafa samband við tryggingafélagið þitt til að kanna hvað er innifalið í kortatryggingu þinni til að ganga úr skugga um að sú trygging dugi eða hvort þörf sé á að kaupa viðbótar ferðatryggingu hjá tryggingafélagi þínu.
Allar nánari upplýsingar um ferðina gefur Ragnheiður Eiríks Friðriksdóttir, Raggý, í síma 844-6544 eða Í tölvupósti raggy@heillandiheimur.is.
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info@heillandiheimur.is eða með því að smella á hnappinn hér að neðan og fylla út formið.
Hlökkum til að heyra frá þér.


















































