top of page
ms-prinzessin-katharina-413.webp
Heillandi heimur og FEB bjóða upp á hjól og siglingu á Dóná

30. apríl - 9. maí 2027

9 NÆTUR 

​

ATH. lágmarksþátttaka eru  16 manns 

 

Hjóla- og skemmtisigling eftir Dóná með Heillandi Heim í samstarfi við FEB

 

​

 

Þýskaland – Austurríki | 10 dagar | „Fljótandi hótel“

 

​Upplifðu eina fegurstu hjólaleið Evrópu á einstakan hátt – þar sem hótelið þitt siglir með þér. Þessi ferð sameinar afslappaðar hjólaferðir niður meðfram grænum árbökkum Dónár, heillandi þorp, stórbrotna náttúru og menningarperlur í hjarta Evrópu.

  ✨ Ert þú tilbúin/n í ævintýrið?

FEB_Logo_244x100.png

VERÐ KR 435.850,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI, á efra þilfari og með rafmagnshjóli.

​​Senda þarf fyrirspurn á harpa@heillandiheimur.is ef óskað er eftir eins manns herbergi.​​

Upplýsingar um ferðina veitir Harpa -  harpa@heillandiheimur.is

​sími 8223890

IMG_7678_edited.jpg

Erfiðleikastig og kröfur:​

  • .

  • Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi reynslu af því að hjóla og hafi æft sig fyrir ferðina.  Boðið er upp á rafmagnshjól​​​​​​​.

Screenshot 2026-01-21 at 10.29.02.png
Screenshot 2026-01-21 at 10.31.51.png

Fararstjórar í ferðinni

​

Rósa Halldórsdóttir.

Rósa er með víðtæka menntun sem kemur sér vel sem fararstjóri.  Hún er meðal annars leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði, jógakennari og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.  

Reynsla hennar og þekking kemur sér vel í starfi hennar sem fararstjóri.

​

Harpa Einarsdóttir.

Harpa Einarsdóttir hefur yfir 20 ára reynslu af skipulagningu hópferða um allan heim. Hún leggur áherslu á vandað skipulag og persónulega þjónustu.  Í heilsu-/hreyfiferðum Heillandi Heims er lögð áhersla á að vera með litla hópa þar sem hreyfing, náttúra og góð upplifun fara saman. Markmið Hörpu er að hver ferð verði eftirminnileg, bæði fyrir hreyfinguna sem í þeim felst og þær upplifanir sem skapast á leiðinni.

att.enFOrFpd4v8unXsNioXZyB0iR750OrMX1o9BUeSN7jI.JPG

 Hjól og sigling eftir Dóná frá Passau í Þýskalandi til Vínarborgar í Austurríki​

 

✨ Ævintýrið hefst 30. apríl 2027 með flugi Icelandair til Munchen. 

​Stutt ferðalýsing:

30. apríl - flug með Icelandair Kef - Munchen 07:20 - 13:05.

Rúta frá Munchen til Haibach þar sem gist er í eina nótt.

​

1. maí - njótum dagsins á hótelinu, slökun í heilsulind hótelsins og/eða í gönguferð um nágrennið. Lagt af stað frá hótelinu um kl 15:00 til Engelhartszell og farið um borð í bátinn kl 16:00.  

 

Frá 2. - 8. maí er siglt og hjólað meðfram Dóná um friðsæl þorp og stórkostlegt landslag, með viðkomu í meðal annars Aschach, Tulln og Linz.

Stoppað er heilan dag í Vín þar sem í boði er að  hjóla um borgina, heimsækja sögufræga og fallega staði og njóta kaffihúsamenningarinnar.  Frá Vínarborg liggur leiðin til baka til Engelhartszell um hið töfrandi Wachau-svæði með viðkomu í Melk Abbey, Grein og Mauthausen.

 

8. maí - komið til Engelhartszell og farið frá borði að morgni dags (um kl 09:30).  Rúta til Munchen þar sem stoppað verður í 1 nótt.  Dagurinn er frjáls til að skoða Munchen.

 

9. maí - flug með Icelandair Munchen - Kef 14:05 - 16:00.​

IMG_7673.heic
IMG_7747.heic

Gisting 30. apríl  - Riverresort Donauschlinge 

Glæsilegt og notalegt hótel staðsett við hið stórbrotna náttúrufyrirbæri Schlögener Donauschlinge, þar sem Dóná myndar stórfenglega 180° bugðu. Hótelið sameinar ró, náttúrufegurð og þægindi og er kjörinn staður til slökunar eftir ferðadag og til að undirbúa hjólaferðina sem framundan er.

Á hótelinu er veitingastaður, vellíðunarsvæði með sundlaug og heilsulind, auk fallegs útsýnis yfir ána og umhverfið.

Wellness Donau...webp
Hotel Donauschlinge room.jpg
Hotel Donausch...png

Gisting 1. - 8. maí - MS Prinzessin Katharina – fljótandi gisting

MS Prinzessin Katharina býður upp á hið fullkomna jafnvægi milli hreyfingar, slökunar og þæginda. Eftir dag á hjóli bíður þín hlýlegt og smekklega innréttað skip með framúrskarandi þjónustu, góðri matargerð og afslappaðri stemningu.

Um borð er panoramaveitingasalur, notaleg setustofa, bar, bókahorn, lítil verslun og nuddstofa. Á rúmgóðu sólþilfarinu er yndislegt að njóta útsýnisins yfir Dóná og láta líða úr sér.

 

Allir klefar eru bjartir með loftkælingu, sérbaðherbergi, sjónvarpi og litlum ísskáp. Á efra þilfari eru klefar með frönskum svölum sem hægt er að opna – fullkomið til að njóta landslagsins beint úr klefanum.

✨ Persónuleg þjónusta, klassískur glæsileiki og afslappað andrúmsloft – dag eftir dag.

ms-prinzessin-katharina-sonnendeck-3.webp
ms-prinzessin-katharina-1-bett-oberdeck-kabine-6.webp
ms-prinzessin-katharina-bar-9.webp
prinzessin-katharina-massage-salon.webp
ms-prinzessin-katharina-25.webp

Gisting 8. maí í Munchen 

Áætluð koma til Munchen er upp úr hádegi þann 8. maí.  Frjáls dagur í Munchen restina af deginum.

 

Tillaga að góðum degi í Munchen:

Byrja daginn á röltinu um gamla miðbæinn við Marienplatz, skoða Viktualienmarkt og njóta hádegisverðar á hefðbundnum bjórgarði. Síðdeginu er svo hægt að verja í Englischer Garten eða heimsækja BMW Welt og söfn borgarinnar. Það er svo frábært að ljúka deginum til dæmis með kvöldverði í Hofbräuhaus eða á notalegum veitingastað í Schwabing – fullkomin blanda af menningu, náttúru og lífsgleði.

VERÐ KR 435.850,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI, á efra þilfari og með rafmagnshjóli.

 

​​Senda þarf fyrirspurn á harpa@heillandiheimur.is ef óskað er eftir eins manns herbergi.​

​​Innifalið í verði:

  • Flug með Icelandair til og frá Munchen

    • 23 kg. farangursheimild​

  • Akstur frá Munchen til Haiback

  • Gisting á hóteli í Haiback með morgunverði

  • Akstur frá Haiback að skipi

  • Gisting í eins eða tveggja manna klefa um borð

  • Drykkur við komu á skipið

  • Morgunverður alla daga 

  • Á skipinu: 6 * hádegisverðarpakki (nesti), 6 * eftirmiðdagskaffi,  6 * 3ja rétta kvöldverðir og 1 * 3ja réttakveðjukvöldverður með einum drykk

  • Rafmagnshjól

  • Akstur frá skipi til Munchen

  • Gisting í 1 nótt í Munchen

  • Akstur að flugvelli

  • Íslensk fararstjórn

DSC_0934.jpg
Bike.webp

​​Ekki Innifalið í verði:

  • Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)

  • Drykkir með mat sem er innifalinn

  • Allar máltíðir sem ekki eru upp taldar hér að ofan

  • Allar tillögur að valkvæðum ferðum

​​Skilmálar:

  • Staðfestingargjald kr. 130.000,- greiðist við bókun 

  • Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 10. mars

  • Allar greiðslur eru óendurkræfar

  • ATH að takmarkað magn er í boði af einstaklingsherbergjum og þarf að óska sérstaklega eftir þeim

575b0082-d5da-45db-8275-3a6f20762356.JPG
Screenshot 2026-01-21 at 10.29.02.png
Screenshot 2026-01-21 at 10.31.51.png

Erfiðleikastig og kröfur:​

  • .

  • Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi reynslu af því að hjóla og hafi æft sig fyrir ferðina.  Boðið er upp á rafmagnshjól.​​​​​​​

         Nánari ferðalýsing​

​

​

Dagur 1 – Haibach ob der Donau

Flug til Munchen og ekið að hótelinu í Haibach. 

​

Dagur 2 – Engelhartszell

Slökun í heilsulind hótelsins í Haibach og/eða gönguferð um nágrennið.  Um kl 15:00 er svo ekið til Engelhartszell þar sem
stigið er um borð í skipið um kl. 16:00. Gist um borð í bátnum.

 

Dagur 3 – Engelhartszell – Schlögener Danube Loop – Aschach (40–43 km)

Hjólað er niður meðfram Dóná í gegnum græn og friðsæl þorp. Mælt er með að smakka jurtalíkjörana frá Trappistaklaustrinu áður en lagt er af stað.  Fyrsta daginn er hjólað frá Engelhartszell til Aschach um 43 km leið.
Á leiðinni er möguleiki á stuttri ferjusiglingu um hið stórbrotna náttúrufyrirbæri Schlögener Danube Loop, þar sem áin tekur snögga 180° beygju.
Siglt er frá Aschach til Linz og áfram til Tulln. Tækifæri gefst til að skoða Linz með hinni vinsælu City-Express lest.

 

Dagur 4 – Tulln – Vienna-Nussdorf (32–39 km)

Þennan dag er hjólað frá Tulln til Vín , um 39 km, í stórkostlegu landslagi. Klaustrið í Klosterneuburg Monastery blasir við úr fjarlægð.
Viðkomustaður í Kahlenbergerdorf býður upp á hefðbundnar vínkrár. Stutt ganga upp í vínekrurnar að Kahlenberg útsýnispallinum launar sig með stórkostlegu útsýni yfir Vín.

 

Dagur 5 – Vienna (hvíldardagur)

Dagurinn er tileinkaður Vínarborg. Hægt er að heimsækja Stefánskirkjuna, Hofburg-höllina, Ringstrasse, óperuhúsið og ráðhúsið.
Njóttu síðdegis í rólegheitum á klassísku kaffihúsi eða í göngutúr um borgina. Um kvöldið er siglt til Krems í Wachau-dalnum.

 

Dagur 6 – Krems – Melk (37 km)

Einn fegursti hjóladagur ferðarinnar. Leiðin liggur um hið heimsþekkta Wachau-svæði, frá Krems til Melk ca 37 km, með vínekrum, kastölum og sögufrægum þorpum.
Í Dürnstein blasir við blár barokkturn klausturkirkjunnar og í Melk Abbey rís hið glæsilega Benediktsklaustur yfir Dóná. Algjör hápunktur ferðarinnar.

 

Dagur 7– Melk – Grein (51 km)

Þennan dag er hjólað er um árengi, skóga og víðáttumikla dali Strudengau-svæðisins, frá Melk til Grein um ca 51 km.  Þetta svæði þótti áður hættulegt siglingasvæði en er einstaklega fallegt.
Í Grein stendur Greinburg-kastali yfir bænum, elsti íbúðarkastali Austurríkis, sem hægt er að skoða með leiðsögn.

 

Dagur 8 – Grein – Mauthausen (36–40 km) | Sigling til Engelhartszell

Síðasta hjóladaginn liggur leiðin um sléttlendi Machland-svæðisins, frá Grein til Mathausen um 40 km. Viðkomu er hægt að gera í keltneska þorpinu Mitterkirchen.
Í Mauthausen er mælt með heimsókn á minningarstað fyrrum fangabúða – stað kyrrðar og íhugunar.
Um kvöldið er hátíðlegur kveðjukvöldverður um borð og siglt er til Engelhartszell.

 

Dagur 9 – Engelhartszell

Komið er til Engelhartszell um kl. 09:00 og brottför af skipi um kl. 09:30.​

Rúta til Munchen.

​​​

Dagur 10 – brottför

Brottför til Keflavíkur með flugi Icelandair kl. 14:05.

Screenshot 2026-01-20 at 13.47.16.png
Blue Water
  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Hafðu samband

2024-004.jpg

Hlökkum til að heyra frá þér.

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

©2021 Heillandi Heimur

Blue Water
bottom of page