
Jólaævintýri með Heillandi Heim í Edinborg
Aðventuferð í þessa dásamlegu borg í Skotlandi
19. - 24. nóvember 2026
5 NÆTUR
ATH. lágmarksþátttaka eru 10 manns. og hámark 20 manns.
Aðventan í Edinborg
Komdu með okkur í töfrandi jólaferð til Edinborgar þar sem skosk saga, hátíðarljós, glæsileg matarupplifun og ógleymanleg skemmtun mynda fullkomna blöndu. Við njótum jólamarkaða, kastala, viskí- og ginupplifana, hefðbundins skosks þjóðdansaballs og notalegrar jólastemningar í einni fallegustu borg Bretlandseyja.
✨🎄🏰 Frá glitrandi jólamörkuðum til skosks dansgólfs – þetta er jólaferð sem þú gleymir ekki.
VERÐ KR 356.500,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI.
Aukalega KR 94.350,- MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.
Upplýsingar um ferðina veita:
Harpa - harpa@heillandiheimur.is eða sími 822 3890
Rósa Halldórsdóttir - rosa@sensationalworld.is eða sími 661 7041

Jólaævintýri í Edinborg
þar sem skoskir töfrar mæta hátíðlegri jólastemningu
Það er eitthvað alveg sérstakt við Edinborg á aðventunni. Þegar dimmir síðdegis lýsa þúsundir jólasería upp sögulegar götur borgarinnar, ilmur af kanil, glöggi og nýbökuðu sælgæti berst frá jólabásunum og hinn tignarlegi Edinborgarkastali gnæfir yfir borginni eins og úr ævintýri.
Í þessari einstöku ferð sameinum við það besta sem skoska höfuðborgin hefur upp á að bjóða á hátíðlegasta tíma ársins. Við röltum um glitrandi jólamarkaði, upplifum magnaða sögu borgarinnar, heimsækjum Edinborgarkastala og njótum bæði skoskra hefða og nútímalegrar matarmenningar. Á dagskránni eru einstakar viskí- og ginupplifanir, glæsilegir kvöldverðir, notalegar göngur um fallegustu hverfi borgarinnar og skemmtilegt skoskt þjóðdansaball þar sem stemningin nær nýjum hæðum.
Þetta er ferð fyrir þá sem vilja njóta aðventunnar með öðrum hætti; upplifa nýja menningu, hlæja, smakka, dansa og skapa minningar sem lifa lengi eftir að jólaljósin hafa verið tekin niður. Hvort sem þú ferð með maka, vinahópi eða einn á vit nýrra ævintýra þá bíður þín ferð full af gleði, samveru og skoskum töfrum.
Komdu með okkur til Edinborgar og upplifðu borgina þegar hún skartar sínu allra fallegasta jólaskrúði.
Fararstjórar í ferðinni
Rósa Halldórsdóttir.
Rósa er með víðtæka menntun sem kemur sér vel sem fararstjóri. Hún er meðal annars leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.
Rósa hefur áður verið með hóp í ferð sem þessi ferð er byggð á.
Harpa Einarsdóttir.
Harpa er eigandi ferðaskrifstofunnar og hefur verið með hópa í ferðum vítt og breytt um heiminn.

Dagskrá ferðarinnar:
Dagur 1 – fimmtudagur 19. nóvember
Flug með Icelandair frá Keflavík til Edinborgar 08:00 - 10:20.
Við lendum í Edinborg og eftir okkur bíður rúta sem fer með okkur beint að hótelinu okkar sem er í hjarta borgarinnar. Ævintýraferðin okkar hefst síðan fyrir alvöru með heimsókn í The Edinburgh Dungeon – stórskemmtilega, gagnvirka og ógleymanlega sögusýningu sem blandar saman húmor og hryllingi á einstakan hátt.
Þegar rökkrið færist yfir göngum við um hinn glæsilega jólamarkað þar sem ljósadýrðin tekur við. Þar gefst tækifæri til að skoða jólabása, njóta hátíðarstemningarinnar og fá sér ilmandi glögg.
Dagur 2 – föstudagur 20. nóvember
Morguninn er frjáls og tilvalinn til að skoða verslanir borgarinnar, fara í jólagjafaleit eða njóta hádegisverðar á einhverra hinna fjölmörgu veitingastaða borgarinnar.
Síðdegis klæðum við okkur upp og höldum í hina stórglæsilegu Johnnie Walker Experience þar sem nútímatækni, skemmtun og skosk viskímenning sameinast í einstakri upplifun. Eftir frábæra Johnnie Walker kynning förum við á 1820 Rooftop Bar þar sem útsýnið yfir Edinborgarkastala er einstakt.
Við röltum yfir á hinn sögufræga veitingastað/bar sem er í byggingu sem áður var kirkja Ghillie Dhu þar sem okkar bíður sönn skosk upplifun, Burly Ceilidh Club, sem felur í sér ljúfan fordrykk og þriggja rétta skoskan hátíðarkvöldverð. Eftir matinn tekur svo við líflegt og skemmtilegt skoskt þjóðdansaball sem er sannkölluð upplifun og eitt af hápunktum ferðarinnar.



Dagur 3 – laugadagur 21. nóvember
Eftir fjörið kvöldið áður byrjum við daginn á rólegri nótum. Við röltum upp hina frægu Royal Mile og heimsækjum Edinborgarkastala þar sem lifandi leiðsögn færir sögu borgarinnar til lífs.
Í hádeginu snæðum við á The Piper's Rest þar sem við njótum klassísks skosks pöbbamatar í afslappaðri stemningu.
Seinniparturinn og kvöldið eru frjáls. Þetta er kjörið tækifæri til að versla jólagjafir, heimsækja sögufræga skoska pöbba, skoða borgina á eigin vegum eða einfaldlega slaka á og njóta andrúmsloftsins.



Dagur 4 – sunnudagur 22. nóvember
Við byrjum daginn á göngu um hið ævintýralega Dean Village og meðfram Water of Leith ánni. Þetta friðsæla svæði er ein af földu perlum Edinborgar og býður upp á einstakt andrúmsloft.
Síðar um daginn njótum við sannkallaðs jóladekurs með hátíðlegu Afternoon Tea í hinu glæsilega Signet Library. Þar bíða girnilegar kræsingar, ilmandi te og einstök stemning í einni fallegustu byggingu borgarinnar.
Eftirmiðdagurinn er frjáls og tilvalinn til að skoða jólamarkaðinn betur eða njóta borgarinnar.


Dagur 5 – mánudagur 23. nóvember
Við byrjum daginn á einstakri ferð aftur í tímann þegar við förum í einkaleiðsögn um Mary King's Close sem er eitt dularfyllsta og merkilegasta sögusvæði Edinborgar. Undir iðandi götum Royal Mile leynast varðveittar götur og heimili frá fyrri öldum þar sem sagan lifnar við á heillandi og áhrifamikinn hátt.
Eftir sögulega morgunstund gefst tími til að njóta borgarinnar á eigin vegum, versla síðustu jólagjafirnar, fá sér hádegisverð eða einfaldlega rölta um fallegar götur miðbæjarins.
Síðdegis heimsækjum við Edinburgh Gin Experience þar sem við fræðumst um framleiðslu hins vinsæla skoska gins og smökkum afraksturinn í einstakri umgjörð sögulegra járnbrautarboga borgarinnar.
Um kvöldið lýkur ferðinni með stæl á hinum glæsilega veitingastað Tattu. Þar njótum við stórkostlegs asísks kvöldverðar í einstöku umhverfi kertaljósa og bleikra kirsuberjatrjáa. Fullkominn endir á ferð sem sameinar jólastemningu, skemmtun og ógleymanlegar minningar.


Dagur 6 – þriðjudagur 24. nóvember - heimferð
Við kveðjum Edinborg að sinni og höldum heim á leið með töskurnar fullar af jólagjöfum, myndavélarnar fullar af fallegum myndum og minningabókina fulla af einstökum ævintýrum úr þessari töfrandi jólaferð.
Flug með Icelandair frá Edinborg til Keflavíkur til 11:20 - 13:55
Gisting – Hotel Indigo Edinburgh
Við dveljum á hinu glæsilega Hotel Indigo Edinburgh, sem er staðsett í hjarta borgarinnar í göngufæri við helstu verslunargötur, veitingastaði, jólamarkaði og sögufræga staði Edinborgar. Hótelið sameinar nútímaleg þægindi og hlýlegt skoskt yfirbragð í fallegu umhverfi þar sem gestum líður strax eins og heima hjá sér.
Herbergin eru stílhrein og vel búin með öllum helstu þægindum og á hótelinu er notaleg aðstaða til að slaka á eftir viðburðaríkan dag í borginni. Frábær staðsetning gerir okkur kleift að njóta Edinborgar til fulls án þess að þurfa að ferðast langt á milli staða.
Hotel Indigo Edinburgh er því kjörinn heimavöllur fyrir þetta töfrandi jólaævintýri í skosku höfuðborginni.



VERÐ og skilmálar
VERÐ KR 356.500,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI.
Aukalega KR 94.350,- MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.
Innifalið í verði:
-
Flug með Icelandair til og frá Edinborg með 20 kg. farangursheimild.
-
Akstur milli flugvallar og hótels í Edinborg
-
Gisting á hóteli Indigo 4* hótel í hjarta Edinborgar
-
Morgunverður alla daga
-
Máltíðir sem nefndar eru sem innifaldar í dagskránni
-
Upplifun: Edinborgarkastali, Johnny Walker viský smökkun, Dungeon ferð, skoðunarferð Mary's King Close, skoskt kvöld á Ghillie Dhu, ginsmökkun og "afternoon tea" á The Signet Library
-
Íslensk fararstjórn.
Ekki Innifalið í verði:
-
Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)
-
Drykkir með mat sem er innifalinn
-
Allar máltíðir sem ekki eru upp taldar í dagskrá
Skilmálar:
-
Staðfestingargjald kr. 80.000,- greiðist við bókun
-
Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför
-
Allar greiðslur eru óendurkræfar
