top of page
Menningar- og sælkeraupplifun við Miðjarðarhafið

Haustferð þar sem suðræn lífsgleði mætir franskri fágun og fjallakyrrð

 

Ævintýrið hefst 13. september 2026 með flugi með Icelandair til Barcelona.                      

​​Í þessari einstöku ferð sameinum við það besta sem Katalónía, Suður-Frakkland og Andorra hafa upp á að bjóða í vandaðri og innihaldsríkri haustferð.  Við upplifum stórbrotna náttúru, heimsþekkta list, franska vínmenningu og ferskt fjallaloft í Pýreneafjöllum.

 

Við byrjum við kristaltæra strönd Costa Brava þar sem siglt er um mikilfenglegar víkur Cap de Creus og komið við í heillandi listamannabænum Cadaqués. Við stígum inn í súrrealískan heim Salvador Dalí á hinu magnaða Dalí Theatre-Museum og njótum spænskrar stemningar með Moscatel-vínsmökkun.

Ferðin heldur áfram yfir til Frakklands í litríka hafnarbæinn Collioure þar sem vínekrur, sjávarloft og litadýrð skapa ógleymanlegt andrúmsloft.  Við göngum um hina sögufrægu borg Béziers og kynnumst verkfræðiafreki 17. aldar við Canal du Midi. Að lokum heimsækjum við vínbúgarðinn Domaine de l'Hospitalet og smökkum vínin þeirra í fallegu umhverfi.

Lokaáfanginn er fjallaperlan, furstadæmið Andorra. Þar förum við upp í 2.700 metra hæð að Mirador Solaire útsýnispallinum, njótum 360° fjallasýnar yfir Pýreneafjöllin og heimsækjum hina glæsilegu Sanctuary of Meritxell.  Þar blandast kyrrð, náttúra og menning á einstakan hátt.

Þetta er ferð fyrir þá sem vilja:

  • Njóta listar og menningar á heimsmælikvarða

  • Smakka vín og staðbundnar kræsingar

  • Upplifa bæði haf og fjöll í einni og sömu ferðinni

  • Ferðast í góðum hópi með íslenskum fararstjóra

  • Hægari ferðamáta þar sem við njótum augnabliksins

✨ Blanda af suðrænni lífsgleði, franskri fágun og andorrískri fjallakyrrð.

cadaques.jpg

​​Leiðsögumaður í ferðinni er Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann hefur áratuga reynslu sem leiðsögumaður, bæði hér heima og erlendis. Frá árinu 2005 hefur hún leitt ferðalanga um heiminn fyrir Bændaferðir og Úrval Útsýn, meðal annars til Egyptalands, Perú, Suður-Afríku, Kína, Ástralíu, Nýja-Sjálands og vesturstrandar Bandaríkjanna, auk starfa á Tenerife og í Tyrklandi.

Í þessari ferð er lögð áhersla á „slow travel“ nálgun þar sem ferðalagið sjálft er hluti af lúxusnum – tími til að njóta, upplifa og tengjast.

Screenshot 2026-03-04 at 18.14.06.png

         Nánari ferðalýsing

Dagur 1 – Barcelona – Roses

Sunnudagur 13. september

Flug með Icelandair Keflavík - Barcelona 10:10 - 16:20.

Við lendum í Barcelona síðdegis og rúta bíður okkar á flugvellinum. Ekið er norður meðfram ströndinni til fallega strandbæjarins Roses á Costa Brava.

Gist er á 4★ Hotel Prestige Sant Marc í tvær nætur.
Kvöldverður á hótelinu og notaleg byrjun á ferðinni.

Dagur 2 – Sigling um Cap de Creus – Cadaqués – Dalí safnið

Mánudagur 14. september

Eftir morgunverð stígum við um borð í bát í Roses og siglum meðfram Cap de Creus náttúrugarðinum, einu dramatískasta strandlandslagi Spánar. Klettar, falin vík og tær sjór gera þessa siglingu að sannkallaðri Miðjarðarhafsupplifun.

Við komum til Cadaqués, hins heillandi listamannabæjar sem heillaði listamenn á borð við Salvador Dalí, Pablo Picasso og Joan Miró.
Frjáls tími til að rölta um hvítþvegnar götur, njóta hafnarinnar og drekka kaffi við sjávarsíðuna.

Við siglum aftur til Roses þar sem boðið er upp á Moscatel-vínsmökkun – ljúf byrjun á síðdeginu.

Eftir hádegisverð höldum við til Figueres þar sem við heimsækjum hið einstaka Dalí Theatre-Museum.
Safnið, sem Dalí sjálfur hannaði að stórum hluta, er eitt magnaðasta listasafn Evrópu og hýsir stærsta safn verka hans í heiminum. Þetta er upplifun sem enginn gleymir.

Kvöldverður og gisting í Roses.

 

Dagur 3 – Collioure – vín og suður-frönsk stemning – Béziers

Þriðjudagur 15. september

Við kveðjum Spán og höldum yfir landamærin til Frakklands, til strandbæjarins Collioure – einnar fegurstu perlu Côte Vermeille.

Litadýrð fiskimannahúsanna speglast í flóanum og kirkjuturninn rís yfir höfninni – eins og póstkort sem lifnar við.

Við förum í skemmtilega ferð með litlu túristalestinni upp í vínekrurnar þar sem við njótum stórkostlegs útsýnis yfir hafið og bæinn.
Heimsókn í ansjósuverksmiðju– staðbundin hefð sem á sér langa sögu.

Hádegisverður með frönskum sérkennum áður en haldið er áfram.
Við stoppum í Rivesaltes þar sem við heimsækjum víngerð og smökkum vín frá svæðinu.

Síðdegis komum við til Béziers, þar sem gist er næstu tvær nætur.

bateau cadaques.jpg.avif
dali.JPG.avif
collioure.jpeg
petit train.jpeg
écluses béziers.jpeg
halles béziers.jpeg

Dagur 4 – Béziers – Canal du Midi – Gérard Bertrand vín

Miðvikudagur 16. september

Béziers er ein elsta borg Frakklands og situr tignarlega á hæð yfir Orb-dalnum. Við skoðum borgina og förum með túristalest að hinum fræga Fonseranes-skipastiga við Canal du Midi – verkfræðiafrek frá 17. öld sem heillar enn í dag.

Við heimsækjum Les Halles markaðshöllina, þar sem suður-frönsk matarstemningin er allsráðandi.

Síðdegis höldum við til Narbonne og heimsækjum vínbúgarðinn Domaine de l'Hospitalet, þar sem vín frá Gérard Bertrand eru smökkuð í fallegu umhverfi vínekranna.

Kvöldverður og gisting í Béziers.

Dagur 5 – Andorra – Mirador Solaire

Fimmtudagur 17. september

Við leggjum snemma af stað til furstadæmisins Andorra, sem liggur hátt í Pýreneafjöllum.

Í Ordino-Arcalis tökum við stólalyftu upp í fjallaloftið. Fyrir þá sem vilja er stutt ganga upp að Mirador Solaire, útsýnispalli í 2.700 m hæð með 360° fjallasýn yfir Tristaina-hringinn.
Andrúmsloftið, kyrrðin og útsýnið eru einfaldlega ógleymanleg.

Gisting á 4★ Yomo Centric hóteli. Kvöldverður.

 

Dagur 6 – Andorra – hefðir, arkitektúr og verslun

Föstudagur 18. september

Við byrjum daginn á heimsókn til Cal Jordi, þar sem fjölskylduframleiðendur kynna staðbundnar kræsingar og leyfa okkur að smakka.

Næst heimsækjum við Sanctuary of Meritxell, glæsilegt verk arkitektsins Ricardo Bofill – einstök blanda af nútíma og hefð.

Síðdegis gefst frjáls tími í Andorra la Vella – hvort sem þú vilt versla, setjast á kaffihús eða einfaldlega njóta stemningarinnar.

Kveðjukvöldverður og síðasta nóttin í fjöllunum.

 

Dagur 7 – Andorra – Barcelona – heimferð

Laugardagur 19. september

Flug með Icelandair til Keflavíkur 15:45 - 18:20

Brottför af hóteli eftir morgunverð og ekið beint að flugvelli í Barcelona – fljúgum heim full af minningum og upplifunum.

domaine vin.webp
musée dali figueres.webp
domaine.jpeg
théatre béziers.jpeg

Hótel sem gist er á í ferðinni.

13 - 15 september.  4ra stjörnu Hotel Prestige Sant Marc.

 

15 - 17 september.  3ja stjörnu Hotel Imperator Béziers.

 

 

 

17 - 19 september. 4ra stjörnu Yomo Centric hotel Andorra. 

Prestige hotel.jpg
Prestige hotel 1.jpg
Yomo hotel 2.png
Imperator hotel 1.png
Imperator hotel 2.png
Yomo hotel 1.png

VERÐ og skilmálar

VERÐ KR 395.450,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI

Aukagjald vegna eins manns herbergis KR 65.050,-

13. - 19. september 2026

6 nætur

ATH. lágmarksþátttaka eru  20 manns og hámark eru 30

Spánn - Frakkland - Andorra

Miðjarðarhafið, listir, vín og menning

Þetta er ferð fyrir þá sem vilja:

  • Njóta listar og menningar á heimsmælikvarða

  • Smakka vín og staðbundnar kræsingar

  • Upplifa bæði haf og fjöll í einni og sömu ferðinni

  • Ferðast í góðum hópi með íslenskum fararstjóra

✨ Blanda af suðrænni lífsgleði, franskri fágun og andorrískri fjallakyrrð

  ✨ Ert þú tilbúin/n í ævintýrið?

FEB_Logo_244x100.png

VERÐ KR 395.450,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI

Aukagjald vegna eins manns herbergis KR 65.050,-

 

Upplýsingar um ferðina veitir Harpa -  harpa@heillandiheimur.is

​sími 8223890

cadaques 2.webp

​​Innifalið í verði:

  • Flug með Icelandair til og frá Barcelona

    • 20 kg. farangursheimild​

  • Allur akstur samkvæmt dagskrá

  • Gisting með morgunverði á 3ja og 4ra stjörnu hótelum

  • Hádegis- og kvöldverður alla daga

  • Bátsferð

  • Aðgangur að Dali safninu

  • Lestarferð

  • Heimsókn í ansjósu verksmiðju og smökkun

  • Heimsókn og vínsmökkun á vínbúgarði

  • Leiðsögn með staðarleiðsögumanni í Béziers

  • Heimsókn og smökkun á Domaine de l'Hospitalet by Gérard Bertrand

  • Íslenskur fararstjóri 

​​Ekki Innifalið í verði:

  • Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)

  • Drykkir með mat 

  • Allt annað sem ekki er upptalið í "innifalið" hér að ofan

​​Erfiðleikastig:

  • Allar göngur í ferðinni eru auðveldar, en krefjast þess þó að fólk geti gengið án aðstoðar göngugrindar og sé ekki bundið við hjólastól.

​​Skilmálar:

  • Staðfestingargjald kr. 100.000,- greiðist við bókun 

  • Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 13. júlí 2026

  • Allar greiðslur eru óendurkræfar

  • ATH að takmarkað magn er í boði af einstaklingsherbergjum

Blue Water

Hafðu samband

  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

Hlökkum til að heyra frá þér.

2024-004.jpg

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

©2021 Heillandi Heimur

bottom of page