
Hjólaferð - Í fótspor íslenskra höfðingja og pílagríma – Frá Kantaraborg til Reims!
9. - 18. apríl 2027
9 NÆTUR
ATH. lágmarksþátttaka eru 12 manns.
Via Francigena frá Kantaraborg til Reims
Ertu tilbúin(n) í ævintýri sem blandar saman stórfenglegri náttúru, mögnuðum sögum og ótrúlegri áskorun? Stígðu á hjólið og láttu drauminn rætast á hinni sögulegu pílagrímsleið Via Francigena.
Við bjóðum þér með í einstaka hjólaferð um grænar og fagrar sveitir þar sem saga miðalda lifnar við á hverju horni.
✨ Ert þú tilbúin/n í ævintýrið?
VERÐ KR 474.900,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI og með rafmagnshjóli.
VERÐ KR 474.900,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI með rafmagnshjóli.
Upplýsingar um ferðina veitir Harpa - harpa@heillandiheimur.is
sími 8223890
Erfiðleikastig og kröfur:
-
.
-
Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi reynslu af því að hjóla og hafi æft sig fyrir ferðina. Hjólað er á rafmagnshjólum.
Fararstjórar í ferðinni
Rósa Halldórsdóttir.
Rósa er með víðtæka menntun sem kemur sér vel sem fararstjóri. Hún er meðal annars leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði, jógakennari og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.
Reynsla hennar og þekking kemur sér vel í starfi hennar sem fararstjóri.
Harpa Einarsdóttir.
Harpa Einarsdóttir hefur yfir 20 ára reynslu af skipulagningu hópferða um allan heim. Hún leggur áherslu á vandað skipulag og persónulega þjónustu. Í heilsu-/hreyfiferðum Heillandi Heims er lögð áhersla á að vera með litla hópa þar sem hreyfing, náttúra og góð upplifun fara saman. Markmið Hörpu er að hver ferð verði eftirminnileg, bæði fyrir hreyfinguna sem í þeim felst og þær upplifanir sem skapast á leiðinni.

Hjólaferð um Via Francigena frá Kantarborg í Englandi til Reims í Frakklandi
✨ Ævintýrið hefst 9. apríl 2027 með flugi Icelandair til London Gatwick.
Um pílagrímsleiðina Via Francigena
Via Francigena – teygir sig í heild sinni 2.010 km frá Englandi, í gegnum Frakkland og Sviss, allt til Rómar! Við höfum skipt þessari mögnuðu leið upp í 6 hluta og nú stendur til að leggja í fyrsta hlutann. Líkt og hinn þekkti Jakobsvegur er Via Francigena viðurkennd sem Cultural Route of the Council of Europe. Leiðin tengir Canterbury við Róm og hefur um aldir verið farin af pílagrímum á leið suður Evrópu.
Við höfum skipt heildarleiðinni í 6 stórfenglega hluta:
-
Hluti: Frá Kantaraborg (Englandi) til Reims (Frakklandi) – það er ævintýrið sem við ætlum að leggja í núna.
-
Hluti: Frá Reims til Langres í Frakklandi.
-
Hluti: Frá Langres í gegnum Franche-Comté að landamærum Sviss.
-
Hluti: Í gegnum tignarlega tinda Sviss yfir hinn sögulega St. Bernharðsskarð.
-
Hluti: Niður dældir Ítalíu til Aosta og yfr Pódalinn.
-
Hluti: Lokaspretturinn í um Toskana og suður til Rómar.
Íslendingar sem gengu sömu slóðir – fyrir þúsund árum.
Þetta er ekki einungis hjólaferð, þetta er ferðalag aftur í tímann í fótspor þekktra Íslendinga sem fóru þessa sömu leið á miðöldum – hvort heldur sem var af trúarástríðu eða sem yfirbót fyrir skrautlegt líferni:
-
Hrafn Sveinbjarnarson, hinn landskunni læknir frá Arnarfirði, átti leið um England á sínum tíma og færði heilögum Tómasi Becket í Kantaraborg kostulegar gjafir áður en hann hélt suður til Rómar.
-
Sturla Sighvatsson (bróðursonur Snorra Sturlusonar) lét til sín taka í Róm, og víðfrægir höfðingjar eins og Gissur jarl Þorvaldsson, Kolbeinn ungi og Órækja Snorrason tróðu þessar slóðir til að leita fyrirgefningar og syndalausnar.
Af hverju Via Francigena?
Via Francigena er ein elsta pílagrímsleið Evrópu og liggur frá Canterbury alla leið til Rómar. Hún á sér meira en þúsund ára sögu en er enn mun minna farin en hinn þekkti Jakobsvegur. Rétt eins og Camino de Santiago hafa pílagrímar gengið Via Francigena um aldir. Á miðöldum tengdi hún saman klaustur um alla Evrópu og vísaði ferðamönnum veginn til hinnar eilífu borgar, Rómar.
Í dag er leiðin enn sem fyrr ferðalag trúar og uppgötvunar, sem býður nútímapílagrímum að hægja á sér og upplifa menningarlega og náttúrulega fegurð Evrópu. Og nú er tækifærið til þess að upplifa þessa pílagrímsleið á annan hátt, á rafmagnshjóli um grænar sveitir Englands og Frakklands, um sögufræga bæi og fallegt landslag allt þar til við komum til Reims í hjarta Champagne.
Þar lýkur okkar hluta leiðarinnar að þessu sinni, eins og við á – með kampavínsglasi.
Jakobsvegurinn er orðinn ein þekktasta pílagrímsleið heims. Á Via Francigena leiðinni er minna um mannfjölda og meira rými til að njóta ferðalagsins, landslagsins og stemningarinnar. Sama gamla pílagrímshefðin – en allt önnur upplifun.
Skoðaðu málið og tryggðu þér pláss í þessa mögnuðu ferð!
Gisting
Við gistum á góðum 3ja og 4ra stjörnu hótelum alla ferðina. Aðeins er gist í eina nótt á hverjum stað nema í Reims þar sem við tökum einn dag í lok ferðar. Þar er gist á 4ra stjörnu Best Western Premier Hôtel de la Paix. Á hótelinu er aðgangur að hitaðri sundlaug og sauna.
VERÐ KR 435.850,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI, á efra þilfari og með rafmagnshjóli.
Senda þarf fyrirspurn á harpa@heillandiheimur.is ef óskað er eftir eins manns herbergi.
Innifalið í verði:
-
Flug með Icelandair til Gatwick og heim frá París.
-
23 kg. farangursheimild
-
Akstur frá London Gatwick til Kantaraborgar
-
Gisting í eins eða tveggja manna herbergjum á 3ja og 4ra stjörnu hótelum
-
Morgunverður alla daga
-
Rafmagnshjól
-
Akstur frá Reims að CDG flugvelli í París
-
Heimsókn og vínsmökkun á Veuve Clicquot í Reims
-
Íslensk fararstjórn
Ekki Innifalið í verði:
-
Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)
-
Drykkir með mat sem er innifalinn
-
Allar máltíðir sem ekki eru upp taldar hér að ofan
-
Allar tillögur að valkvæðum ferðum
Skilmálar:
-
Staðfestingargjald kr. 130.000,- greiðist við bókun
-
Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 10. febrúar
-
Allar greiðslur eru óendurkræfar
-
ATH að takmarkað magn er í boði af einstaklingsherbergjum og þarf að óska sérstaklega eftir þeim
Líkamleg geta og þátttaka í ferðum
Í ferðum þar sem gert er ráð fyrir göngu, hjólreiðum eða annarri líkamlegri hreyfingu er mikilvægt að þátttakendur hafi þá líkamlegu getu og færni sem fram kemur í lýsingu viðkomandi ferðar. Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að meta hvort heilsa þeirra, þol og færni séu í samræmi við þær kröfur sem ferðin gerir.
Ef í ljós kemur á meðan á ferð stendur að þátttakandi uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til þátttöku, eða getur ekki tekið þátt í dagskrá með þeim hætti að öryggi hans sjálfs eða annarra sé tryggt eða að framkvæmd ferðarinnar raskist verulega, áskilur Heillandi Heimur sér rétt til að gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar teljast.
Slíkar ráðstafanir geta meðal annars falist í því að þátttakandi sleppi einstökum dagskrárliðum, fari styttri eða auðveldari leið þar sem það er mögulegt, nýti annan ferðamáta eða hætti þátttöku í viðkomandi dagksrárlið eða ferð sinni í heild. Kostnaður sem kann að falla til vegna slíkra breytinga er á ábyrgð þátttakanda. Samkvæmt skilmálum fást greiðslur vegna ferðar sem inntar hafa verið af hendi ekki endurgreiddar.
Erfiðleikastig og kröfur:
-
.
-
Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi reynslu af því að hjóla og hafi æft sig fyrir ferðina. Boðið er upp á rafmagnshjól.
Nánari ferðalýsing
Dagur 1. Ísland – Canterbury
Flug með Icelandair til London Gatwick 10:30 - 14:40.
Þaðan er ekið til hinnar sögufrægu borgar Kantaraborg (Canterbury). Eftir innritun gefst tími til að kynnast borginni, rölta um gamla miðbæinn og skoða hina glæsilegu Canterbury Cathedral. Canterbury er upphafsstaður Via Francigena og hér hefst hjólaævintýrið okkar.
Undirbúningur og stemning í sögulegu umhverfi.
Gist á Hampton by Hilton Canterbury.
Dagur 2 – Canterbury – Dover – Calais (um 35–40 km)
Eftir morgunverð fáum við rafmagnshjólin okkar og leggjum af stað frá Kantaraborg eftir fyrsta hluta Via Francigena. Hjólað er um fallegt og gróið landslag Kent, um litla bæi og sveitir í átt að Ermarsundinu.
Komið er til Dover síðdegis þar sem hjólunum er skilað og haldið um borð í ferju til Calais í Frakklandi. Siglingin yfir Ermarsundið tekur um 1½ klukkustund og við komuna til Calais er haldið á hótelið.
Gist á B&B Hotel Calais Terminal Cité Europe.
Dagur 3 – Calais – Saint-Omer (um 55 km)
Ný rafmagnshjól eru afhent í Calais og við hefjum franska hluta hjólaferðarinnar. Hjólað er frá ströndinni inn í sveitir Hauts-de-France, um friðsælt landslag, akra og litla bæi.
Áfangastaður dagsins er Saint-Omer, fallegur og sögufrægur bær með notalegum miðbæ, gömlum húsum og glæsilegri dómkirkju.
Gist á Mercure Saint-Omer Centre Gare.
Dagur 4 – Saint-Omer – Bruay-la-Buissière (um 55 km)
Hjólað er áfram suður um sveitir Norður-Frakklands. Leiðin liggur um aflíðandi landslag, fram hjá litlum þorpum og gegnum landbúnaðarhéruð þar sem gott er að njóta þess að ferðast á rólegum hraða.
Að hjóladegi loknum er komið til Bruay-la-Buissière og gist í Gosnay.
Gist á La Métairie.
Dagur 5 – Bruay-la-Buissière – Albert (um 75 km)
Lengsti hjóladagur ferðarinnar en rafmagnshjólin gera okkur kleift að taka daginn á þægilegum hraða. Hjólað er áfram suður um Pas-de-Calais og inn á Somme-svæðið, um opnar sveitir og litla franska bæi.
Komið er til Albert síðdegis. Borgin tengist sterklega sögu fyrri heimsstyrjaldarinnar og eitt helsta kennileiti hennar er hin glæsilega basilíka Notre-Dame de Brebières með gylltri Maríustyttunni sem gnæfir yfir bæinn.
Gist á Logis Hôtel de la Basilique.
Dagur 6 – Albert – Saint-Quentin (um 70 km)
Við kveðjum Albert og hjólum áfram um sveitir Picardie. Landslagið er að mestu opið og aflíðandi og leiðin liggur um akra og smærri bæi áður en komið er til Saint-Quentin.
Saint-Quentin er sérstaklega þekkt fyrir fallegar Art Deco byggingar og glæsilegt ráðhústorg. Eftir góðan hjóladag gefst tími til að njóta stemningarinnar í miðbænum.
Gist á The Originals Boutique – Les Coulisses du Théâtre.
Dagur 7 – Saint-Quentin – Laon (um 53 km)
Í dag er heldur styttri hjólaleið. Hjólað er um sveitirnar í átt að Laon sem sést úr fjarska þar sem gamli borgarhlutinn stendur hátt á hæð yfir sléttlendinu í kring.
Síðasti kaflinn upp í gamla bæinn er ein af meiri hækkunum ferðarinnar, en rafmagnshjólin koma þar að góðum notum. Laon er einstaklega falleg miðaldaborg og þar gnæfir hin stórbrotna Notre-Dame de Laon dómkirkja yfir borginni.
Gist á Hôtel Kyriad Laon.
Dagur 8 – Laon – Reims (um 60 km)
Síðasti hjóladagurinn. Við yfirgefum Laon og hjólum um aflíðandi sveitir í átt að hinu heimsfræga Champagne-héraði. Smám saman nálgumst við Reims, eina mikilvægustu borg kampavínshéraðsins.
Við komuna til Reims lýkur hjólaævintýrinu eftir samtals um 400 km á hjóli frá Canterbury. Að sjálfsögðu verður því fagnað á viðeigandi hátt með heimsókn í eitt af þekktum kampavínshúsum borgarinnar og kampavínssmökkun.
Gist á Best Western Premier Hôtel de la Paix.
Dagur 9 – Reims
Dagurinn er helgaður Reims. Borgin er ekki aðeins höfuðborg kampavínsins heldur einnig ein merkasta söguborg Frakklands. Þar er meðal annars hin stórbrotna Notre-Dame de Reims dómkirkja, þar sem franskir konungar voru krýndir um aldir. Þennan dag ætlum við að heimsækja framleiðanda hins fræga kampavíns Veuve Clicquot 🍾🥂 og smökkum vínin þeirra.
Dagur 10 – brottför
Brottför til Keflavíkur frá CDG flugvelli í París með flugi Icelandair kl. 17:15 - 18:45.

Hafðu samband

Hlökkum til að heyra frá þér.
Heillandi Heimur
Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland
info[at]heillandiheimur.is
Sími +354 822 3890
Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is
©2021 Heillandi Heimur
