top of page
Golf Tene1.jpg
GOLF Á TENERIFE

HÓTEL LAS MADRIGUERAS 

​

30. APRÍL - 7. MAÍ 2022

7 NÆTUR / 8 DAGAR

​

 

Fimm stjörnu Boutique golfhótel í hjarta Playa de Las Americas á suðurhluta Tenerife. Meðal þess sem þú finnur á hótelinu er sundlaug, heilsulind, veitingastaðir og coktail bar. Golfvöllurinn er frábær 18 holu, par 72 keppnisgolfvöllur.

​

VERÐ kr. 289.900,- 

Verð á mann miðað við 2 fullorðna í herbergi

 

ATH. LÁGMARKSÞÁTTTAKA Í ÞESSA FERÐ ERU 10 MANNS

 

 

Las Madrigueras er 5* Boutique golfhótel staðsett á fallegum stað á Tenerife á Spáni. Á hótelinu eru 44 superior herbergi sem eru einstaklega rúmgóð og falleg. Frá hótelinu geta gestir notið útsýnisins yfir golfvöllinn Las Americas og eyjuna Gomera. Boðið er upp á framúrskarandi þjónustu og fyrsta flokks þægindi. 

 

Glæsileg heilsulind er á hótelinu þar sem meðal annars má finna tyrkneskt bað, gufubað og heita potta. Einnig er  boðið upp á úrval meðferða eins og nudd, andlitsböð ofl. 

 

Það eru tveir veitingastaðir á Las Madrigueras hótelinu, Bogey og Belle Vue Terrace. Belle Vue Terrace býður upp á létta rétti í hádeginu og á Bogey er morgunverðarhlaðborð og  „à la carte“ á kvöldin. Á píanóbarnum og við sundlaugina má svo fá sér kokteil þar sem gestir geta notið stemmningarinnar og slakað á eftir góðan golfdag.

Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn. 

 

Golfvöllurinn, Golf Las Américas, er 18 holu keppnisgolfvöllur par 72 með fjölda vatna, vatnsfylltra gilja og sandgryfja. Mikill metnaður og fagmennska er lögð í viðhald á vellinum og hafa mörg spænsk meistaramót farið fram á vellinum.

Golf Tene
Golf Tene4
Golf Tene2
Hole13_Golf-Las-Americas-1
Tene6
Tene8
Tene7
Tene5
Tene3
Tene2
Tene4
Tene
Tene6
Golf Tene8
Golf Tene5
Golf Tene1
Golf tene 7
Golf Tene9
Golf Tene6

​

VERÐ KR 289.900,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI   

VERÐ KR. 384.700,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI

 

Innifalið í verði er: 

  • 7 nátta gisting á Las Madrigueras 5* hóteli með morgunverði 

  • Beint flug með Play - farangursheimild ein 20 kg taska og golfpoki 

  • 3 kvöldverðir á Bogey veitingarstað hótelsins 

  • Ótakmarkað golf  og golfbíll

  • 25 mínútna nudd á heilsulind hótelsins

  • Frír aðgangur að heilsulind hótelsins

  • Frítt WIFI  

  • Íslensk fararstjórn, Ragnheiður Eiríks Friðriksdóttir (Raggý)

  • Akstur til og frá flugvelli

       

​​

FLUG MEÐ PLAY

Beint flug með Play frá KEF til Tenerife þann 30. apríl 2022 kl. 10:00 lent á Tenerife kl. 16:50 

Beint flug með Play frá Tenerife til Keflavíkur þann 7. maí 2022 kl. 22:10 lent í KEF kl. 02:50 ​

​

Hotel Las Madrigueras, Golf Las Américas, Tenerife Golf Hotels

Hotel Las Madrigueras, Golf Las Américas, Tenerife Golf Hotels

Blue Water

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info (at) heillandiheimur.is

Hlökkum til að heyra frá þér.

Blue Water
  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

Hlökkum til að heyra frá þér.

Ferðaskrifstofuleyfi

©2021 Heillandi Heimur

bottom of page