
Ferð félags eldri borgara
Gönguferð um hið dásamlega Toskana hérað á Ítalíu.
Náttúra, menning, saga og andleg upplifun fléttast saman í þessari ferð.
Við göngum í fótspor Guðríðar landkönnuðar og förum hluta af pílagrímsleið hennar til Rómar. Guðríður Þorbjarnardóttir er ein af athyglisverðustu persónum í íslenskri sögu. Hún er talin vera víðförlasta kona þess tíma er hún var uppi í kringum árið 1000. Sögur herma að hún hafi siglt 8 sinnum yfir úthöf. Eftir að hún varð ekkja í annað sinn ákvað hún að fara í pílagrímsferð til Rómar, en hún var kristin trúar. Það fór reyndar svo að eftir að hún kom heim aftur gerðist hún nunna. Heimildarmyndin „The Far Traveller“ sem kom út á árinu 2020 fjallar um ævi Guðríðar og ferðir hennar um heiminn. Guðríður er ein aðalsöguhetjan í Vínlandssögum (Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu).
Via Francigena (vegurinn til Rómar sem kemur frá Frakklandi) er ein elsta og vinsælasta pílagrímsleið í Evrópu. Leiðin liggur um 3.200 km frá Canterbury á Englandi, í gegnum Frakkland og Sviss til Rómaborgar á Ítalíu og áfram til Puglia á Ítalíu. Þaðan var svo höfn
þar sem hægt var að fara um borð í skip og sigla til „Heilaga landsins“, Jerúsalem. Guðríður er talin hafa gengið leiðina frá Canterbury til Rómar.
Í þessari ferð göngum við einn fallegasta hluta af þessari sögufrægu gönguleið, Via Francigena, eða um Toskana héraðið, frá San Miniato til Lucignano. Gönguleiðin er auðveld yfirferðar og gengið er frá 10 – 20 km hvern dag. Við ætlum því fyrst og fremst að njóta í þessari ferð enda landslagið einstaklega fagurt.
Hápunktar ferðarinnar eru:
-
Heimsókn til einnar af fegurstu borgum heims, Flórens
-
Einstaklega fallegt landslag Toskana héraðsins
-
Heillandi bæir sem eru á heimsmynjaskrá UNESCO, San Gimignano og Siena
-
Ljúffengur ítalskur matur úr Toskana héraðinu
-
Vínsmökkun á vínum héraðsins
-
Gisting í litlum fjölskyldureknum gistiheimilum
Ferðin byrjar og endar í Róm og hægt er að framlengja ferðina og eiga nokkra daga í þessari fallegu og sögufrægu borg.
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
|---|---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() |
VERÐ KR 294.500 - Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI
Innifalið í verði er:
-
Flug til og frá Róm með Wizzair
-
Allur akstur samkvæmt dagskrá
-
Gisting við flugvöllinn í Róm við komu og í miðbænum nóttina fyrir brottför
-
Gisting á litlum fjölskyldureknum gistiheimilum
-
Morgunverður
-
Matur og veitingar eins og fram er tekið í dagskrá
-
Gönguferð með ítalskri leiðsögn á ensku
-
Íslensk fararstjórn
FLUG MEÐ WIZZAIR
Beint flug með Wizz air frá KEF til Róm þann 21 maí kl. 19:45. Lent í Róm kl 02:25 þann 22 maí.
Beint flug með Wizz air frá Róm til KEF þann 28 maí kl. 16:00. Lent í Kef kl 19:05











