top of page
Gaucin.jpg
Útivist, slökun og fræðsla í Malagahéraði á Spáni í maí 2025 með Heiðu Björk Sturludóttur.

21 - 28 maí 2025

7 DAGAR

ATH. LÁGMARKSÞÁTTTAKA Í ÞESSA FERÐ ERU 12 MANNS

Screenshot 2024-10-15 at 13.30.51.png

Heilsuefling á Malaga á Spáni

21 - 28 maí 2025

VERÐ frá KR. 215.000,-

á mann miðað við 4 fullorðna í herbergi .  Sjá hér að neðan hvað er innifalið.

ATH ATH - Flug er EKKI innifalið í þessu verði.

Útivist, fræðsla og heilsa í fjöllum Malagahéraðs á Spáni í Maí 2025

 

Komdu með Heiðu Björk í heilsueflandi ferð til Andalúsíuhéraðs á Spáni. Farið verður í göngur um fjöllin og korkskóginn, mjúkt jóga á morgnana í jógatjaldinu, yoga nidra (leidd liggjandi djúpslökun) á kvöldin, nudd og leirbað fyrir þá sem vilja. 

Heiða Björk starfar við heilsu- og lífsstílsráðgjöf byggða á ayurveda lífsvísindunum og næringarþerapíu. Hún vinnur einnig að heildrænni heilun með aðferð LNT þar sem unnið er með efnislíkamann, orkulíkamann og sálarlíkamann til að stuðla að aukinni vellíðan og bættri heilsu. .

Áður kenndi hún sögu og umhverfisfræði á menntaskólastigi en Heiða Björk er menntaður framhaldsskólakennari sem kemur sér vel þegar hún heldur námskeið eða fyrirlestra. 

​Heiða Björk mun vera með fræðsluspjall einn daginn um áhrif næringar á andlega og líkamlega heilsu út frá hinum fornu indversku lífsvísindum ayurveda og hver og einn fær aðstoð til að finna út sína meðfæddu líkamsgerð skv ayurveda fræðunum.​

Heiða.webp

Námskeiðið hefst í hinu heillandi fjallaþorpi Gaucín sem er nærri El Colmenar þar sem heilsubúgarðurinn Casa Rural Ahora er staðsettur. Í Gaucín notum við tækifærið og höfum söguspjall um márana á Spáni sem settu ærlegt mark sitt á landið með nær átta alda valdatíma sem einkenndist af blómstrandi menningu, framþróun í vísindum og efnahagslífi.

 

Í Gaucín gefst tími til að skoða kastalann sem á rætur að rekja til tíma Rómverja en var mikilvægt virki á tíma máranna. Farið verður út að borða á veitingastað þar sem stórkostlegt útsýni gefur matnum aukið gildi, en hægt er að sjá ljósin í Afríku hinum megin Gíbraltarsundsins í kvöldrökkrinu.

Næsta dag gerum við léttar æfingar fyrir morgunverð áður en lagt er af stað í göngu niður fjallið til þorpsins El Colmenar þar sem heilsubúgarðurinn Casa Rural Ahora er staðsettur. Þar verður síðan dvalið næstu sex nætur.

Dagskrá ferðarinnar

21. maí:

Allir hittast við rómversku rústirnar í miðbæ Malaga kl 10:00. Töskurnar er best að geyma á hótelinu þar sem gist var nóttina áður (gisting þá nótt ekki innifalin eða bókuð). Við göngum lítinn hring um miðbæinn og setjumst í bröns nærri rómversku rústunum með útsýni til Alcazaba márakastalans. Í labbinu verður sýnt hvar rútan nær í okkur síðar um daginn. 

 

Rúta sækir okkur kl.13:00 og lagt í hann til fjallaþorpsins el Gaucín sem er 1,5 klst akstur. Á leiðinni verður stutt stopp í ostabúð sem sérhæfir sig í geitaosti og selur ýmislegt annað úr héraðinu eins og vandaðar ólífuolíur, pylsur og hunang.

Í Gaucín verður gengið um bæinn og kannski kíkt á Arnarkastala (Castillo del Agila), sem er kastali frá tíma Rómverja sem er í útjaðri bæjarins. Aðeins um 20 mín ganga. Farið út að borða saman um kvöldið á stað með stórkostlegu útsýni yfir til Marokkó í Afríku. Gist í Gaucín.

22. maí:

Morgunæfingar. Morgunverður og síðan gengið frá Gaucín til Casa Rural. Þetta er um 3-4 klst ganga og að mestu niður á við. Lagt af stað um kl. 10:00 - 10:30. Bíll kemur að sækja farangur og ferjar hann niður til Casa Rural Ahora.

kll 17:00 verður kynningarhringur í jógatjaldinu í Casa Rural Ahora.  Kvöldmatur kl 19:30.

 

23-28 maí:

Námskeið í Casa Rural Ahora. Jóga, hugleiðsla, öndunaræfingar, djúpslökun, nudd, leirbað, göngur og fræðsluerindi.

  • Hver dagur hefst á annaðhvort jóga og slökun í jógatjaldinu eða léttri göngu frá 8:00 - 9:30

  • Morgunverður kl. 9:45 - 10:30

  • Hádegisverður kl. 14:30-15:30 (aðal máltíð dagsins)

  • Kvöldverður kl. 19:30 - 20:30 (létt máltíð s.s. súpa og/eða eldað grænmeti og salat)

  • Alla daga er frjáls tími fram að hádegisverði nema daginn sem við tökum fræðsluspjallið. Stundum er farið í göngu fyrir hádegisverð. Aðra daga fara þeir í nudd eða leirbað, sem það eiga bókað. 

  • Eftir hádegisverð er frjáls tími fram að kvöldverði. Nudd eða leirbað hjá þeim sem það eiga bókað. Hægt að ganga niður að á, synda og sóla sig.

  • Einn daginn verður fræðsla og heilsuspjall eftir morgunverð: Áhrif næringar og lífsstíls á andlega og líkamlega heilsu og kosti þess að styðja við hreinsun líkamans.  Aðferð Ayurveda við hreinsun líkamans er útskýrð og rætt um mismunandi líkamsgerðir og hvernig ákveðið fæði og lífsstíll hentar fólki misvel. Dæmi tekið af ketó, köldum böðum, hot yoga og föstum og fleiru sem er misgott fyrir fólk.

  • Alla dagana verður hreinsandi og meltingaraukandi kryddte í boði í anda ayurveda.

  • Jóga Nidra leidd liggjandi djúpslökun og spilað á tónskálar dagega.  Suma daga er jóga nidra í eftirmiðdaginn og kvöldin þá laus í leirbað eða nudd í staðinn.

 

Dagskrá lýkur miðvikudaginn 28. maí eftir morgunjóga og morgunverð. Rúta sækir hópinn kl. 11:00. Komið til Malaga um kl. 15:00. Stoppað í þorpinu Casares á leiðinni niður til Malaga og gengið aðeins um þetta fallega litla fjallaþorp. 

ATHUGIÐ:

  • Reykingar eru ekki leyfðar innan búgarðsins.

  • Kaffi verður ekki í boði í Casa Rural Ahora þar sem það vinnur gegn heilsubótarmarkmiðum ferðarinnar. En fyrir þá sem vilja fá sér sopann sinn eru nokkur kaffihús í þorpinu. Aðeins 3-4 mínútur að ganga frá búgarðinum.

Ekki þarf að hafa reynslu af jóga til að taka þátt.

Jógakennari og leiðangursstjóri er Heiða Björk Sturludóttir, leiðsögumaður, umhverfisfræðingur, sagnfræðingur, kennari, jógakennari, ayurveda sérfræðingur og næringarþerapisti. Henni til aðstoðar er Þröstur Sverrisson, umhverfissagnfræðingur og leiðsögumaður.

Castillo-visit-gaucin-1000x675.jpg
Auyrveda.webp
barranco-buitreras-2-rotated.jpg
Screenshot 2024-10-15 at 13.28.04.png
Screenshot 2024-10-15 at 13.27.18.png
Screenshot 2024-10-15 at 13.27.25.png
Screenshot 2024-10-15 at 13.28.13.png
Castillo-visit-gaucin-1000x675
Screenshot 2024-10-15 at 13.30.51
Screenshot 2024-10-15 at 13.28.28
Screenshot 2024-10-15 at 13.28.41
Screenshot 2024-10-15 at 13.28.13
Screenshot 2024-10-15 at 13.27.25
Screenshot 2024-10-15 at 13.27.18
Screenshot 2024-10-15 at 13.28.04
Screenshot 2024-10-15 at 13.27.00
Gaucin
Auyrveda
barranco-buitreras-2-rotated

VERÐ

KR 255.000 -  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI 

KR 215.000 -  Á MANN MIÐAÐ VIÐ FJÓRA SASMAN Í HERBERGI 

Verðskilmálar: Greiða þarf staðfestingargjald að upphæð 80.000 kr. við skráningu. 

Ganga þarf frá eftirstöðvum í síðasta lagi 16 mars 2025.

Ekki er endurgreitt ef forföll eru tilkynnt eftir 16. mars 2025.

Ef afbókað er fyrir þann tíma er öll upphæðin endurgreidd fyrir utan staðfestingargjaldið. Ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp t.d. vegna alvarlegra veikinda verður ferðin endurgreidd að fullu fyrir utan staðfestingargjaldið.

 

Innifalið í verði: 

  • Gisting og morgunverður í fjallaþorpinu Gaucín

  • Gisting og fullt fæði í Casa Rural Ahora heilsubúgarðinum

  • Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á meðan á dvöl stendur (Grænmetisfæði en þó stundum boðið upp á eggjaköku og kindaost)

  • Efnaskiptate í anda ayurveda í boði alla dagana í Casa Rural Ahora

  • Filterað vatn til drykkjar

  • Morgunjóga (kundalini yoga, mjúkt jóga og yin yoga, öndunaræfingar og hugleiðsla)

  • Jóga nidra leidd liggjandi djúpslökun daglega. Spilað á söngskálar í lokin.

  • Jógamottur

  • Næringar- og heilsufræðsla í anda ayurveda lífsvísindanna indversku með stöku fræðslupunktum úr vestrænni næringarþerapíu.

  • Sögufræðsla um veldistíma máranna á Spáni (Heiða kenndi sögu máranna í 15 ár í framhaldsskóla og er höfundur kennsluefnisins)

  • Gisting í tveggja- og þriggja manna herbergjum með baði. Eitt fjögurra manna herbergi í boði líka þar sem hvert rúm er með sitt náttborð. Ekki kojur.

  • Handklæði, sápa og sængurfatnaður. (skipt um einu sinni á meðan á dvöl stendur eða oftar ef þörf krefur)

  • Fimm göngur með leiðsögn:

  • Gengið frá Gaucín til Casa Rural Ahora (3-4 klst)

  • Í Casa Rural Ahora: Tvær léttar göngur (um 1 klst). Tvær lengri göngur; önnur um 3 klst og talsverð hækkun og síðasta gangan er rúmar 3 klst með stoppum, að hinu dásamlega fallega Hrægammagljúfri. Þangað göngum við síðasta daginn með nesti og böðum okkur í tærri ánni.

  • Rúta upp í fjöllin 21. maí og aftur til baka 28. maí.

  • Flutningur á farangri frá Gaucín á meðan hópurinn gengur niður til Casa Rural Ahora 

 

EKKI INNIFALIÐ:

  • Flug til Malaga

  • Gisting og bröns þann 21. maí í Malagaborg

  • Nudd og leirbað í Casa Rural Ahora (nuddið kostar um 40-45 evrur og leirbaðið um 20 evrur. Nákvæmt verð verður klárt í febrúar 2025)

  • Hádegis- og kvöldverður í Gaucín og nesti til að taka með í gönguna niður til Casa Rural Ahora daginn eftir (22. maí)

Blue Water

Hafðu samband

Takk fyrir skilaboðin. Við munum svara eins fljótt og auðið er.

bottom of page