
Hjól- og ganga í Slóveníu
Ljubljana, Bohinj dalurinn og Bled
Göngur - hjól - matur - saga - slökun - stórbrotin náttúra
Ferðin hefst og henni lýkur í Ljubljana sem er ein fámennasta höfuðborg Evrópu með um 293.000 íbúa. Borgin er mjög aðlaðandi með kastala, fallegum gömlum byggingum, þröngum strætum og sögulegum stöðum sem verða skoðaðir í hjóla- og matarferð. Ljubljana er vinaleg borg með afslappaðan anda og græna sál, en hún er einnig menningarmiðstöð Slóveníu með háskólasetri, leikhúsum, óperu og fleira. Það má því með sanni segja að borgin hafi uppá margt að bjóða.
Farið verður í einn af elstu þjóðgörðum Evrópu, Triglav þjóðgarðinn, mismunandi svæði hans verða skoðuð í göngu- og hjólaferðum. Gist verður á frábærum hótelum með sundlaugum og heilsulind, annars vegar í paradísardalnum Bohinj sem er umvafinn Júlísku Ölpunum og hins vegar í náttúruperlunni Bled í jaðri Triglav þjóðgarðsins. Á Triglav svæðinu má finna gríðarlega náttúrufegurð með víðáttumiklum skógum, beitilöndum, djúpum dölum og kristaltæru vatni sem rennur niður úr hlíðum fjalla í ár, vötn og læki. Í hjarta þjóðgarðsins við rætur óspilltra fjalla og fjallatinda er stærsta vatn Slóveníu, Bohinj-vatnið. Þjóðgarðurinn er ekki aðeins frægur fyrir fallega náttúru heldur einnig fyrir ríka arfleifð goðsagna og þjóðsagna. Á þessu svæði lifir fólk í sátt og samlyndi við náttúruna.
Dagskrá
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi sér sjálfir til Ljubljana en dagskránin hefst þar 1. október. Við aðstoðum að sjálfsögðu við að bóka flug ef óskað er eftir. Gist verður í höfuðborginni fyrstu tvær næturnar og borgin skoðuð á hjólum. Á degi 3 verður ekið af stað til Bohinj dalsins þar sem gist verður í 3 nætur. Á þessum dögum verður gengið um svæðið umhverfis Bohinj vatnið og hin dásamlega náttúra Triglav þjóðgarðsins skoðuð í göngu- og hjólaferðum.
Frá Bohinj dalnum verður farið til Bled sem er ímynd paradísar og hefur svæðið verið tilnefnt til "Seven wonders of the world". Farið verður um svæðið á hjólum um fallega slóða sem aðeins heimamenn þekkja og þátttakendur geta notið þess helsta sem Bled bíður upp á. Það er sannkallað ævintýri að dást að vatninu í Bled, litlu eyjunni og tilkomumikla kastalanum.
Ferðin endar á upphafsstað, í Ljubljana og síðustu nóttina er gist í höfuðborginni. Mögulegt er að lengja ferðina bæði í byrjun og lok ferðar.
Ýtarlegri dagskrá og nánari upplýsingar má finna í ferðaáætlun.
Gisting
Hótel Slon**** er staðsett í hjarta Ljubljana, í 5mín göngufæri frá kastalanum og Tívolíinu.
The Bohinj Eco Hotel*** er vistvænt hótel staðsett í Júlísku Ölpunum. Það hefur gott orðspor fyrir framúrskarandi matargerð og fjölbreytt framboð afþreyingar. Sundlaug og heilsulind er við hótelið.
Hótel Rikli Balance**** fléttar saman hefðir staðarins við bætta heilsu og vellíðan gesta. Sundlaug og heilsulind er við hótelið.
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
|---|---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() |
VERÐ KR 209.700,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI
VERÐ KR 249.700,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI
Innifalið í verði
-
Akstur samkvæmt leiðarlýsingu
-
3-4 klst hjóla- og matarferð með staðarleiðsögumanni í Ljubljana.
-
3-4 klst gönguferð með staðarleiðsögumanni meðfram Bohinj vatninu að einum mest heimsótta fossi Slóveníu, Savica.
-
4 klst hjólaferð með staðarleiðsögumanni um svæði Júlísku Alpanna.
-
8 klst gönguferð með staðarleiðsögumanni í Júlísku Ölpunum.
-
4 klst hjólaferð með staðarleiðsögumanni um náttúruperlur eins þekktasta bæjar Slóveníu, Bled.
-
75 mín skoðunarferð um miðaldarbæinn Radovljica
-
Gisting í tveggja manna herbergi í 3 nætur á Best Western hótel Slon í Ljubljana með morgunmat og aðgang í sauna og líkamsrækt.
-
Gisting í tveggja manna herbergi í 3 nætur á Bohinj Eco hótel með morgun- og kvöldmat og aðgang að sundlaug/heilsulind.
-
Gisting í tveggja manna herbergi á Rikli Balance hótel í 1 nótt með morgun- og kvöldmat og aðgang að sundlaug/heilsulind.
-
Íslenskur fararstjóri
Ekki Innifalið í verði
-
Flug til og frá Slóveníu.
-
Þátttakendur sjá sjálfir um að koma sér til og frá hóteli Ljubljana.
1.-8. OKTÓBER 2022
7 NÆTUR / 8 DAGAR
ATH. LÁGMARKSÞÁTTTAKA Í ÞESSA FERÐ ERU 14 MANNS
Spennandi hreyfiferð til Slóveníu þar sem göngu- og hjólaferðir, matur, saga, slökun og stórbrotin náttúra fléttast saman.
Ferðin hefst og henni lýkur í Ljubljana, höfuðborg Slóveníu. Farið verður um þessa fallegu borg í hjóla- og matarferð þar sem sjá má kastala, fallegar gamlar byggingar og sögulega staði. Triglav þjóðgarðinn verður heimsóttur og mismunandi svæði hans verða könnuð ýmist í göngu- eða hjólaferðum. Gist verður á frábærum hótelum þar sem hægt verður að slaka á eftir hreyfingu dagsins í sauna, sundlaugum eða heilsulindum.
Erfiðleikastig 2 af 5
VERÐ KR. 209.700, - á mann miðað við 2 fullorðna í herbergi
VERÐ KR. 249.700, - á mann miðað við 1 fullorðinn í herbergi






















