top of page
Screenshot 2026-06-09 at 17.45.46.png
Heillandi Heimur í Kent
Göngu- og menningarferð um eitt fallegasta hérað Suður-Englands

28. ágúst - 4. september 2026

7 NÆTUR 

ATH. lágmarksþátttaka eru  10 manns 

Sveitasæla, stórbrotin strandlengja og rík saga !

 

Upplifðu hið sanna England í ferð sem leiðir okkur frá hinum stórbrotnu hvítu klettum Dover um grænar sveitir Kent til miðaldaborgarinnar Canterbury.

 

Við göngum um fallegt landslag, heimsækjum kastala og dómkirkju, njótum strandlífsins í Whitstable, smökkum vín og bjór frá staðbundnum framleiðendum og sökkvum okkur inn í sögu, menningu og fegurð þessa einstaka héraðs.

​Í ferðinni gefst þeim sem vilja einstakt tækifæri til að stinga tánni í Ermarsundið – eða jafnvel taka sundsprett í einu frægasta sundi heims.

✨ Fullkomin blanda af göngum, menningu, stemmingu, náttúru og góðum mat.

VERÐ KR 380.600,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI.

Aukalega KR 62.705,-  MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.

Upplýsingar um ferðina veita:

Rósa Halldórsdóttir - rosa@sensationalworld.is eða sími 661 7041

Harpa -  harpa@heillandiheimur.is eða ​sími 822 3890

Screenshot 2026-06-09 at 19.49.45.png

Göngu- og menningarferð um Kent í Suður-Englandi

Ævintýrið hefst 28. ágúst 2026 með flugi með Icelandair til London Gatwick. 

Kent er gjarnan kallað „garður Englands“ og ekki að ástæðulausu. Hér mætast grænar sveitir, hvítir kalkklettar, falleg strandþorp, sögulegar borgir og aldagömul menningararfleifð sem hefur mótað sögu Englands í árhundruð. 

Í þessari notalegu göngu- og menningarferð upplifum við það besta sem Kent hefur upp á að bjóða. Við göngum eftir strandstígum með útsýni yfir Ermarsundið, heimsækjum kastala og dómkirkju, röltum um heillandi sjávarþorp, smökkum vín og bjór frá staðbundnum framleiðendum og njótum þess að ferðast á rólegum hraða þar sem tími gefst til að upplifa og njóta. 

Við fylgjum hinum frægu hvítu klettum Dover, heimsækjum hinn sögufræga Dover-kastala, göngum um miðaldaborgina Canterbury og kynnumst sjávarstemningunni í Whitstable, sem er þekkt um allt England fyrir ostrur sínar og líflega hafnarmenningu. 

Á leiðinni gefst þeim sem vilja einstakt tækifæri til að stinga tánni í Ermarsundið – eða jafnvel taka sundsprett í einu frægasta sundi heims.  Við munum svo heimsækja hina sögufrægu White Horse krá, þar sem þeir sem synt hafa Ermarsundið hafa skráð nafn sitt og dagsetningu á sundinu á veggi kráarinnar.

Þetta er ferð fyrir þá sem vilja sameina fallegar göngur, menningu, sögu, góðan mat og einstaka stemningu ensku sveitanna. ​​

Fararstjórar í ferðinni

Rósa Halldórsdóttir.

Rósa er með víðtæka menntun sem kemur sér vel sem fararstjóri.  Hún er meðal annars leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.  

Rósa hefur áður verið með hóp í ferð sem þessi ferð er byggð á.

Harpa Einarsdóttir.

Harpa er eigandi ferðaskrifstofunnar og hefur verið með hópa í ferðum vítt og breytt um heiminn.​

IMG_7182.HEIC

Dagskrá ferðarinnar:

 

Dagur 1 – Föstudagur 28. ágúst 

Flug með Icelandair frá Keflavík til London Gatwick. 10:30 - 14:40

Við komuna til Englands tekur rúta á móti hópnum og ekið er til strandbæjarins Dover við suðausturströnd landsins. 

 

Eftir innritun á hótelið gefst tími til að slaka á eða kanna nærumhverfið áður en við hittumst öll saman í sameiginlegum kvöldverði og setjum tóninn fyrir komandi daga. 

Dagur 2 – Laugardagur 29. ágúst 

Hvítu klettarnir í Dover og Walmer-kastali .

Við byrjum ferðina á einni fegurstu gönguleið Suður-Englands.  Gengið er frá Dover að St. Margaret's Bay eftir stígum sem liggja uppi á hinum heimsfrægu hvítu kalkklettum Dover. Útsýnið yfir Ermarsundið er stórkostlegt og á björtum degi má sjá strendur Frakklands handan hafsins. 

Við njótum hádegisverðar á hinum notalega Smugglers Bar áður en haldið er áfram til Walmer.  Göngunni lýkur við Walmer-kastala, sem var reistur af Henry VIII á árunum 1539–1540 til að verja suðurströnd Englands. Í dag er kastalinn fallegt sveitasetur með glæsilegum görðum sem gaman er að skoða.  Við fáum okkur hressingu í testofunni og tökum svo strætó til baka. Komum á hótelið seinni part dags.  

Eftir að við komum til baka á hótelið gefst þeim sem vilja einstakt tækifæri til að skella sér til sunds í Ermarsundinu. Fyrir marga verður það sérstök upplifun að synda í sama sundi og þúsundir sundgarpa hafa lagt undir sig í gegnum tíðina. 

Að sundinu loknu höldum við á hina sögufrægu strandkrá The White Horse, þar sem við fáum okkur hressingu og njótum stemningarinnar. Kráin hefur lengi verið vinsæll viðkomustaður þeirra sem tengjast þessu fræga sundi og á veggjum hennar má finna nöfn og dagsetningar þeirra sem hafa synt yfir Ermarsundið.

Gönguvegalengd: um 13 km. 

Screenshot 2026-06-09 at 19.12.47.png
Screenshot 2026-06-09 at 18.44.23.png
4332.JPG

Dagur 3 – Sunnudagur 30. ágúst 

Dover-kastali og Canterbury 

Við kveðjum Dover en áður en haldið er áfram gefum við okkur góðan tíma til að skoða eitt merkasta virki Bretlands, Dover kastala (um 20 mín gangur). 

Kastalinn hefur staðið vörð yfir ströndinni í nærri tvö þúsund ár og gegnt lykilhlutverki í sögu Englands. Hér má sjá miðaldakastala, neðanjarðargöng og sýningar sem tengjast síðari heimsstyrjöldinni. 

Eftir heimsóknina fáum við okkur hádegisverð í Dover áður en ekið er til Canterbury. 

Við komum okkur fyrir á hótelinu og njótum frjáls tíma í þessari fallegu miðaldaborg. 

Screenshot 2026-06-09 at 18.45.55.png
Screenshot 2026-06-09 at 18.53.31.png

Dagur 4 – Mánudagur 31. ágúst 

Crab and Winkle Way til Whitstable 

Í dag fylgjum við hinni vinsælu gönguleið Crab and Winkle Way, sem tengir Canterbury við strandbæinn Whitstable. 

Leiðin liggur um fallegt sveitalandslag áður en komið er niður að ströndinni og inn í einn mest heillandi hafnarbæ Kent. 

Whitstable er þekktur fyrir ostrurnar, sjávarrétti og afslappað andrúmsloft. Þar njótum við hádegisverðar á hinum sögufræga Wheelers Oyster Bar, sem margir telja einn notalegasta sjávarréttastað Englands. 

Síðdegis gefst tími til að rölta um höfnina og njóta stemningarinnar áður en við tökum strætó aftur til Canterbury. 

Gönguvegalengd: um 12 km. 

4180.JPG
Screenshot 2026-06-09 at 19.20.05.png
Screenshot 2026-06-09 at 18.44.43.png

Dagur 5 – Þriðjudagur 1. september 

Gönguferð til Chilham og vínsmökkun 

Við göngum í gegnum hið friðsæla sveitalandslag Kent þar sem leiðin liggur yfir engi og akra eftir gömlum göngustígum. 

Áfangastaður dagsins er þorpið Chilham, sem er eitt fallegasta og best varðveitta þorp Kent. 

Eftir hádegisverð á hefðbundunni enskri sveitakrá heimsækjum við Domaine Evremond, mjög áhugaverðan vínræktarbúgarð. ​ Þar fáum við kynningu  og smökkun á vínunum þeirra.  Við tökum svo lest til baka að hótelinu í Canterbury.

Gönguvegalengd: um 11 km. 

3852.JPG
Screenshot 2026-06-09 at 19.26.01.png
4140.JPG

Dagur 6 – Miðvikudagur 2. september 

Canterbury Cathedral og sigling á Great Stour.

Í dag kynnumst við Canterbury betur.  Í hjarta borgarinnar stendur hin stórbrotna Canterbury Cathedral, ein mikilvægasta kirkja Bretlands og heimsminjaskrá UNESCO. Dómkirkjan hefur verið miðpunktur trúar- og menningarlífs í Englandi í nærri þúsund ár.  Við fáum leiðsögn um kirkjuna ásamt fræðslu um tengingu kirkjunnar við krúnuna.

Eftir hádegisverð á Café des Amis förum við í skemmtilega siglingu um borgina á ánni Great Stour. Á leiðinni segja leiðsögumenn sögur af Canterbury, íbúum hennar og atburðum sem hafa mótað sögu borgarinnar í gegnum aldirnar. 

Síðdegis er frjáls tími til að njóta borgarinnar á eigin vegum. 

Dagur 7 – Fimmtudagur 3. september 

Frjáls dagur, bjórkynning og kveðjukvöldverður 

Njóttu síðasta dagsins í Canterbury á þínum eigin hraða. 

Í Canterbury er fjöldinn allur af skemmtilegum söfnum sem eru þess verð að skoða, það er líka mjög skemmtilegt að versla í litlum sérverslunum, fá sér síðdegiste eða einfaldlega njóta andrúmsloftsins í þessari heillandi borg. 

Síðdegis hittist hópurinn á ný og tekur þátt í skemmtilegri bjórsmökkun hjá Canterbury Brewers & Distillers, þar sem við kynnumst handverksframleiðslu svæðisins. 

Um kvöldið njótum við sameiginlegs kveðjukvöldverðar og rifjum upp eftirminnilega daga í Kent. 

Dagur 8 – Föstudagur 4. september 

Heimferð 

Eftir morgunverð er ekið til London Gatwick flugvallar. 

Við kveðjum Kent og höldum heim með dýrmætar minningar um fallegar gönguleiðir, sögufræga staði, góða matarmenningu og hina einstöku stemningu suðurhluta Englands. 

​Rútan leggur af stað frá hótelinu kl 11.30 og þar förum við með flugi með Icelandair heim 15:45 og áætluð lending kl. 17:55.

Screenshot 2026-06-09 at 19.31.01.png
Screenshot 2026-06-09 at 19.35.01.png
Screenshot 2026-06-09 at 19.39.05.png

VERÐ og skilmálar

VERÐ KR 380.600,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI.

Aukalega KR 62.705,-  MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI.

​​Innifalið í verði:

  • Flug með Icelandair til og frá Gatwick.  20 kg. farangursheimild​.

  • Allur akstur samkvæmt dagskrá.

  • Gisting á hóteli í Dover og Canterbury.

  • Morgunverður alla daga .

  • Máltíðir sem nefndar eru sem innifaldar í dagskránni (5 hádegisverðir og 2 kvöldverðir.

  • Íslensk fararstjórn.

​​Ekki Innifalið í verði:

  • Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)

  • Drykkir með mat sem er innifalinn

  • Allar máltíðir sem ekki eru upp taldar hér að ofan

Screenshot 2026-01-21 at 10.29.02.png
Screenshot 2026-06-09 at 17.06.16.png

​​Skilmálar:

  • Staðfestingargjald kr. 100.000,- greiðist við bókun 

  • Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför

  • Allar greiðslur eru óendurkræfar

Erfiðleikastig og kröfur:

  • Nauðsynlegt er að þátttakendur geti auðveldlega gengið 15 km með lítilli hækkun.  Athuga að undirlag er ekki slétt.​​​

Blue Water

Hafðu samband

  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

Hlökkum til að heyra frá þér.

2024-004.jpg

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

©2021 Heillandi Heimur

bottom of page