top of page
Ms Switzerland_edited.jpg
Heillandi heimur og FEB bjóða upp á hjól og siglingu á Mósel

15. - 23. maí 2027

8 NÆTUR 

​

ATH. lágmarksþátttaka eru  16 manns 

 

Hjóla- og skemmtisigling eftir Mósel með Heillandi heim í samstarfi við FEB

 

​Þýskaland | 9 dagar | „Fljótandi hótel“

​

Upplifðu töfra Móseldalsins á einstakan hátt – þar sem hótelið þitt siglir með þér. Þessi ferð sameinar notalegar hjólaferðir meðfram bugðóttri Móselánni, endalausar vínekrur í hlíðum dalsins, heillandi miðaldabæi, glæsilega kastala og einstaka vínmenningu í einum fegursta árdal Evrópu.

  ✨ Ert þú tilbúin/n í ævintýrið?

FEB_Logo_244x100.png

VERÐ KR 445.850,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI, á efra þilfari og með rafmagnshjóli.

​​

Senda þarf fyrirspurn á harpa@heillandiheimur.is ef óskað er eftir eins manns herbergi.​

Upplýsingar um ferðina veitir Harpa -  harpa@heillandiheimur.is

​sími 8223890

bike mosel.jpg
Screenshot 2026-01-21 at 10.29.02.png
Screenshot 2026-01-21 at 10.31.51.png

Erfiðleikastig og kröfur:​

  • .

  • Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi reynslu af því að hjóla og hafi æft sig fyrir ferðina.  Boðið er upp á rafmagnshjól.​​​​​​​

Fararstjórar í ferðinni

​

Rósa Halldórsdóttir.

Rósa er með víðtæka menntun sem kemur sér vel sem fararstjóri.  Hún er meðal annars leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði, jógakennari og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.  

Reynsla hennar og þekking kemur sér vel í starfi hennar sem fararstjóri.

​

Harpa Einarsdóttir.

Harpa Einarsdóttir hefur yfir 20 ára reynslu af skipulagningu hópferða um allan heim. Hún leggur áherslu á vandað skipulag og persónulega þjónustu.  Í heilsu-/hreyfiferðum Heillandi Heims er lögð áhersla á að vera með litla hópa þar sem hreyfing, náttúra og góð upplifun fara saman. Markmið Hörpu er að hver ferð verði eftirminnileg, bæði fyrir hreyfinguna sem í þeim felst og þær upplifanir sem skapast á leiðinni.

att.enFOrFpd4v8unXsNioXZyB0iR750OrMX1o9BUeSN7jI.JPG

 Hjól og sigling eftir ánni Mósel frá Saarburg til Koblenz í Þýskalandi ​

 

✨ Ævintýrið hefst 15. maí 2027 með flugi Icelandair til Frankfurt. 

​Stutt ferðalýsing:

15. maí - flug með Icelandair Kef -  Frankfurt kl. 07:20 - 13:00.

Rúta frá Frankfurt til Saarburg og farið beint um borð í MS Switzerland.  Tekið á móti hópnum með drykk og kvöldverði á skipinu.  

​

Frá 15. - 22. maí - siglt og hjólað um einn fegursta árdal Evrópu þar sem Mósel liðast á milli brattra vínhlíða, ævintýralegra kastala og fallegra miðaldabæja. Við byrjum í Saarburg, elstu borg Þýskalands og á leiðinni heimsækjum við meðal annars Trier, hina sögufrægu Bernkastel-Kues, Zell, Cochem og endum í Koblenz þar sem Mósel og Rín mætast.

Á hverjum degi hjólum við um stórbrotið landslag, njótum lífsins á notalegum torgum og kynnumst einstakri vínmenningu Móseldalsins, á meðan fljótandi hótelið okkar bíður á næsta áfangastað.

 

22. maí - farið frá borði í Koblenz að morgni dags (um kl 09:30).  Dagurinn er frjáls til að skoða þessa fallegu borg.  Gist er á Premier Inn hótelinu í Koblenz.

​

23. maí - rúta frá Koblenz til Frankfurt og flug með Icelandair Frankfurt - Kef kl.14:05 - 15:45.​

Mosel 3.jpg
IMG_7734.HEIC

Gisting 15. - 22. maí - MS Switzerland – fljótandi gisting

MS Switzerland býður upp á hið fullkomna jafnvægi milli hreyfingar, slökunar og þæginda. Eftir dag á hjóli bíður þín hlýlegt og smekklega innréttað skip með framúrskarandi þjónustu, góðri matargerð og afslappaðri stemningu.

Um borð er panoramaveitingasalur, notaleg setustofa, bar, bókahorn, lítil verslun og nuddstofa. Á rúmgóðu sólþilfarinu er yndislegt að njóta útsýnisins yfir Mósel og láta líða úr sér.

 

Allir klefar eru bjartir með loftkælingu, sérbaðherbergi, sjónvarpi og litlum ísskáp. Á efra þilfari eru klefar með frönskum svölum sem hægt er að opna – fullkomið til að njóta landslagsins beint úr klefanum.

✨ Persónuleg þjónusta, klassískur glæsileiki og afslappað andrúmsloft – dag eftir dag.

switzerland-aussen-3.jpg.webp
switzerland-restaurant-3.jpg.webp
switzerland-salon-2.jpg.webp
switzerland-restaurant-4.jpg.webp
switzerland-oberdeck-1.jpg.webp
switzerland-hauptdeck-2.jpg.webp

Gisting 22. maí í Koblenz

Áætluð koma til Koblenz er upp um kl. 09:00 þann 22. maí.  Við reiknum með að geta innritað okkur á hótel Premier Inn seinni partinn.  En við byrjum á því að fara á hótelið með farangurinn okkar þar sem hægt verður að geyma hann þar til við fáum herbergin.  Dagurinn er svo frjáls til að skoða þessa fallegu borg.

 

Tillaga að góðum degi í Koblenz:

Við komum til Koblenz að morgni og höfum því heilan dag til að njóta þessarar heillandi borgar þar sem Mósel og Rín mætast við hið fræga Deutsches Eck. Gaman er að rölta um hinn fallega gamla bæ, setjast niður á notalegt kaffihús eða taka kláfinn yfir Rín að Ehrenbreitstein-virkinu, þar sem stórbrotið útsýni yfir árnar tvær og Móseldalinn bíður. Koblenz er fullkominn staður til að njóta síðasta dags ferðarinnar í rólegheitum áður en haldið er heim.

Premier Inn room.webp
Premier inn.jpeg
Premier inn Lobby.webp

VERÐ og skilmálar

​

VERÐ KR 445.850,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI, á efra þilfari og með rafmagnshjóli.

Senda þarf fyrirspurn á harpa@heillandiheimur.is ef óskað er eftir eins manns herbergi.​

​​Innifalið í verði:

  • Flug með Icelandair til og frá Frankfurt

    • 23 kg. farangursheimild​

  • Akstur frá Frankfurt flugvelli að skipi í Saarburg

  • Gisting í eins eða tveggja manna klefa um borð í 7 nætur

  • Drykkur við komu á skipið

  • Morgunverður alla daga 

  • Á skipinu: 6 * hádegisverðarpakki (nesti), 6 * eftirmiðdagskaffi,  6 * 3ja rétta kvöldverðir og 1 * 3ja rétta kveðjukvöldverður með einum drykk

  • Rafmagnshjól

  • Akstur frá skipi að hóteli í Koblenz

  • Gisting í 1 nótt í Koblenz

  • Akstur að flugvelli

  • Íslensk fararstjórn

​​Ekki Innifalið í verði:

  • Ferðatryggingar (gott að vera með á hreinu hvað er innifalið í kreditkortatryggingum)

  • Drykkir með mat sem er innifalinn

  • Allar máltíðir sem ekki eru upp taldar hér að ofan

  • Allar tillögur að valkvæðum ferðum

​​Skilmálar:

  • Staðfestingargjald kr. 130.000,- greiðist við bókun 

  • Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 10. mars

  • Allar greiðslur eru óendurkræfar

  • ATH að takmarkað magn er í boði af einstaklingsherbergjum og þarf að óska sérstaklega eftir þeim

saarburg-7449175_1280.jpg.webp
ms-olympia-sonnendeck-3.jpg.webp
ms-olympia-44.jpg.webp
Bike.webp
Screenshot 2026-01-21 at 10.29.02.png
Screenshot 2026-01-21 at 10.31.51.png

Erfiðleikastig og kröfur:​

  • .

  • Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi reynslu af því að hjóla og hafi æft sig fyrir ferðina.  Boðið er upp á rafmagnshjól.​​​​​​​

Nánari ferðalýsing​​

​

Dagur 1 – Komið til Saarburg

Flug með Icelandair Kef -  Frankfurt kl. 07:20 - 13:00.  Ekið frá Frankfurt flugvelli að skipi sem liggur við bryggju í Saarburg.

Farþegar fara um borð seinni partinn. Skipið liggur við bryggju í Saarburg fyrstu nóttina. Bærinn er einstaklega fallegur og þekktur fyrir 20 metra háan foss sem fellur niður í miðbæinn, auk glæsilegra barokkhúsa og gamalla fiskimannahúsa. Um kl. 18:00 býður skipstjóri og áhöfn farþega formlega velkomin um borð.

image.png

​

Dagur 2 – Saarburg – Wasserbillig (Lúxemborg) – Trier

Hjólaleið: um 39 km

Fyrsti hjóladagurinn liggur frá Saarburg meðfram hinu friðsæla náttúruverndarsvæði við gamlan bug Móselárinnar. Þaðan er hjólað yfir til Wasserbillig í Lúxemborg, áður en komið er að hinni frægu Igeler Säule, rómverskum minnisvarða á heimsminjaskrá UNESCO. Að lokum er hjólað til Trier, elstu borgar Þýskalands, þar sem skipið bíður okkar.

 

Dagur 3 – Trier – Riol/Mehring

Hjólaleið: 26–28 km

Eftir morgunverð er lagt af stað frá Trier um Pfalzel og áfram til Riol/Mehring, sem er stærsta vínræktarsvæðið í Mosel–Saar–Ruwer-héraðinu. Leiðin liggur um fallegt landslag þar sem vínekrurnar setja svip sinn á umhverfið.

 

Dagur 4 – Riol/Mehring – Piesport – Bernkastel-Kues

Hjólaleið: um 47 km

Í dag er hjólað til hinnar heillandi borgar Bernkastel-Kues, sem er ein af perlum Móseldalsins. Á leiðinni er komið við í Neumagen-Dhron, elsta vínbæ Þýskalands, og síðan í Piesport, elsta vínræktarþorpi Móselárinnar. Hér gefst gott tækifæri til að smakka nokkur af þekktustu vínum svæðisins. Í Bernkastel-Kues tekur á móti okkur miðaldatorg með fallegum bindingsverkshúsum og notalegum kaffihúsum.

 

Dagur 5 – Bernkastel-Kues – Traben-Trarbach – Zell

Hjólaleið: um 43 km

Leiðin fylgir hægri bakka Móselárinnar um síbreytilega bugði árinnar. Hjólað er í gegnum Traben-Trarbach, sem eitt sinn var meðal mikilvægustu vínbæja Evrópu, og áfram til Zell, sem er þekkt fyrir hið heimsfræga vín „Zeller Schwarze Katz“. Kvöldið er tilvalið til að njóta vínsmökkunar og stemningarinnar í þessum fallega bæ.

 

Dagur 6 – Zell – Beilstein – Cochem

Hjólaleið: um 38 km

Í dag er Beilstein þorpið heimsótt, oft nefnt Þyrnirós Móseldalsins, þar sem tímalaus miðbærinn hefur varðveist einstaklega vel. Þaðan liggur leiðin áfram til Cochem, eins fallegasta bæjar Móseldalsins. Þar gnæfir Reichsburg-kastalinn yfir bænum og gamli miðbærinn heillar með þröngum steinlögðum götum og fallegum bindingsverkshúsum.

 

Dagur 7 – Cochem – Koblenz.  Slökunardagur um borð
Eða hjólaleið: um 53 km

Þennan dag geta þeir sem vilja notið afslappandi siglingar um Móseldalinn. Tekið sér sæti á sólpallinum og fylgist með stórbrotnu landslaginu líða hjá. Síðdegis kemur skipið til Koblenz, þar sem Mósel og Rín mætast við hið fræga Deutsches Eck.

Fyrir þá sem vilja lengri hjólatúr er hægt að hjóla frá Cochem til Koblenz (um 53 km) með viðkomu við hinn ævintýralega Eltz-kastala, einn best varðveitta miðaldakastala Þýskalands.

 

Dagur 8 – Koblenz

Eftir morgunverð er farið frá borði kl. 09:00 og farið að hóteli í Koblenz. Dagurinn er frjáls.

​

Dagur 9 – Koblenz og heimferð

Ferðinni lýkur og hver heldur sína leið heim, með ógleymanlegar minningar frá hjóla- og siglingaævintýri um einn fegursta dal Evrópu.

Lagt er af stað frá hótelinu að Frankfurt flugvelli um kl. 10:00 og flogið heim kl 14:05.

​

Blue Water
  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Hafðu samband

2024-004.jpg

Hlökkum til að heyra frá þér.

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

©2021 Heillandi Heimur

Blue Water
bottom of page