PAPPAMASSA NÁMSKEIÐ Á KANARÍ
Hótel Livvo Los Calderones
13. - 20. MARS 2023
7 NÆTUR / 8 DAGAR
ATH. LÁGMARKSÞÁTTTAKA Í ÞESSA FERÐ ERU 8 MANNS
Skemmtileg ferð til Kanarí þar sem Sara Vilbergs mun kenna þátttakendum að búa til verk úr pappamassa. Kennsla fer fram í góða veðrinu utan dyra. Að sjálfsögðu er einnig nægur frítími fyrir þátttakendur til þess að njóta alls þess besta sem Kanarí býður uppá.
VERÐ KR. 204.700 á mann miðað við 2 fullorðna í bungalow
VERÐ KR. 267.700 á mann miðað við 1 fullorðinn í bungalow
Upplýsingar um ferðatilhögun veitir Harpa - harpa@heillandiheimur.is sími 8223890
Upplýsingar um námskeiðið veitir Sara - saravilbergs@gmail.com, sími 8952001
Pappamassanámskeið með Söru Vilbergs á Kanarí
Fátt jafnast á við pappamassamótun undir berum himni í mildu loftslagi á Gran Canaria á meðan vetur geisar á Íslandi. Nú verður boðið upp á pappamassanámskeið í mars á þessari himnesku eyju þar sem kenndar verða nokkrar aðferðir við að móta fígúrur úr vír, dagblöðum silkipappír og fleiru. Allt efni verður á staðnum.
Myndlistarkonan Sara Vilbergsdóttir, sem kennir á námskeiðinu hefur kennt þessa tækni hér heima um nokkura ára skeið og hefur einnig mikla reynslu af að vinna með pappamassa utandyra á heitari slóðum.
Námskeiðið gagnast bæði byrjendum sem lengra komnum í myndsköpun.
Hótelið, Livvo Los Calderones, er staðsett í Bungalow garði og munu nemendur gista í litlum húsum, en námskeiðið fer fram á sameiginlegu svæði í garðinum. Unnið verður í þrjá tíma á dag milli 10:00 og 13:00, en svo geta nemendur haldið áfram að vinna á sinni verönd ef þeir vilja.
DAGSKRÁ
13. mars – akstur að hóteli
14. - 18. mars
10:00 – 13:00 pappamassanámskeið með Söru Vilbergs.
19. mars - frídagur
20. mars - heimferð
Eftir kl 13:00 alla daga er frjáls tími. Það er margt skemmtilegt hægt að gera á Kanarí og enginn ætti því að vera í vandræðum með að finna eitthvað við sitt hæfi. Við aðstoðum að sjálfsögðu við að setja saman frekara prógram sé þess óskað.
Dagana 7 - 17 mars er carnival hátíð í Maspalomas, sem er það svæði sem hótelið er á. Á þessari síðu HÉR eru nánari upplýsingar um hátíðina.
Gisting:
Á hótel Livvo Los Calderones er gist í “bungalows” 3ja stjörnu hótel á frábærum stað í Maspalomas. Hótelið er á rólegum stað sem er fullkominn fyrir námskeiðið. En það er þó ekki langt að fara á ströndina í Maspalomas og á ensku ströndina þar sem hægt er að flatmaga í sólinni eða fara í góðar og skemmtilegar gönguferðir.
Hver íbúð er 31 - 25 m2. Skiptist í svefnherbergi sem er á efri hæð og svo setustofu á neðri hæðinni. Herbergið er með tveimur rúmum.
VERÐ KR 204.700,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í HERBERGI (bungalow)
VERÐ KR 267.700,- Á MANN MIÐAÐ VIÐ EINN Í HERBERGI (bungalow)
Innifalið í verði er:
-
Flug til og frá Kanarí með Play
-
20 kg farangursheimild
-
-
Akstur til og frá flugvelli.
-
5 daga pappamassa námskeið með Söru Vilbergs, sjá dagskrá.
-
Gisting í 7 nætur áLivvo Los Calderones í Maspalomas.
FLUG MEÐ PLAY
Beint flug með Play frá KEF til Las Palmas þann 13. mars 2024 kl. 08:55 – 14:40
Beint flug með Play frá Las Palmas til Keflavíkur þann 20. mars 2024 kl. 15:40 – 21:30