
DÁSEMDERFERÐ TIL Paros á Grikklandi
GRÍSKA EYJAN Paros
14 - 24 Október 2026
9 NÆTUR
VERÐ Á MANN miðað við:
Þrír saman í herbergi á Paros 414.187,-
Tveir saman í herbergi: 442.610,-
Einn í herbergi: 566.075,-
ATH flug til og frá Aþenu EKKI innifalið - en við aðstoðum við að bóka flug sé þess óskað.
ATH. LÁGMARKSÞÁTTTAKA Í ÞESSA FERÐ ERU 8 MANNS
Gríska eyjan PAROS um miðjan október !
Hvernig hljómar að ná smá framlengingu á sumarið!
Þegar dagarnir styttast heima á Íslandi býður Paros upp á birtu, yl og ró. Komdu með í ferð þar sem jóga, náttúra, góð samvera og grísk gestrisni hjálpa þér að fylla á orkuna fyrir veturinn.

Dásemdarferð á grísku eyjuna Paros
Dekur, jóga, göngur, náttúra, yndislegur matur og gleði!
Komdu með í einstakt ferðalag þar sem nærandi jóga, stórbrotin náttúra, grísk menning og ljúft eyjalíf renna saman í eina ógleymanlega upplifun.
Október er dásamlegur tími til að heimsækja grísku eyjarnar – sumarylurinn situr enn í loftinu, sjórinn hefur safnað í sig hita sumarsins og dagarnir bjóða upp á notalega útiveru án mestu hitanna og mannmergðarinnar.
Þetta er fullkomið tækifæri til að lengja sumarið, fylla á orkuna og skipta um stund á regngöllunum fyrir jógaföt, sundföt og sólgleraugu.
Ferðin hefst í Aþenu þar sem við gefum okkur tíma til að kynnast sögu borgarinnar, heillandi hverfum og einstöku andrúmslofti hennar.
Þaðan liggur leiðin til Paros og á Okreblue Seaside Yoga Retreat Center þar sem við hefjum dagana á heilnæmum smoothie, jóga og nærandi bröns. Síðdegis bíða okkar fjölbreytt ævintýri, allt frá gönguferðum um forna stíga og stórbrotna strandlengju yfir í kajakferðir, snorkl, siglingar og heimsóknir í heillandi þorp. Á kvöldin hægjum við á, njótum góðs matar og endum daginn með mjúku jóga, djúpslökun, hugleiðslu eða hljóðheilun.
Þetta er ferð fyrir þig sem langar að hreyfa líkamann, næra hugann, upplifa fegurð Grikklands og njóta lífsins í góðum félagsskap.
Fararstjórar og leiðbeinendur í þessari ferð eru þær stöllur Harpa Einarsdóttir og Rósa Halldórsdóttir. Þær hafa verið með nokkrar ferðir á Íslandi sem þær nefndu Dásemdardaga og voru blanda af heilnæmu fæði, jóga, jóga nidra, gönguferðum og fræðslu.
Nú hafa þær tekið upp þráðinn á ný og ætla að vera með Dásemdardaga á þessari dásamlegu eyju Grikklands.
Rósa Halldórsdóttir
Rósa er menntuð jógakennari og hefur lokið ýmsum námskeiðum í hugleiðslu. Auk þess er hún leiðsögumaður, skyndihjálparkennari, sjúkraliði og höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferðaraðili.
Harpa Einarsdóttir.
Harpa er eigandi ferðaskrifstofunnar og hefur verið með hópa í ferðum vítt og breytt um heiminn. Hún er auk þess jóga nidra leiðbeinandi og heilsumarkþjálfi.


Dagskrá Aþena og Paros 14 - 24 október 2026
Miðvikudagur 14 október:
Áætlað er að þátttakendur séu komnir til Aþenu þennan dag. Við reiknum með að geta tékkað okkur inn á hótelinu um kl 15.00.
Um kvöldið röltum við saman um steinlagðar götur Plaka, eins elsta og fallegasta hverfis borgarinnar. Fyrsta kvöldið endar á sameiginlegum velkomnum kvöldverði á hefðbundnu grísku taverni, með dásamlegu útsýni yfir upplýsta Akrópólíshæðina.
Fimmtudagur 15 október:
Saga Aþenu og leyndir fjársjóðir borgarinnar.
Við leggjum snemma af stað upp á Akrópólíshæðina og njótum fersks morgunloftsins áður en tekur að fjölga of mikið á þessum vinsæla ferðamannastað. Þar stígum við inn í sögu Grikklands og upplifum eitt áhrifamesta kennileiti heims.
Eftir heimsóknina á Akrópólis höldum við í skemmtilega gönguferð með leiðsögn um hjarta Aþenu. Á leiðinni kynnumst við sögu borgarinnar, menningu hennar og líflegu mannlífi á meðan við röltum um falleg torg og sögulegar götur.
Göngunni lýkur í hinu heillandi Plaka-hverfi, sem er þekkt fyrir þröngar steinlagðar götur, litríkar verslanir, notaleg kaffihús og einstaka stemningu. Þar gefst góður tími til að skoða sig um, versla og njóta þess að drekka í sig andrúmsloftið áður en kvöldið tekur við.
Kvöldið er frjálst og tilvalið að nýta til að rölta áfram um borgina, setjast niður á notalegum veitingastað eða njóta lífsins á einu af fallegum torgum Aþenu.
Föstudagur 16 október:
Við kveðjum Aþenu og höldum til Paros með innanlandsflugi. Við komuna tekur einkarúta á móti okkur og flytur hópinn á Okreblue Seaside Yoga Retreat Center við Filizi-ströndina.
Eftir innritun og tíma til að koma sér fyrir hittumst við í léttum opnunarhring. Þar kynnumst við betur, förum yfir dagskrá vikunnar og skoðum aðstöðuna og umhverfið.
Síðdegis förum við í rólega og jarðtengjandi göngu um Filizi-skagann, sandhólana og ilmandi sedrustrjáaskóginn. Gangan hjálpar okkur að hrista af okkur ferðaþreytuna, anda að okkur sjávarloftinu og finna taktinn á eyjunni.
Eftir ljúffengan kvöldverð göngum við undir stjörnuhimninum við ströndina. Dagurinn endar í jógasalnum með mjúku jóga og jóga nidra, djúpri leiddri slökun sem undirbýr líkama og huga fyrir góðan nætursvefn.




Dagar í paradís á Paros | 16.–23. október
Á meðan á dvöl okkar stendur á Paros gistum við á hinu einstaka Okreblue Seaside Yoga Retreat Center við Filizi-ströndina. Þar njótum við rólegs umhverfis, hlýrrar haustsólar, sjávarloftsins og þess afslappaða lífsstíls sem grísku eyjarnar eru svo þekktar fyrir. Dagarnir á Paros eru fjölbreytt blanda af hreyfingu, náttúruupplifun, menningu og afslöppun
Alla morgna byrjum við daginn með nærandi ferskur smoothie og jógatíma sem vekur líkamann, róar hugann og undirbýr okkur fyrir daginn. Að loknu jóga fáum við okkur dýrindis bröns áður en við höldum út til að njóta þess sem eyjan hefur upp á að bjóða.
Við förum í fallegar gönguferðir um ólíka hluta eyjarinnar, þar sem við fylgjum fornum Býsönskum stígum sem liggja í gegnum hefðbundin þorp, ilmandi ólífulundi og fallegt sveitalandslag. Á leiðinni fáum við innsýn í sögu, menningu og daglegt líf eyjarskeggja á sama tíma og við njótum stórbrotins útsýnis yfir Eyjahafið.
Við könnum einnig hina hrífandi strandlengju Paros Park þar sem klettóttir stígar, afskekktar víkur og ótrúlegt útsýni gera gönguna að einstakri upplifun. Þar gefst jafnframt tækifæri til að kæla sig í kristaltærum sjónum og njóta kyrrðarinnar sem einkennir þetta fallega svæði.
Ævintýrin halda áfram á sjónum þar sem við förum í kajakferð meðfram ströndinni, stoppum í fallegum víkum til að synda og snorkla og njótum þess að upplifa eyjuna frá allt öðru sjónarhorni. Einnig förum við í siglingu um Eyjahafið þar sem við slökum á um borð, njótum sólarinnar, hafgolunnar og þess frelsis sem fylgir því að vera úti á opnu hafi.
Við gefum okkur einnig tíma til að upplifa gríska eyjalífið af eigin raun með heimsókn til hins heillandi bæjar Naousa. Þar röltum við um hvítkölkuð hús, þröngar steinlagðar götur og litlar handverks- og hönnunarverslanir. Við njótum stemningarinnar við gömlu fiskihöfnina, fylgjumst með daglegu lífi heimamanna og upplifum þá einstöku blöndu af afslöppuðu eyjalífi og grískum sjarma sem gerir Naousa að einum fallegasta bæ Kýkladeyjanna.
Allt þetta gerum við á rólegum og notalegum hraða þar sem markmiðið er ekki aðeins að sjá og upplifa sem mest, heldur einnig að gefa okkur tíma til að njóta augnabliksins, tengjast náttúrunni og fylla á orkuna.
Á kvöldin hægjum við á taktinum með mjúku jóga, djúpslökun, hugleiðslu eða hljóðheilun áður en dagurinn endar í kyrrð og vellíðan.






Næring fyrir líkama og sál
Maturinn á Okreblue er hluti af upplifuninni sjálfri. Þar er lögð áhersla á hollan, næringarríkan og einstaklega bragðgóðan mat sem byggir á ayurvedískri hugmyndafræði um jafnvægi, vellíðan og góða meltingu.
Í boði er fjölbreytt úrval jurtafæðis þar sem framandi krydd og bragðheimur Indlands mætir ferskleika og einfaldleika grískrar matargerðar. Hver og einn setur saman sinn eigin disk úr fjölbreyttu úrvali rétta sem eru bæði nærandi og fallega fram bornir.
Við njótum máltíðanna saman á útiverönd Caretta veitingastaðarins með stórkostlegu útsýni yfir Eyjahafið. Bröns og kvöldverður eru skipulagðir í takt við daglega jógaiðkun og hannaðir til að styðja við orku, jafnvægi og góða líðan. Á milli mála er einnig hægt að fá ferska safa, smoothie, hollt snarl og salöt fyrir þá sem vilja gera sér dagamun.
Þetta eru dagar þar sem hreyfing, náttúra, næring, slökun og góð samvera fléttast saman í eina heild – fullkomið tækifæri til að fylla á orkuna og lengja sumarið undir grískri haustsól.










Föstudagur 23. október
Við kveðjum Paros og fljúgum til Aþenu.
Við byrjum síðasta morguninn á Paros á styttri jógastund með mjúkum teygjum, jarðtengingu og lokun.
Eftir bröns kveðjum við Okreblue leggjum við af stað á flugvöllinn á Paros. Þaðan fljúgum við aftur til Aþenu.
Við njótum þess sem eftir er dags í Aþenu.
Laugardagur 24. október
Heimferð
Við njótum morgunverðar á hótelinu áður en haldið er af stað heim á leið. Ef flug er seinni part þá er hægt að fá að geyma farangur á hótelinu og njóta þess tíma sem eftir er í hinni dásamlegu borg Aþenu.
Fram undan er heimferðin til Íslands eftir fjölbreytta og endurnærandi daga í Grikklandi, með nýjar minningar, dýpri ró og góða orku í farteskinu.




Gisting
Aþena:
Gist er á Moxy 4* hótel í hjarta Aþenu í göngufæri frá öllum helstu kennileitum.
Paros:
Okreblue Eco yoga retreat.
Okreblue er einstakur griðastaður við ströndina á norðurhluta Paros þar sem náttúra, kyrrð og vellíðan mætast í fullkomnu jafnvægi. Retreat-setrið stendur við hina fallegu Filizi-strönd, umkringt sandhólum, sedrustrjám og kristaltæru vatni Eyjahafsins, sem skapar einstaka umgjörð fyrir slökun og endurnæringu.
Hér vaknar þú við hljóð öldunnar og nýtur þess að vera umvafin/n náttúru og ró. Aðstaðan er hlýleg og notaleg, hönnuð með sjálfbærni og vellíðan að leiðarljósi, þar sem einfaldleiki og fegurð gríska eyjalífsins fá að njóta sín.

VERÐ Á MANN miðað við:
Þrír saman í herbergi á Paros 414.187,-
Tveir saman í herbergi: 442.610,-
Einn í herbergi: 566.075,-
ATH flug til og frá Aþenu EKKI innifalið - en við aðstoðum við að bóka flug sé þess óskað.
Innifalið í verði er:
-
Akstur í Aþenu - hótel - flugvöllur 16 okt. Flugvöllur - hótel - flugvöllur 23 og 24 október.
-
Flug Aþena - Paros - Aþena
-
Gisting á 4* hóteli í Aþenu, 2 nætur
-
Gisting á Okreblue á Paros í 7 nætur
-
Akstur samkvæmt dagskrá á Paros
-
Gisting í Aþenu 1 nótt á heimleið.
-
Morgunverður í Aþenu
-
Léttur morgunverður, brunch og kvöldverður alla daga á Paros
-
Jógatímar, jóga nidra, hugleiðsla og hljóðheilun
-
Gönguferðir og skoðunarferðir
-
Sigling um eyjuna
-
Kayakferð
-
Jóga á hverjum morgni á Amorgos
-
Slökunarhugleiðsla seinni part dags.
Skilmálar:
-
Staðfestingargjald kr. 100.000,- greiðist við bókun
-
Eftirstöðvar greiðist eigi síðar en 7 vikum fyrir brottför
-
Allar greiðslur eru óendurkræfar
ATH flug til og frá Aþenu EKKI innifalið - en við aðstoðum við að bóka flug sé þess óskað.
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
|---|---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() |































