top of page
221365230 Garni.jpg
SKÍÐI Á ÍTALÍU

HOTEL GARNI CONCORDIA

Hotel Garni Conordia er 3* hótel staðsett á frábærum stað í miðbæ Selva di Val Gardena. Stutt er í skíðalyftur, veitinga-staði, kaffihús og bari.

DAGSETNINGAR:

4 - 11 FEBRÚAR 2023

7 NÆTUR / 8 DAGAR

Upplýsingar um ferðina veitir Raggý  raggy@heillandiheiimur.is

​sími 844-6544

VERÐ

Verð á mann í tvíbýli með morgunmat - Comfort 

Verð 280.900 kr

á mann 

Verð á mann í einbýli með morgunmat - Einbýli

Verð 292.900 kr

á mann 

​innifalið í verði er: 

* 7 nátta gisting með morgunmat * Beint flug með Icelandair * Ein 23 kg taska, 10 kg handfarangur og skíði * Akstur til og frá flugvelli í Munchen *  Fararsstjórn * Aðgangur að heilsulind hótelsins * WIFI nettenging. 

HOTEL GARNI CONCORDIA

Hotel Garni Conordia er 3* hótel staðsett á frábærum stað í miðbæ Selva di Val Gardena. Stutt er í skíðalyftur, veitinga-staði, kaffihús og bari. Herbergin eru rúmgóð með góðu bað-herbergi, fríu interneti, sjónvarpi. Sér upphituð geymsla í kjallara  hótelsins sem hótelgestir geta geymt skíðabúnaðinn. Aðgangur að heilsulind hótelsins er innifalinn verðinu.

​

MORGUNVERÐUR

Á hverjum morgni er boðið upp á glæsilegt morgunverðahlaðborð þar sem Í boði er nýbakað bakkelsi  ásamt girnilegum ostum, kjötáleggi og ferskum ávöxtum.

​

STAÐSETNING

Hótelið er staðsett á frábærum stað í um 150 metra frá Sella Ronda og Nives skíðalyftunum. Einnig er að finna við skíðalyfturnar skíðaleigu þar sem hægt er að leigja skíðabúnað.  Skíðalyfturnar í Nives tengjast öllum helstu skíðaleiðum á svæðinu og er því úr mörgum skemmtilegum skíðasvæðum að velja.

​

Skíðalyftur í nágrenni við hótelin:

  • Nives – 150 m

  • Mickey Mouse – 300 m

  • Biancaneve skíðalyftan – 300 m

  • Larciunei – 350 m

  • Ciampinoi – 350 m

  • Terza Punta – 500 m

 

Aðrar upplýsingar

  • Ferðamannaskattur að upphæð € 2,5 á mann á nótt er ekki innifalinn í gistiverði. Hann greiðist á hótelinu í ferðalok.

doppelzimmer.jpg
jpg.jpeg
jpg (1).jpeg
jpg (2).jpeg
151587167 GARNI.jpg

SKÍÐASVÆÐIÐ

Selva Val Gardena / Dolomites á Ítalíu er vinsæll áfangastaður meðal skíða áhugafólks víðsvegar að úr heiminum. Skíðabrekkur Selva Di Val Gardena eru um 175 km að lengd og þar er hægt að velja úr 81 skíðalyftu af öllum stærðum og gerðum. Hvort sem um byrjendur eða lengra komna þá getur hver og einn valið úr fjölda af frábærum brekkum sem henta getu hvers og eins.

 

HIN VINSÆLASLA SELLA RONDA

Sella Ronda, er falleg skíðaleið umkringd þykkum skógum, fjallstoppum og snjóþöktu landslagi  sem liggur á milli fjögurra dala, Alta Badia, Val di Fassa, Arabba Badia og Selva. Þessi skemmtilega skíðaleið er um 40km að lengd  (lyftur og 26km skíðabrekkur). Það tekur allt að 6 klst að skíða þessa leið með stoppum og hádegismat. Skemmtileg upplifun fyrir alla þá sem vilja njóta þess að skíða í einstakri og fallegri náttúru.

​

LENGSTA SKÍÐABREKKAN

Ein lengsta brekkan í Dolomítunum, “La Longia” er 10km löng skíðabrekka sem er ævintýralega falleg og skemmtileg skíðaleið í fallegu gljúfri með breiðum brekkum og skóglendi. Einstök upplifun fyrir alla sem fara þessa skíðabrekku, sem er alls ekki erfið.

winter02.jpg
DIE_6365.jpg
221365230 Garni.jpg
Dolomites Best Ski Slopes: La Longia | Val Gardena

Dolomites Best Ski Slopes: La Longia | Val Gardena

Tra le baite della Val Gardena accompagnati da Verena Stuffer

Tra le baite della Val Gardena accompagnati da Verena Stuffer

Val Gardena Active - Magic winter experience in the Dolomites

Val Gardena Active - Magic winter experience in the Dolomites

SKILMÁLAR

  • Staðfestingargjald greiðist inn á reikning eða greiðsluhlekk Heillandi Heims við skráningu, ath greiðsluhlekkur er í skráningarformi. 

  • Hafa skal í huga við skráningu í ferð að nafn farþega sé ritað eins og á vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega að svo sé.  

  • Nánari um skilmálar Heillandi Heims er að finna í meðfylgjandi þræði SKILMÁLAR

​

AFBÓKUNARREGLUR

Staðfestingargjald og allar innborganir eru óndurkræfar eftir greiðslu.

​

Kreditkort – Reglur sem gilda um tryggingar sem fylgja kreditkortum

Ekki þarf að nota greiðslukort til greiðslu á hluta eða heild ferðar til þess að kortatrygging verði virk.  Einungis þarf að gæta þess að vera með kortið með í ferð. Við viljum hins vegar benda ykkur á að hafa samband við tryggingafélagið þitt til að kanna hvað er innifalið í kortatryggingu þinni til að ganga úr skugga um að sú trygging dugi eða hvort þörf sé á að kaupa viðbótar ferðatryggingu hjá tryggingafélagi þínu.

​

Allar nánari upplýsingar um ferðina gefur Ragnheiður Eiríks Friðriksdóttir, Raggý, í síma 844-6544 eða Í  tölvupósti raggy@heillandiheimur.is.

 

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info@heillandiheimur.is eða með því að smella á hnappinn hér að neðan og fylla út formið.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Blue Water
  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

Hlökkum til að heyra frá þér.

Ferðaskrifstofuleyfi

©2021 Heillandi Heimur

bottom of page