
GOLF Á ÍTALÍU
BOGOGNO GOLF RESORT
Gæði og einstök fegurð er það sem einkennir golfvellina á Bogogno. Bogogno golf resort er staðsett í
um 30km frá flugvellinum í Malpensa í Milano. Í Bogogno eru tveir feikna góðir 18 holu golfvellir,
með glæsilegum æfingarsvæðum, Sundlaug, spa, tennisvöllur, góðir matsölustaðir, náttúrufegurð og svo mætti lengi telja.
Það má með sanni segja að dvöl á Bogogno golf resort er ógleymanleg upplifun fyrir golfara sem vilja
njóta alls þess besta sem völ er á þegar kemur að golfi.
DEL CONTE GOLFVÖLLURINN
Del Conte er par 72 golfvöllur og er einstaklega fallegur með breiðu opnum brautum og fjölmörgum
flötum brautum, vötnum og lækjum í villtu landslagi. Hið glæsilega Monte Rosa Massif, næst hæsta
fjall vestur Evrópu, gefur útsýninu á golfvellinum enn meiri sjarma.
Lengd vallar:
-
Atvinnumanna teigar: 6485m
-
Hvítír teigar (Karla - Keppni): 6206m
-
Gulir teigar (Karlar - Standard): 5776m
-
Grænir teigar (Karlar - öldungar): 5234m
-
Bláir teigar (Konur - Keppnisteigar): 5338m
-
Rauðir teigar (Konur – Standard): 4954m
-
Appelsínugulir teigar (Konur - öldungar): 4455m
BONORA GOLFVÖLLURINN
Bonora er par 72 krefjandi golfvöllur sem er fallega hannaður yfir stórt hæðarsvæði. Golfvöllurinn er
umvafinn fallegri villtri náttúru með fjölmörgum ósnortnum lækjum og skógum, eins og dæmigert er
fyrir þetta svæði.
Lengd vallar:
-
Atvinnumanna teigar: 6488m
-
Hvítir teigar (Karlar - Meistara): 6284m
-
Gulir teigar (Karlar - Standard): 5907m
-
Grænir teigar (Karlar - Öldungar): 5284m
-
Bláir teigar (Konur - Meistara): 5408m
-
Rauðir teigar (Konur – Standard): 4907m
-
Appelsínugulir teigar (Konur - Öldungar): 4425m
ÆFINGARAÐSTAÐA
Æfingaraðstaðan er einkar glæsileg sem saman stendur að driving range, chipping range og púttvelli.
Driving Range
Driving range eru tvö og eru þau staðsett í nálægð við klúbbhúsið á milli holu 1 og 18 á Del Conte
golfvellinum.
-
28 utandyra tees á grasi (Aðalsvæði)
-
12 utandyra tees á grasi (Svæði 2)
-
12 utandyra tees á teppi (Aðalsvæði)
-
8 utandyra tees á teppi (Aðalsvæði)
Pitching/Chipping Range
Staðsett við hliðina á driving range, svæðið samanstendur af tvöfaldri þjálfunarflöt, með
margvíslegum mismunandi skotmörkum, til að æfa allar gerðir nálgunarskota:
-
Pitching
-
Chipping/Vipp
-
Sandgryfjur
-
Puttvöllur
Hótelið
Hótelið er staðsett við hliðina á klúbbhúsinu. Það var formlega tekið í notkun árið 2014. Hótelið er
mjög nýstárlegt og er byggt á vistvænan hátt úr endurvinnanlegu náttúrulegu efni og háþróaðri
byggingartækni.
Á hótelinu eru 50 herbergi af mismunandi stærðum og gerðum:
-
Átján 28m2 fermetra double herbergi
-
Tuttugu og átta 33m2 fermetra deluxe herbergi
-
Fjórar 70m2 fermetra svítur
Deluxe herbergi og svítur eru með eigin verönd eða svölum, öll herbergin horfa beint á holu 18 á
Bonora vellinum eða yfir sundlaug golfklúbbsins.
Sameiginlegt svæði er fyrir hótelgesti á þaki hótelsins þar sem gestir hafa aðgang að heitum potti og
geta slakað á og notið töfrandi útsýnisins yfir Monte Rosa -fjöllin.
Á hótelinu eru:
-
Setustofa
-
Bar
-
Sólstofa
-
Líkamsræktarstöð
-
Fundarherbergi
-
Ráðstefnusalir
HEILSULIND
Á hótelinu er einkar glæsileg heilsulind þar sem veitt er framúrskarandi, fagleg og fjölbreytt þjónusta í hlýju og notalegu umhverfi. Njóttu endurnærandi og þægilegrar upplifunar eftir annríki dagsins.
Spa upplifun:
-
Finnskt gufubað
-
Nuddmeðferðir
-
Ís gosbrunnur
-
Gufubað
-
Vitarium (gufubað)
-
Fjallasturta
-
Fótabað
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
|---|---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() | ![]() | ![]() | ![]() |
![]() |
VERÐ FRÁ KR 229.900 - Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVÆR Í HERBERGI
Innifalið í verði er:
• 5 nátta gisting á Hotel Bogogno með morgunverði
• Flug með Icelandair - Farangur, 20kg ferðataska, handfarangur 10kg og golfsett
• Akstur til og frá flugvelli Milano Malpensa – akstur tekur 45 mín
• 5 golfhringir
• Golfbílar
FLUG MEÐ ICELANDAIR
Beint flug með Icelandair frá KEF til Milano þann 11. maí 2022 kl. 15:40 lent í Milano kl. 21:55
Beint flug með Icelandair frá Milano til Keflavíkur þann 15. maí 2022 kl. 22:50 lent í KEF kl. 01:05

OFFICIAL VIDEO (2018)
BOGOGNO GOLF RESORT
18 - 22 MAÍ 2022
4 NÆTUR / 5 DAGAR
Bogogno golf resort er staðsett í um 30km frá flugvellinum í Malpensa í Milano. Í Bogogno eru tveir feikna góðir 18 holu golfvellir, með glæsilegum æfingarsvæðum, sundlaug og tennisvöllum.
VERÐ FRÁ 249.900
á mann miðað við 2 fullorðna í herbergi

Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info@heillandiheimur.is eða með því að smella á hnappinn hér að neðan og fylla út formið.
Hlökkum til að heyra frá þér.




































