
Heillandi Perú – lúxusævintýri í hjarta Andesfjallanna
4. - 18. október 2027.
15 dagar
Lágmarks þátttaka 8 manns og hámarks þátttaka er 12 manns
Draumaferðin til Perú í október 2027
Hefur þig dreymt um að ganga um stórbrotin Andesfjöllin og upplifa töfra Machu Picchu?
Við bjóðum til einstakrar ævintýraferðar þar sem stórbrotin náttúra, dularfullur menningarheimur Inkanna, matargerð á heimsmælikvarða og lúxus á óvæntustu stöðum fléttast saman.
Við göngum hina mögnuðu Salkantay-leið til Machu Picchu, um afskekktar slóðir, fram hjá tignarlegum jöklum, yfir há fjallaskörð og niður í gróskumikla skýjaskóga. Að loknum göngudegi bíða okkar glæsilegir fjallaskálar, heitir pottar undir berum himni, sælkeramáltíðir og einstök gestrisni.
Við undirbúum ævintýrið saman með markvissu æfingaplani og sameiginlegum göngum á Íslandi. Einnig verður boðið upp á sérhæft öndunarnámskeið.
✨ Ævintýri lífsins – upplifun sem lifir með þér alla ævi.
EINSTAKT KYNNINGARTILBOÐ TIL ÁRAMÓTA
Draumaferðin á einstöku verði
Almennt verð: 1.095.500 kr.
895.500 kr.
Á mann miðað við tvo í herbergi
Sparaðu 200.000 kr. á mann
400.000 kr. sparnaður fyrir tvo
Kynningartilboðið gildir til 31. desember 2026.
Innanlandsflug í Perú er innifalið í verðinu. Millilandaflug er ekki innifalið en við aðstoðum við bókun þess sé þess óskað.
Ekki bara draumaferð – heldur ferð lífsins.
Í boði er sveigjanleg greiðsludreifing með kreditkorti til allt að 36 mánaða.


Upplýsingar um ferðina veitir Harpa - harpa@heillandiheimur.is
sími 8223890
Heillandi Perú – stórbrotin ævintýri í hjarta Andesfjallanna
✨ Ævintýrið hefst 4 .október 2027 í Lima við Kyrrahafsströnd Perú.
Við bjóðum til einstakrar ferðar til Perú, lands stórbrotinnar náttúru, fornra menningarheima, litríkra hefða og einstakrar matargerðar. Í þessari ferð ætlum við að upplifa það besta sem Perú hefur upp á að bjóða og takast um leið á við eitt magnaðasta gönguævintýri Suður-Ameríku.
Við hefjum ferðina í Lima, einni helstu matarborg veraldar, þar sem við kynnumst sögu landsins, njótum perúískrar matargerðar og upplifum líflega menningu borgarinnar.
Þaðan höldum við inn í hjarta Andesfjallanna og dveljum í Heilaga dal Inkanna. Við heimsækjum áhrifamiklar fornminjar, litríka markaði og heimamenn sem enn halda í aldagamlar hefðir forfeðra sinna. Við fáum innsýn í hefðbundinn vefnað og náttúrulega litun og tökum þátt í athöfn til heiðurs Pachamama, móður jörð. Um leið gefum við okkur góðan tíma til að aðlagast hæðinni áður en gönguævintýrið hefst.
Þá tekur við sjö daga gönguævintýri eftir hinni mögnuðu Salkantay-leið til Machu Picchu, einni tilkomumestu gönguleið Suður-Ameríku. Við göngum um afskekkta fjalladali, við rætur tignarlegra jökla, að túrkísbláu Humantay-vatninu og yfir Salkantay-fjallaskarðið í 4.636 metra hæð. Smám saman tekur við allt annar heimur – gróskumiklir skýjaskógar, framandi gróður, litrík fiðrildi og ilmandi kaffiplantekrur.

En þetta er engin venjuleg fjallgönguferð.
Á gönguleiðinni gistum við í einstökum fjallaskálum Mountain Lodges of Peru, þar sem þægindi, persónuleg þjónusta og vandaður aðbúnaður eru í fyrirrúmi. Að loknum krefjandi göngudegi slökum við á í heitum pottum undir berum himni, njótum sælkeramáltíða með perúísku ívafi og sofum í dásamlegum rúmum. Lúxus á stöðum þar sem síst skyldi búast við honum.
Eitt eftirminnilegasta augnablik ferðarinnar verður þegar við sjáum Machu Picchu í fyrsta sinn úr fjarska, áður en við heimsækjum þessa goðsagnakenndu borg Inkanna og eitt af sjö nýjum undrum veraldar.
Við ljúkum ferðalaginu í heillandi borginni Cusco, fyrrum höfuðborg Inkaveldisins, þar sem saga, menning og nútímalíf mætast í fallegu umhverfi.
Ævintýrið hefst löngu fyrir brottför
Við leggjum mikla áherslu á að þátttakendur séu vel undirbúnir fyrir ævintýrið. Fararstjórar útbúa markvisst æfingaplan og bjóða þátttakendum í sameiginlegar göngur hér á Íslandi á undirbúningstímanum. Einnig verður boðið upp á námskeið hjá öndunarsérfræðingi með áherslu á öndunartækni og undirbúning fyrir göngur í mikilli hæð. Þannig byggjum við upp styrk og úthald, eflum sjálfstraust og kynnumst ferðafélögunum áður en lagt er af stað.
Ferð fyrir þá sem vilja ögra sjálfum sér, víkka sjóndeildarhringinn, upplifa heiminn á annan hátt og njóta þess allra besta á leiðinni.
Ekki bara draumaferð – heldur ferð lífsins.




Fararstjórar
Harpa Einarsdóttir
Harpa er eigandi ferðaskrifstofunnar Heillandi heims og hefur áratugareynslu af skipulagningu og framkvæmd ferða vítt og breitt um heiminn. Hún hefur starfað við alþjóðlega ferðaþjónustu um árabil og hefur mikla reynslu af því að skapa einstaka ferðaupplifun þar sem vandað er til allra þátta ferðarinnar.
Harpa hefur mikla ástríðu fyrir ferðalögum, fjallgöngum, heilsu og hreyfingu úti í náttúrunni. Hún stundar reglulega fjallgöngur hér heima og hefur einnig sótt sér menntun á sviði heilsumarkþjálfunar og Yoga Nidra.
Hugmyndafræðin að baki Heillandi heimi endurspeglar áhugamál Hörpu – að sameina hreyfingu, náttúru, menningu, góða samveru og lífsnautn á ferðalögum um heiminn.
Harpa hefur sérstakt dálæti á ferðum sem gefa þátttakendum tækifæri til að kynnast nýjum menningarheimum, takast á við spennandi áskoranir og skapa minningar sem lifa lengi.
Hildur Hjálmarsdóttir – fararstjóri og gönguleiðsögumaður
Hildur er menntaður gönguleiðsögumaður og hefur lokið prófi í Wilderness First Responder (WFR), sérhæfðri skyndihjálp við aðstæður þar sem langt er í læknisaðstoð.
Hildur er mikill göngugarpur og hefur víðtæka reynslu af fjölbreyttum og krefjandi fjallgöngum, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur meðal annars gengið á Hvannadalshnúk, farið í grunnbúðir Everest í Himalajafjöllum, gengið Mont Blanc-hringinn og um stórbrotið landslag Dólómítanna á Ítalíu.
Útivist og fjallgöngur eru stór hluti af lífi Hildar og stundar hún göngur um íslensk fjöll og náttúru allan ársins hring.
Menntun hennar, reynsla af göngum í mikilli hæð og ástríða fyrir fjallgöngum eru dýrmætur fengur fyrir hópinn á þessu einstaka ævintýri okkar um Andesfjöllin til Machu Picchu.




Tilhögun ferðarinnar
Reiknað er með að ferðalangar séu komnir til Lima þann 4. október 2027, hvenær sem er dagsins. Tekið verður á móti þátttakendum á flugvellinum og ekið á hótelið.
Lima – saga, menning og sælkeraævintýri
4. - 7. október | 3 nætur
Fyrstu þrjár næturnar gistum við í Miraflores, einu fallegasta hverfi Lima við Kyrrahafsströndina.
Meðal þess sem verður á dagskránni er heimsókn í Larco-safnið, eitt merkasta safn Suður-Ameríku, þar sem varðveittir eru einstakir dýrgripir frá fornum menningarheimum Perú. Við njótum hádegisverðar í fallegu umhverfi safnsins.
Lima hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð matarborga heims. Við förum í sérstaka sælkeraferð um borgina þar sem við kynnumst fjölbreyttri matarmenningu Perú, staðbundnu hráefni og þeim einstaka bragðheimi sem hefur vakið heimsathygli.



Heilagur dalur Inkanna – í fótspor fornrar menningar
7–10. október | 3 nætur
Við fljúgum frá Lima til Cusco og höldum þaðan beint niður í Heilaga dal Inkanna, þar sem við gistum á sjarmerandi hóteli í bænum Ollantaytambo, umkringd fjöllum og gróskumiklum görðum.
Við heimsækjum Chinchero, Pisac og Ollantaytambo, skoðum tilkomumiklar fornminjar Inkanna, kynnumst sögu þeirra og upplifum lífið í dalnum.
Einn dagurinn er helgaður samskiptum við heimamenn. Við heimsækjum fjölskyldu á svæðinu og fáum innsýn í aldagamlar hefðir, vefnað og litun með náttúrulegum litarefnum. Við tökum einnig þátt í hefðbundinni athöfn undir leiðsögn andlegs leiðtoga heimamanna, þar sem Pachamama, móður jörð, er sýnd virðing og þakklæti.
Dvölin í Heilaga dalnum er jafnframt mikilvægur liður í undirbúningi okkar fyrir fjallgöngurnar og gefur okkur tíma til að aðlagast aukinni hæð.
Salkantay – sjö daga lúxusævintýri í Andesfjöllunum
10.–16. október | 6 nætur
Nú hefst sjálft gönguævintýrið. Á næstu sjö dögum upplifum við ótrúlega fjölbreytni í náttúru Andesfjallanna og göngum um landslag sem tekur stöðugum breytingum.
Fyrstu tvær næturnar gistum við í Salkantay Lodge í 3.869 metra hæð, með stórkostlegu útsýni yfir fjöllin. Þaðan göngum við að hinu ægifagra, túrkísbláa Humantay vatni, umkringdu snævi þöktum fjallatindum og jöklum.
Erfiðasti göngudagurinn tekur við þegar við förum yfir Salkantay-fjallaskarðið í 4.636 metra hæð. Þaðan liggur leið okkar smám saman niður á við, frá hrjóstrugu háfjallalandslagi inn í gróskumikla skýjaskóga með villtum brönugrösum, litríkum fiðrildum, ávaxtatrjám og kaffiplantekrum.
Á leiðinni kynnumst við einnig hefðbundinni matargerð heimamanna, meðal annars Pachamanca, þar sem matur er eldaður í jörðu með heitum steinum, og heimsækjum lífræna kaffiplantekru.
Það sem gerir gönguna sérstaklega einstaka er gistingin. Við göngum á milli glæsilegra fjallaskála Mountain Lodges of Peru, þar sem bíða okkar þægileg herbergi með einkabaðherbergjum, sælkeramáltíðir, heitir pottar og persónuleg þjónusta. Í sumum skálanna er einnig í boði að njóta nudds eftir göngur dagsins.






Machu Picchu – draumur verður að veruleika
Á næstsíðasta degi göngunnar förum við eftir fornum göngustígum Inkanna upp að Llactapata, þaðan sem við sjáum hina goðsagnakenndu borg Machu Picchu í fyrsta sinn úr fjarska. Við höldum síðan niður í dalinn og tökum lest til Aguas Calientes, þar sem við gistum síðustu nótt gönguævintýrisins.
Snemma næsta morgun heimsækjum við Machu Picchu, eitt af sjö nýjum undrum veraldar. Í fylgd leiðsögumanns kynnumst við sögu þessarar dularfullu borgar, merkilegri byggingarlist Inkanna og stórkostlegu umhverfi hennar.
Að heimsókn lokinni höldum við með lest um fallegt landslag Heilaga dalsins og áfram til Cusco.
Cusco – höfuðborg Inkaveldisins
16.–18. október | 2 nætur
Síðustu tvær næturnar gistum við á Andenes hótelinu í Cusco, einni mest heillandi söguborg Suður-Ameríku.
Við skoðum gamla borgarhlutann, kynnumst einstakri blöndu byggingarlistar Inkanna og spænska nýlendutímans og heimsækjum merkilegar fornminjar í nágrenni borgarinnar. Einnig gefst tími til að njóta andrúmsloftsins, rölta um fallegar götur borgarinnar og setjast inn á notaleg kaffihús.
Þann 18. október kveðjum við Andesfjöllin og fljúgum frá Cusco til Lima, þaðan sem ferðalangar halda heim á leið.
Fyrir nánari upplýsingar um dagskrá hvers dags, vegalengdir, hækkun og erfiðleikastig gönguleiðanna er vísað í ítarlega dagskrá ferðarinnar.


Gisting
Einstök gisting – lúxus á óvæntum stöðum
Gistingin er órjúfanlegur hluti af upplifun okkar í Perú. Við gistum á vandlega völdum hótelum og einstaklega fallegum fjallaskálum þar sem staðbundin byggingarlist, persónuleg þjónusta, þægindi og einstakt umhverfi fara saman.
Hótel:
Lima – AC Hotel Lima Miraflores by Marriott
Glæsilegt og nútímalegt hótel á frábærum stað í Miraflores, við Kyrrahafsströnd Lima. Stutt er í fallegar gönguleiðir meðfram ströndinni, góða veitingastaði og verslanir. Á hótelinu er meðal annars þakverönd með stórkostlegu útsýni yfir Kyrrahafið – dásamlegur staður til að hefja ævintýrið í Perú.
Tierra Viva Ollantaytambo
Tierra Viva Ollantaytambo er einstaklega sjarmerandi hótel í hjarta Heilaga dals Inkanna, umkringt tignarlegum fjöllum og fallegum blómagörðum. Byggingarlist og hlýlegar innréttingar endurspegla menningu og hefðir Andesfjallanna.
Cusco – Andenes by Mountain Lodges of Peru
Fallegt boutique-hótel í sögufræga hverfinu San Blas í hjarta Cusco. Hér mætast söguleg byggingarlist, nútímaleg hönnun og hlýlegar innréttingar með perúísku ívafi. Hótelið er í göngufæri við aðaltorg borgarinnar, listasöfn, notaleg kaffihús og góða veitingastaði. Heillandi staður til að ljúka ævintýri okkar í Perú.
Lúxusskálar í Andesfjöllunum
Á gönguleiðinni um Andesfjöllin gistum við í glæsilegum fjallaskálum Mountain Lodges of Peru, frumkvöðla í lúxusgönguferðum um Andesfjöllin. Hver skáli hefur sinn eigin karakter og fellur fallega að náttúrunni í kring.
Hér mætast ævintýramennska og fáguð gestrisni. Að loknum krefjandi göngudegi bíða okkar notaleg herbergi með einkabaðherbergjum, heitir pottar, ljúffengar máltíðir og góð samvera.
Það er einstök tilfinning að njóta slíkra þæginda langt frá alfaraleið, í hjarta stórbrotinna Andesfjalla.
Salkantay Lodge
10. - 12. október | 2 nætur | 3.869 metra hæð
Við rætur hins tignarlega Salkantay fjalls er að finna þennan glæsilega fjallaskála með stórkostlegu útsýni yfir snævi þakta tinda Andesfjallanna.
Hlýlegar innréttingar, náttúruleg byggingarefni, notaleg setustofa, falleg herbergi og heitur pottur undir berum himni gera dvölina hér að sérstakri upplifun. Hér dveljum við í tvær nætur og njótum þess að vera umvafin stórbrotinni náttúru fjallanna.
Wayra Lodge
12.- 13. október | 1 nótt | 3.906 metra hæð
Wayra Lodge er afskekktasti fjallaskálinn á gönguleiðinni og sannkölluð vin í óbyggðum Andesfjallanna.
Eftir eriðasta göngudag ferðarinnar, yfir Salkantay fjallaskarðið, bíður okkar hér einstaklega hlýlegt athvarf. Við njótum góðs matar, slökum á í heita pottinum og hvílum lúna vöðva í kyrrð fjallanna.
Colpa Lodge
13. - 14. október | 1 nótt | 2.870 metra hæð
Colpa Lodge stendur á einstaklega fallegum stað þar sem þrjár ár mætast, umkringdur gróskumikilli náttúru og skýjaskógum Andesfjallanna.
Hér tekur við allt annað landslag og mildara loftslag. Við njótum hefðbundinnar Pachamanca-máltíðar, þar sem maturinn er eldaður í jörðu með heitum steinum, og getum slakað á í heita pottinum með útsýni yfir græna fjalladalina.






Lucma Lodge
14.- 15. október | 1 nótt | 2.135 metra hæð
Lucma Lodge er falinn meðal gróskumikilla garða, avókadótrjáa og kaffiplantekra í hlýrra loftslagi neðar í Andesfjöllunum.
Skálinn er einstaklega sjarmerandi og byggingarlist hans sækir innblástur í hefðir Inkanna. Hér njótum við síðasta kvöldsins í fjallaskálunum áður en við höldum áfram í átt að Machu Picchu

EINSTAKT KYNNINGARTILBOÐ TIL ÁRAMÓTA
Draumaferðin 4. - 18. október 2027 á einstöku verði
Almennt verð: 1.095.500 kr.
895.500 kr.
Á mann miðað við tvo í herbergi
Sparaðu 200.000 kr. á mann
400.000 kr. sparnaður fyrir tvo
Kynningartilboðið gildir til 31. desember 2026.
Innanlandsflug í Perú er innifalið í verðinu. Millilandaflug er ekki innifalið en við aðstoðum við bókun þess sé þess óskað.
Ekki bara draumaferð – heldur ferð lífsins.
Í boði er sveigjanleg greiðsludreifing með kreditkorti til allt að 36 mánaða.
Ekki innifalið
-
Flug frá Íslandi til Perú
-
Drykkjarföng með máltíðum
-
Ferðatryggingar
-
Nudd í fjallaskálum
-
Valfrjáls ganga á Huayna Picchu
-
Þjórfé til töskubera, þjóna, leiðsögumanna, kokka og bílstjóra
-
Námskeið hjá öndunarsérfræðingi
-
Hestaleiga á gönguleiðinni
Skilmálar
Staðfestingargjald kr 450.000 við skráningu er óendurkræft, að því gefnu að lágmarksþátttaka náist.
Önnur greiðsla kr. 150.000 greiðist þann 15 febrúar 2027.
Lokagreiðsla greiðist þann 15. maí 2027.
Innifalið í verði
-
Innanlandsflug í Perú samkvæmt dagskrá
-
Allur akstur samkvæmt dagskrá með lúxus rútum
-
9 nætur á góðum 3- 5 stjörnu hótelum
-
5 nætur í gistingu í glæsilegum fjallaskálum
-
Máltíðir samkvæmt dagksrá
-
Sjö daga Salkantay gönguævintýri.
-
Skoðunarferðir og aðgangseyrir samkvæmt dagskrá
-
Hefðbundin Pachamama athöfn.
-
Aðgangur að Machu Picchu og leiðsögn um Inka borgina.
-
Íslensk fararstjórn
-
Staðarleiðsögumaður frá Perú
-
Markvisst æfingaplan fyrir ferðina.
-
Vatn í flöskum daglega
AFBÓKUNARSKILMÁLAR:
-
Staðfestingargjald ferðarinnar er óendurkræft allt að 120 dögum fyrir brottför.
-
Sé afbókað 120-50 dögum fyrir ferð þá heldur ferðaskrifstofan eftir 70% af því sem greitt hefur verið auk staðfestingargjalds.
-
49 dögum eða skemur fyrir brottför fæst ekkert endurgreitt.
Mikilvægt er að þátttakendur séu með fullnægjandi ferðatryggingar sem ná til fjallgangna í allt að 5.000 metra hæð og neyðarflutninga.
Hentar ferðin mér?
Erfiðleikastig ferðarinnar er 3,5 af 5 – miðlungs til krefjandi. Daglegar gönguvegalengdir eru að mestu hóflegar en hæðin yfir sjávarmáli eykur erfiðleikastigið.
Ferðin hentar fólki með góða göngureynslu og gott líkamlegt úthald. Ekki er gerð krafa um reynslu af tæknilegri fjallamennsku en mælt er með markvissum undirbúningi að minnsta kosti þremur mánuðum fyrir brottför.
Markviss undirbúningur – við undirbúum okkur saman
Fararstjórar munu útbúa sérstakt æfingaplan fyrir þátttakendur með það að markmiði að byggja upp styrk og úthald fyrir göngurnar í Andesfjöllunum. Á undirbúningstímanum verður þátttakendum einnig boðið að taka þátt í skipulögðum göngum með fararstjórum hér á Íslandi. Það er jafnframt kjörið tækifæri til að kynnast ferðafélögunum áður en lagt er af stað.
Auk þess verður boðið upp á námskeið hjá öndunarsérfræðingi þar sem farið verður yfir öndunartækni og æfingar með göngur í mikilli hæð að leiðarljósi. (ekki innifalið).
Sveigjanleiki á gönguleiðinni
Ef einhver treystir sér ekki til að ganga ákveðna hluta leiðarinnar er mögulegt að leigja hest gegn aukagjaldi. Þetta getur meðal annars komið sér vel á erfiðasta göngudeginum þegar farið er yfir Salkantay fjallaskarðið.
Við dveljum í þrjár nætur í Heilaga dal Inkanna áður en gönguævintýrið hefst til að gefa líkamanum tíma til að aðlagast hæðinni. Að loknum hverjum göngudegi njótum við góðrar hvíldar og einstakra þæginda í fjallaskálunum.
Ævintýrið hefst í raun löngu áður en við leggjum af stað til Perú – við undirbúum okkur saman, byggjum upp úthald og kynnumst hvert öðru.
