Heillandi líf - að ferðast, njóta og rækta heilsuna
Hvernig getum við lifað innihaldsríku lífi, ræktað heilsuna og haldið áfram að upplifa ný ævintýri langt fram eftir aldri?

Þegar kom að því að velja mér náms- og starfsbraut á sínum tíma var ég nokkuð tvístígandi. Mig langaði annars vegar að leggja fyrir mig læknisfræði eða eitthvað á sviði heilbrigðisfræða og hins vegar heilluðu viðskipti mig. Viðskiptin urðu að lokum fyrir valinu.
Í kringum árið 2012 vaknaði áhugi minn á heilsu og heilbrigðu líferni á ný og ég fór að sökkva mér af alvöru í heilsufræði,
Í kringum árið 2012 vaknaði áhugi minn á heilsu og heilbrigðu líferni á ný og ég fór að sökkva mér affór ég að sökkva mér af alvöru í heilsufræði og þá sérstaklega heildræna læknisfræði (Functional Medicine), þar sem lögð er áhersla á að leita að undirliggjandi orsökum heilsufarsvandamála og horfa á líkamann sem eina heild, (hugur, líkami og sál).
Fræði læknisins Dr. Mark Hyman hafa meðal annars haft mikil áhrif á mína sýn á heilsu og lífsgæði. Ég hef mikla trú á því að það sem við borðum, hvernig við hreyfum okkur, hvernig við sofum og hvernig við hlúum að andlegri vellíðan hafi afgerandi áhrif á heilsu okkar. Með lífsvenjum okkar getum við haft áhrif á eigin heilsu, dregið úr líkum á ýmsum sjúkdómum og í mörgum tilfellum bætt heilsufarsvandamál sem þegar hafa komið fram.
Þegar líkaminn gefur mér merki um að eitthvað sé ekki eins og það á að vera er mín fyrsta hugsun yfirleitt: Hvað get ég sjálf gert til að bæta líðan mína? Þarf ég að breyta einhverju varðandi mataræði, hreyfingu eða et til vill slökun (hugleiðslu)?
Þessi áhugi leiddi mig í nám í heilsumarkþjálfun hjá Institute for Integrative Nutrition (IIN) og síðar í nám til að verða Yoga Nidra leiðbeinandi. Þar fékk ég enn dýpri innsýn í mikilvægi þess að hlúa jafnt að líkama og huga.
Þegar ástríðurnar mætast
Ferðalög og ferðaþjónusta hafa alla tíð verið stór hluti af lífi mínu og starfi. Með Heillandi heimi hef ég fengið tækifæri til að sameina tvær af mínum stærstu ástríðum – ferðalög og heilsusamlegt líferni.
Það er engin tilviljun að flestar ferðir Heillandi heims eru með einhvers konar heilsuívafi, hvort sem við göngum um stórbrotna náttúru, hjólum um falleg héruð, njótum góðrar og næringarríkrar matargerðar, iðkum jóga eða gefum okkur einfaldlega tíma til að slaka á og njóta augnabliksins.
Fyrir mér snýst heilbrigður lífsstíll nefnilega ekki um boð og bönn heldur um lífsgæði. Að hafa orku, styrk og getu til að gera það sem okkur langar til. Að geta haldið áfram að ferðast, uppgötva nýja staði, kynnast fólki og takast á við spennandi áskoranir óháð aldri.
Heillandi líf – vettvangur fyrir innblástur

Hér á Heillandi lífi ætlum við að deila áhugaverðum greinum, fróðleik og hugleiðingum um ferðalög, heilsu, næringu, hreyfingu, langlífi og andlega vellíðan.
Við munum kynnast spennandi áfangastöðum, skoða ólíka menningarheima og velta fyrir okkur hvernig við getum ræktað heilsuna og aukið lífsgæði okkar.
Vonandi verður Heillandi líf uppspretta innblásturs fyrir alla þá sem vilja halda áfram að njóta lífsins, læra eitthvað nýtt og upplifa heillandi ævintýri.
Markmiðið er ekki bara að bæta árum við lífið heldur að bæta lífi við árin.
Verið hjartanlega velkomin á Heillandi líf.
Harpa Einarsdóttir
Stofnandi Heillandi heims


Comments