top of page
B-18_bis.jpg
GOLF Á ÍTALÍU

​

BOGOGNO GOLF RESORT

Gæði og einstök fegurð er það sem einkennir golfvellina á Bogogno. Bogogno golf resort er staðsett í

um 30km frá flugvellinum í Malpensa í Milano. Í Bogogno eru tveir feikna góðir 18 holu golfvellir,

með glæsilegum æfingarsvæðum, Sundlaug, spa, tennisvöllur, góðir matsölustaðir, náttúrufegurð og svo mætti lengi telja.

 

Það má með sanni segja að dvöl á Bogogno golf resort er ógleymanleg upplifun fyrir golfara sem vilja

njóta alls þess besta sem völ er á þegar kemur að golfi.

​

DEL CONTE GOLFVÖLLURINN

Del Conte er par 72 golfvöllur og er einstaklega fallegur með breiðu opnum brautum og fjölmörgum

flötum brautum, vötnum og lækjum í villtu landslagi. Hið glæsilega Monte Rosa Massif, næst hæsta

fjall vestur Evrópu, gefur útsýninu á golfvellinum enn meiri sjarma.

 

Lengd vallar:

  • Atvinnumanna teigar: 6485m

  • Hvítír teigar (Karla - Keppni): 6206m

  • Gulir teigar (Karlar - Standard): 5776m

  • Grænir teigar (Karlar - öldungar): 5234m

  • Bláir teigar (Konur - Keppnisteigar): 5338m

  • Rauðir teigar (Konur – Standard): 4954m

  • Appelsínugulir teigar (Konur - öldungar): 4455m

 

BONORA GOLFVÖLLURINN

Bonora er par 72 krefjandi golfvöllur sem er fallega hannaður yfir stórt hæðarsvæði. Golfvöllurinn er

umvafinn fallegri villtri náttúru með fjölmörgum ósnortnum lækjum og skógum, eins og dæmigert er

fyrir þetta svæði.

 

Lengd vallar:

  • Atvinnumanna teigar: 6488m

  • Hvítir teigar (Karlar - Meistara): 6284m

  • Gulir teigar (Karlar - Standard): 5907m

  • Grænir teigar (Karlar - Öldungar): 5284m

  • Bláir teigar (Konur - Meistara): 5408m

  • Rauðir teigar (Konur – Standard): 4907m

  • Appelsínugulir teigar (Konur - Öldungar): 4425m

​

ÆFINGARAÐSTAÐA

Æfingaraðstaðan er einkar glæsileg sem saman stendur að driving range, chipping range og púttvelli.

 

Driving Range

Driving range eru tvö og eru þau staðsett í nálægð við klúbbhúsið á milli holu 1 og 18 á Del Conte

golfvellinum.

  • 28 utandyra tees á grasi (Aðalsvæði)

  • 12 utandyra tees á grasi (Svæði 2)

  • 12 utandyra tees á teppi (Aðalsvæði)

  • 8 utandyra tees á teppi (Aðalsvæði)

 

Pitching/Chipping Range

Staðsett við hliðina á driving range, svæðið samanstendur af tvöfaldri þjálfunarflöt, með

margvíslegum mismunandi skotmörkum, til að æfa allar gerðir nálgunarskota:

 

  • Pitching

  • Chipping/Vipp

  • Sandgryfjur

  • Puttvöllur

​

Hótelið

Hótelið er staðsett við hliðina á klúbbhúsinu. Það var formlega tekið í notkun árið 2014. Hótelið er

mjög nýstárlegt og er byggt á vistvænan hátt úr endurvinnanlegu náttúrulegu efni og háþróaðri

byggingartækni.

 

Á hótelinu eru 50 herbergi af mismunandi stærðum og gerðum:

  • Átján 28m2 fermetra double herbergi

  • Tuttugu og átta 33m2 fermetra deluxe herbergi

  • Fjórar 70m2 fermetra svítur

 

Deluxe herbergi og svítur eru með eigin verönd eða svölum, öll herbergin horfa beint á holu 18 á

Bonora vellinum eða yfir sundlaug golfklúbbsins.

Sameiginlegt svæði er fyrir hótelgesti á þaki hótelsins þar sem gestir hafa aðgang að heitum potti og

geta slakað á og notið töfrandi útsýnisins yfir Monte Rosa -fjöllin.

​

Á hótelinu eru:

  • Setustofa

  • Bar

  • Sólstofa

  • Líkamsræktarstöð

  • Fundarherbergi

  • Ráðstefnusalir

​

HEILSULIND

Á hótelinu er einkar glæsileg heilsulind þar sem veitt er framúrskarandi, fagleg og fjölbreytt þjónusta í hlýju og notalegu umhverfi. Njóttu endurnærandi og þægilegrar upplifunar eftir annríki dagsins.

 

Spa upplifun:

  • Finnskt gufubað

  • Nuddmeðferðir

  • Ís gosbrunnur

  • Gufubað

  • Vitarium (gufubað)

  • Fjallasturta

  • Fótabað

​

​

​

home_day
B-18
Golf Tene 10
home_13
B-06
B-02_bis
B-08_bis
B-18_bis
Bogongo golf
home_restaurant
o_1aqp393cbhv419uohha1tk123a1m
o_1aqp343qc615cj015ckpfi1fkml
o_1aqp38s2onp1tes9qvb9q1dne1k
o_1aqp37dp61te7p4ibhvaq11ntl1a
o_1aqp37r3p1knhegrhr214reisq1e
o_1aqp3j9kbloj1bk613tk1ijelo42p
home_resort_revised (1)

VERÐ FRÁ KR 229.900  -  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVÆR Í HERBERGI

Innifalið í verði er:

• 5 nátta gisting á Hotel Bogogno með morgunverði

• Flug með Icelandair - Farangur, 20kg ferðataska, handfarangur 10kg og golfsett

• Akstur til og frá flugvelli Milano Malpensa – akstur tekur 45 mín

• 5 golfhringir

• Golfbílar

​

FLUG MEÐ ICELANDAIR 

Beint flug með Icelandair frá KEF til Milano þann 11. maí 2022 kl. 15:40 lent í Milano kl. 21:55 

Beint flug með Icelandair frá Milano til Keflavíkur þann 15. maí 2022 kl. 22:50 lent í KEF kl. 01:05 

​​

OFFICIAL VIDEO (2018)

OFFICIAL VIDEO (2018)

BOGOGNO GOLF RESORT  

​

18 - 22 MAÍ 2022

4 NÆTUR / 5 DAGAR

Bogogno golf resort er staðsett í um 30km frá flugvellinum í Malpensa í Milano. Í Bogogno eru tveir feikna góðir 18 holu golfvellir, með glæsilegum æfingarsvæðum, sundlaug og tennisvöllum.

​

VERÐ FRÁ 249.900 

á mann miðað við 2 fullorðna í herbergi

Blue Water

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info@heillandiheimur.is eða með því að smella á hnappinn hér að neðan og fylla út formið.

Hlökkum til að heyra frá þér.

GOLF Á SPÁNI

CHERVO GOLF HOTEL OG

SPA RESORT 

​

​

Verð frá 221.900,- á mann

​

​

Blue Water
  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

Hlökkum til að heyra frá þér.

Ferðaskrifstofuleyfi

©2021 Heillandi Heimur

bottom of page